Skessuhorn - 23.06.2015, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2015 17
Kvenfélag Ólafsvíkur hélt upp á 65
ára afmæli sitt síðatliðinn föstudag,
19. júní. Af því tilefni hefur félagið
gefið út glæsilegan minjagrip sem
einnig er falleg gjöf með notagildi.
Þetta er askja með tíu gjafakortum
ásamt umslögum með myndum
frá Ólafsvík. Askjan verður seld og
ágóðinn notaður til styrktar mann-
úðar- og menningarmálum. „Við
höfum unnið að þessu í tæp tvö ár.
Fyrst vorum við að spá í að gefa
út dagatal en þetta endaði síðan
á þeirri hugmynd að gefa út þessi
kort. Síðan tók við alls kyns út-
færsla og hönnun. Til að mynda var
ekki eins auðvelt að finna myndir
og halda mætti. Það var að ýmsu að
huga við framkvæmd þessa verk-
efnis,“ segir Svanfríður Þórðar-
dóttir sem er í framkvæmdanefnd
kvenfélagsins. Konurnar í Kvenfé-
lagi Ólafsvíkur kynntu kortaöskj-
una í Átthagastofu Snæfellsbæjar í
Ólafsvík á föstudaginn.
Allir ljósmyndararnir gefa mynd-
irnar sem eru notaðar á kortin. Það
eru Atli Már Hafsteinsson, Þröst-
ur Albertsson, Sigurjón Bjarnason,
Alfons Finnsson, Eyjólfur Eyjólfs-
son og Árni Guðjón Aðalsteins-
son.
Ester Gunnarsdóttir er formað-
ur nefndarinnar. „Kortin verða
örugglega seld í Blómabúðinni
Blómaverki og versluninni Hrund
hér í Ólafsvík. Við erum svo að
skoða fleiri möguleika. Við vildum
gefa kortin fyrst út áður en við fær-
um í að bjóða þau til verslana og
útsölustaða svo viðkomandi aðilar
gætu séð vöruna,“ segir hún. „Það
var Jónas Gunnarsson sonur Ester-
ar sem hjálpaði okkur með hönn-
unina á þessu öllu. Hann er mennt-
aður sem grafískur hönnuður og
veitti mikla aðstoð,“ bætir Svan-
fríður við. mþh
Konur í Ólafsvík gefa út gjafakort
Ester Gunnarsdóttir og Svanfríður Þórðardóttir með kortin og öskjuna undir þau
fyrir framan sig.
Við fjárhagsáætlunargerð á síðasta
ári ákvað bæjarstjórn Akraness að
leggja 3,5 milljónir í nýjan Þróunar-
sjóð skóla- og frístundasviðs á árinu
2015. Tilgangurinn með sjóðnum er
að styðja við þróunar- og nýsköp-
unarstarf á sviði skóla og frístunda á
vegum Akraneskaupstaðar með það
að markmiði að starfsemin verði í
sífelldri þróun í takt við breyting-
ar í umhverfi og samfélagi. Skóla-
og frístundasviði tilheyra leikskólar,
grunnskólar, sérfræðiþjónusta skóla,
tónlistarskólinn, frístundamiðstöð-
in Þorpið og íþróttamannvirki Akra-
neskaupstaðar. Þá geta skólar, frjáls
félagasamtök og aðrir aðilar verið
samstarfsaðilar í þróunarverkefnum.
Alls bárust þrjár umsóknir um
styrki úr sjóðnum; frá Garðaseli,
Vallarseli og Grundaskóla. Úthlutað
var úr Þróunarsjóðnum í fyrsta skipti
síðastliðinn miðvikudag á fundi
skóla- og frístundaráðs. Þar stað-
festi ráðið tillögu úthlutunarnefnd-
ar um að Vallarsel fengi úthlutað
3.100.000 krónum til þróunarverk-
efnisins „Fjölmenningarlegt skóla-
starf í Vallarseli“ og Garðasel 400
þúsund krónum til þróunarverkefn-
isins „Lífið er leikur - að leika og
læra.“ grþ
Úthlutað úr Þróunarsjóði skóla-
og frístundasviðs á Akranesi
Fulltrúar leikskólans Vallarsels taka við styrknum. Ljósm. Akraneskaupstaður.
„Ég hef teiknað síðan ég var lítill
og hef áhuga á allri list. Teikning-
um, málaralist, höggmyndalist og
fleiru,“ sagði Piotr Gostynski, lista-
maður í Borgarnesi, þegar blaða-
maður heimsótti hann á dögun-
um. „Þetta er ástríða mín,“ seg-
ir hann og bætir því við að hann
setji sér markmið í listsköpun sinni
og þegar þeim er náð hellist yfir
hann ánægjutilfinning. Piotr kem-
ur frá Zielona Góra, um 150 þús-
und manna borg í Lubuz-héraði í
vesturhluta Póllands en fluttist til
Íslands fyrir tæpu ári síðan og hóf
störf hjá Loftorku. Undanfarið hafa
teikningar hans af Borgarnesi vakið
athygli heimamanna og nærsveit-
unga. „Ég hef líka teiknað heima-
borgina mína en teikningar af Borg-
arnesi eru einu „landslagsmyndirn-
ar“ sem ég hef teiknað hér,“ segir
Piotr en bætir því við að hann hafi
gert nokkuð af því að teikna port-
rettmyndir fyrir fólk eftir pöntun.
„Það er alltaf einhver sem vill port-
rettmyndir,“ segir hann.
Aðspurður um eftirlætis við-
fangsefni sín svarar hann því til að
það breytist reglulega frá einum
tíma til annars. Eitt sinn hafi hann
til dæmis teiknað mikið af helgi-
myndum í 12. og 13. aldar stíl, en
viðfangsefni helgimynda eru eink-
um Jesú Kristur, María mey, dýr-
lingar og englar. „Þetta gengur yfir
í tímabilum. Ég hef teiknað mik-
ið af helgimyndum í gegnum tíð-
ina oft valið þær sem viðfangsefni.
En ég hef líka fengist við airbrush-
myndir, skreytt veggi í íbúðum og
skólum. Til dæmis skreytti ég einu
sinni 25 metra langan gang í skóla
úti í Póllandi. En það er breytilegt
frá einum tíma til annars hvað ég
fæst við. Þessa dagana teikna ég
mest Borgarnes og portrettmynd-
ir,“ segir Piotr.
Starfaði sem listamaður í
heimalandinu
Piotr er giftur og á þrjú börn en
fjölskylda hans býr úti í Póllandi.
Á árum áður starfaði hann að hluta
sem listamaður í heimalandinu, setti
upp nokkrar sýningar í galleríum en
hætti öllu slíku upp úr 1990. „Það
borgaði sig ekki að halda listasýn-
ingar eftir að ríkisstjórn Lech Wa-
lesa komst til valda, það svaraði ein-
faldlega ekki kostnaði,“ segir Piotr.
Aðspurður hvort hann hafi í hyggju
að setja upp sýningar á nýjan leik
úti í Póllandi eða jafnvel hér á landi
kveðst hann ekki geta svarað því með
neinni vissu. „Aðeins tíminn getur
leitt það í ljós,“ segir hann.
Tíminn er Piotr hugleikinn, sem
þykir framboð á honum heldur af
skornum skammti. Vinnulag hans
markast af því, en hann fer gjarn-
an á staðinn, tekur mynd af við-
fangsefninu og teiknar svo eftir ljós-
mynd. „Áður fyrr prófaði ég stund-
um að setjast niður einhvers staðar
og teikna. En það er svo miklu tíma-
frekara en að taka mynd og teikna
eftir henni, sérstaklega ef einhver sit-
ur fyrir á myndinni,“ segir Piotr og
lætur vel af þessu vinnulagi. „Þúsund
ár væru ekki nógu langur tími til að
gera allt sem mig langar til að gera,
ég hef svo margar hugmyndir í koll-
inum. Ég hef allt nema tíma,“ seg-
ir Piotr að lokum og bætir því við
að þeir sem hafi áhuga á að kaupa
myndir af honum geti haft samband
við hann í gegnum facebook. kgk
„Þetta er ástríða mín“
- spjallað við Piotr Gostynski listamann í Borgarnesi
Ein af teikningum Piotr þar sem meginviðfangsefnið er Borgarnes og nágrenni.
Piotr Gostyński hefur vakið athygli Borgnesinga og nærsveitunga fyrir teikningar sínar af Borgarnesi.
Helgimynd eftir Piotr af landa hans Jóhannesi Páli II páfa.Borgarteikning frá 2005. Piotr hefur síðan í haust teiknað myndir í sama stíl af
Borgarnesi og nágrenni.