Skessuhorn


Skessuhorn - 23.06.2015, Side 6

Skessuhorn - 23.06.2015, Side 6
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 20156 VR félagar sam- þykktu kjara- samninga SV-LAND: Kjarasamning- ar VR og atvinnurekenda voru samþykktir með miklum meiri- hluta atkvæða í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sem lauk á hádegi í gær, mánudag. Skrifað var undir samningana þann 29. maí en atkvæðagreiðsla um þá hófst 10. júní. Greidd voru at- kvæði um tvo samninga. Fyrri samningurinn er milli VR og Samtaka atvinnulífsins: „Já“ sögðu 3.786 eða 73,9% en „nei“ sögðu 1.216 eða 23,8%. Alls tóku 118 eða 2,3% ekki afstöðu til samningsins. Á kjörskrá voru 27.371 og kosningaþátttaka var því 18,71%. Hinn samningur- inn er milli VR og Félags at- vinnurekenda: „Já“ sögðu 155 eða 72,4% en „nei“ sögðu 57 eða 26,6%. Á kjörskrá voru 818 og kosningaþátttaka var því 26,16%. Þátttaka í atkvæða- greiðslu um kjarasamninginn er meiri í ár en hún hefur ver- ið undanfarinn áratug, hæst var hún 15,5% árið 2011 en innan við 10% árið 2004. -mþh Aflatölur fyrir Vesturland 13. - 19. júní Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes 15 bátar. Heildarlöndun: 20.060 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 8.189 kg í fjórum löndunum. Arnarstapi 8 bátar. Heildarlöndun: 11.390 kg. Mestur afli: Sælaug MB: 1.552 kg í tveimur löndunum. Grundarfjörður 37 bátar. Heildarlöndun: 177.490 kg. Mestur afli: Grundfirðingur SH: 47.527 kg í einni löndun. Ólafsvík 40 bátar. Heildarlöndun: 110.597 kg. Mestur afli: Gunnar Bjarnason SH: 16.202 kg í tveimur lönd- unum. Rif 37 bátar. Heildarlöndun: 238.685 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 107.551 kg í tveimur löndun- um. Stykkishólmur 31 bátur. Heildarlöndun: 107.734 kg. Mestur afli: Sunna Rós SH: 11.098 kg í fimm löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Tjaldur SH – RIF: 58.980 kg. 13. júní 2. Tjaldur SH – RIF: 48.571 kg. 18. júní 3. Grundfirðingur SH – GRU: 47.527 kg. 14. júní 4. Rifsnes SH – RIF: 44.129 kg. 16. júní 5. Bergur VE – GRU: 38.149 kg. 16. júní mþh Allir samþykktu samninga SGS og SA LANDIÐ: Yfirgnæfandi meirihluti samþykkti kjara- samninga Starfsgreinasam- bandsins (SGS) og Sam- taka atvinnulífsins á hin- um almenna vinnumark- aði. Starfsgreinasambandið fór með umboð 15 aðildar- félaga í viðræðunum og hélt utan um sameiginlega raf- ræna atkvæðagreiðslu um samningana. Í heildina var kjörsókn rúmlega 25%, já sögðu 79,95% en nei sögðu 18,43%. Auðir seðlar voru 1,62%. Á kjörskrá voru 9.589 manns. Niðurstöðurn- ar voru alls staðar afgerandi. Samningarnir á almennum vinnumarkaði sem undirrit- aðir voru 29. maí síðastlið- inn eru því samþykktir hjá eftirfarandi félögum: AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stétt- arfélagi, Drífandi stéttar- félagi, Einingu – Iðju, Fram- sýn stéttarfélagi, Samstöðu stéttarfélagi, Verkalýðs- félagi Akraness, Verkalýðs- félagi Grindavíkur, Verka- lýðs- og sjómannafélagi Bol- ungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og Verkalýðsfélagi Þórs- hafnar. Kjarasamningurinn var einnig samþykktur hjá þeim fjórum aðildarfélög- um sem veittu SGS ekki um- boð en eru innan sambands- ins. Flóabandalagið (Efling, Hlíf, og Verkalýðs- og sjó- mannafélag Keflavíkur og nágrennis) samþykkti samn- inginn með 78,9% greiddra atkvæða og Stéttarfélag Vest- urlands samþykkti samning- inn með 87,24% greiddra at- kvæða. -mþh Í tilefni þess að hundrað ár voru á föstudaginn liðin frá því að konur fengu kosningarétt mættu kenn- arar í leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi í gömlum og nýj- um kvennahlaupsbolum til vinnu. Vildu þær með þessu móti minna á daginn, en ekki var gefið frí í leikskólum í Borgarbyggð þenn- an dag. mm/ Ljósm. borgarbyggd.is Um liðna helgi fór fram opið sjóst- angveiðimót Sjóstangveiðifélags Snæfellsnes í Ólafsvík. Alls tóku sex bátar þátt í mótinu og voru kepp- endur 24 talsins víða að af landinu. Heildarafli var með ágætum eða um níu tonn. Aflahæsti karlmaður- inn var Sigurjón Már Birgisson frá Sjóskip á Akranesi með 793 kíló. Aflahæsti heimamaðurinn varð Sigurjón Helgi Hjelm með 561 kíló. Aflahæsta konan varð Björg Guðlaugsdóttir frá Sjósnæ í Snæ- fellsbæ með 343 kíló. Aflahæsti báturinn varð Ella Kata SH með 2.479 kíló. Þar um borð var Helgi Már Bjarnason skipstjóri. af/mþh Mættu í litskrúðugum kvennahlaupsbolum Sjóstang- veiðimót í Ólafsvík Gunnar Jónsson kvikmyndaleikari sem síðast gerði garðinn frægan í kvikmynd- inni Fúsi er félagi í Sjósnæ í Snæfellsbæ. Hann fékk stærstu ýsuna á mótinu. Ljósm. af.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.