Skessuhorn - 23.06.2015, Page 10
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 201510
Eins og fram kom í frétt Skessuhorns á
fimmtudagskvöldið, og hér við hliðina,
var skrifað undir samning við danska
verktaka um byggingu verksmiðju-
húss fyrir sólarkílisverksmiðju Sili-
cor Materials á Grundartanga. Áður
var búið að skrifa undir samninga um
kaup á tækjabúnaði í verksmiðjuna,
auk þess sem samningar um lóða- og
hafnarmál á Grundartanga liggja fyr-
ir. Líkur á því að verksmiðjan verði
reist aukast þannig stöðugt, en orku-
öflun gæti þó verið flöskuháls ef marka
má orðaskipti þingmanna. Jón Gunn-
arsson þingmaður Sjálfstæðisflokks og
formaður atvinnuveganefndar Alþing-
is skrifaði á laugardaginn á Facebook-
síðu sinni að verksmiðja Silicor þurfi
rafmagn. Því sé nú deilt um virkjana-
kosti í Neðri-Þjórsá. Færsla hans er
svohljóðandi: „Samhengi hlutanna
er að þessi verksmiðja þarf rafmagn,
þess vegna erum við í baráttu við
Bjarta Framtíð, Pírata, Samfylkingu
og Vinstri græn um byggingu virkj-
ana í Neðri - Þjórsá. Þau vilja koma í
veg fyrir þær framkvæmdir. Hér er um
að ræða eitt áhugaverðasta verkefni í
orkufrekum iðnaði sem rekið hefur á
fjörur okkar. Yfir 100 milljarða fjár-
festing, mengunarlaus orkufrekur iðn-
aður, útflutningsverðmæti sem jafnast
á við 2-2,5 makrílvertíðir og 450 vel
launuð störf. Um þetta snýst barátta
fyrir skynsamlegri nýtingu orkuauð-
linda okkar,“ skrifaði Jón.
Segir togstreitu um
ráðstöfun orkunnar
Guðbjartur Hannesson þingmaður
Samfylkingarinnar í Norðvesturkjör-
dæmi mótmælir þessum ummælum
Jóns Gunnarssonar. Bendir hann á að
e.t.v. sé ástæða þess að ekki hafi tek-
ist að útvega næga raforku sú að tog-
streita er milli núverandi stjórnarliða
og landshluta um skiptingu raforku
milli verkefna í Helguvík annars veg-
ar og Grundartanga hins vegar. Það
sé hin raunverulega ástæða þess að
enn vantar vilyrði fyrir 30 MW raf-
orku frá Landsvirkjun til að tryggja
nægjanlega orku fyrir Silicor miðað
við full afköst verksmiðjunnar.
Átelur vinnubrögð við
Rammaáætlun
„Ég vil benda á að stórkarlalegar til-
raunir Jóns Gunnarssonar formanns
atvinnuveganefndar til að sniðganga
lög um verndun- og orkunýtingar-
áætlun (rammaáætlun) hefur tafið alla
ákvarðanatöku um Hvammsvirkjun.
Ef það hefur áhrif á samninga Lands-
virkjunar við Silicor eða á fjárfesta þá
er ábyrgðin hans og fylgisveina hans.
Það er lítilmótlegt að kenna öðrum
um,“ segir Guðbjartur. Hann seg-
ir Samfylkinguna hafa lagt áherslu á
að fylgja þeim lögum og reglum sem
settar hafa verið um virkjanir og nýt-
ingu raforku og styður þá tillögu sem
Sigurður Ingi Jóhannsson umhverf-
isráðherra lagði fram í október síð-
astliðnum um Hvammsvirkjun. Sú
virkjun hafi hlotið endanlega um-
sögn verkefnisstjórnar rammaáætlun-
ar sem mælir með virkjuninni í nýt-
ingarflokk.
Guðbjartur segir að afgreiðsla
þeirrar tillögu hafi tafist í atvinnu-
veganefnd og ekki komið til annarr-
ar umræðu fyrr en 1. apríl 2015 og
þá með breytingartillögu nefndar-
innar um að setja fimm nýja virkjun-
arkosti í nýtingarflokk til viðbótar við
Hvammsvirkjun. „Slík hentistefna at-
vinnuveganefndar kastar af borðinu
rammaáætluninni, sem samþykkt var
samhljóða á Alþingi í maí 2011 og
átti að vera leið til varanlegra sátta
varðandi umfjöllun og ákvarðana-
töku um nýtingu og vernd orkuauð-
linda, og tefur málið. Ég hef frá upp-
hafi fylgst með og fagnað því að und-
irbúningsvinnu við framkvæmdir við
verksmiðju Silicor miðar vel áfram og
vonandi tekst að hrinda verkefninu í
framkvæmd í samræmi við fyrirliggj-
andi áætlanir,“ segir Guðbjartur.
Togstreita um
Thorsil eða Silicor
Guðbjartur segir að þeir sem standa
að Silicor verkefninu hafi lagt mikla
áherslu á umhverfisþáttinn og um-
hverfisvæna framleiðslu. Jafnframt
var lögð áhersla á að fjárfestar vildu
fjárfesta í fyrirtæki sem nýtti græna
orku og legðu áherslu á að fylgja öll-
um reglum og umhverfislögum á Ís-
landi og nyti aðeins þeirra almennu
ívilnanasamninga sem Alþingi sam-
þykkti. „Á kynningarfundum um
Silicor verkefnið og í viðtölum hef-
ur komið fram að ON (Orka náttúr-
unnar) getur þegar útvegað 35 MW
orku til verkefnisins og Landsvirkun
a.m.k. 15 MW. Þá vantar 30 MW
miðað við full afköst verksmiðjunnar
og engin ástæða til að ætla að þau fá-
ist ekki. Þegar lagt var af stað í verk-
efnið lágu ekki fyrir neinar ákvarðan-
ir um virkjanir í Neðri-Þjórsá og ljóst
hefur verið lengi að Landsvirkjun
mun ekki ganga frá bindandi samn-
ingum um raforkusölu við fyrirtæki
á næstu vikum.“ Guðbjartur bætir
við að við upphaf Silicor verkefnisins
höfðu ýmsir áhyggjur af að verkefnið
myndi gjalda afstöðu ákveðinna ráð-
herra og þingmanna, vegna þess að
lögð væri ofuráhersla á uppbyggingu
í Helguvík. „Nú er komin upp tog-
streita á milli Thorsil verkefnisins í
Helguvík og Silicor varðandi orku frá
Landsvirkjun. Rétt er að skoða um-
mæli Jóns Gunnarssonar í þessu sam-
hengi.“ Að endingu segir Guðbjart-
ur að landsmenn eigi að vinna saman
að því að ljúka þessu verkefni í þeim
anda sem fyrirtækið hefur sjálft lagt
áherslu á, þ.e. í samræmi við lög og
reglur hér á landi og í sátt við um-
hverfið.
mþh/mm
Síðastliðinn fimmtudag var unnið
að því í Stykkishólmshöfn að skipa
upp farmi af rörum sem eiga að
fara í virkjun sem verið er að reisa í
Svelgsá í Helgafellssveit á Snæfell-
nesi. Flutningaskipið Sunna kom
með þessi rör frá Póllandi. Virkjun-
arframkvæmdir við Svelgsá munu
nú komnar á fullt skrið en stað-
ið hefur til að hefja þær allar götur
síðan 2008. Virkjunin er umdeild
og framkvæmdin var á sínum tíma
kærð. Haustið 2012 kvað Skipulags-
stofnun upp þann úrskurð að allt
að 800 kílóvatta virkjun í Svelgsá
í Helgafellssveit væri ekki líkleg til
að hafa í för með sér umtalsverð
umhverfisáhrif og skyldi því ekki
háð mati á umhverfisáhrifum. Bæj-
aryfirvöld í Stykkishólmi hafa látið
í ljós þungar áhyggjur vegna virkj-
unarframkvæmdanna vegna ótta
við að þær skaði vatnsból Stykk-
ishólmsbúa sem eru í grennd við
virkjunina.
mþh
Rörum skipað upp til
virkjunar í Svelgsá
Rörunum skipað upp í Stykkishólmi á fimmtudaginn. Frekar rólegt er yfir fiskveiðum
stærri fiskiskipa á Vesturlandi þessa
dagana. Áhafnir margra eru farnar í
sumarfrí og hléið nýtt til að senda
skipin í slipp. Í lok síðustu viku
stóðu tvö fiskiskip af Snæfellsnesi
hlið við hlið í slippnum í Reykjavík.
Þetta voru Örvar SH sem gerður er
út af Hraðfrystistöð Hellissands í
Rifi og Hringur SH sem er gerður
út af GRun í Grundarfirði. Tjaldur
SH sem er í eigu KG fiskverkunar í
Rifi lá einnig við bryggju í Reykja-
víkurhöfn og beið þess að verða
tekinn upp. Öll þessi skip öfluðu
afar vel í vetur. Flotinn verður svo
væntanlega tilbúinn í ný átök í lok
sumars þegar nýtt kvótaár rennur í
garð með nýjum ævintýrum bæði
fyrir skip og áhafnir.
mþh
Vinnu-
þjarkar í
sumarfríi
Tjaldur SH þar sem hann beið við bryggju eftir því að komast upp.
Hringur SH og Örvar SH hlið við hlið í slippnum í Reykjavík.
Togstreita komin upp á yfirborðið
um ráðstöfun orku Landsvirkjunar
Horft yfir Hvalfjörð, úr Kjósinni, á iðnaðarsvæðið á Grundartanga. Nú virðist vera að
koma upp á yfirborðið togstreita um hvert orka Landsvirkjunar verði seld.
Ljósm. mm.
Silicor Materials og danska stór-
fyrirtækið MT Højgaard skrifuðu
á föstudag undir samning um bygg-
ingu 12,1 hektara verksmiðjuhúss
fyrir nýja sólarkísilverksmiðju Sili-
cor á Grundartanga. Samnings-
upphæðin nemur rétt tæplega 30
milljörðum íslenskra króna. Fram
kemur í frétt danska fyrirtækisins
að áformað sé að byggingarfram-
kvæmdir hefjist snemma næsta árs.
Framleiðsla á síðan að hefjast í verk-
smiðjunni 2018. Þar mun Silicor
framleiða 16.000 tonn af sólarkísil á
ári. Fyrr í vor skrifaði Silicor Materi-
als undir samning við þýska stórfyr-
irtækið SMS Siemag um smíði vél-
búnaðar í verksmiðjuna. Sá samning-
ur hljóðaði upp á tæplega 70 milljarða
íslenskra króna. Þá er búið að skrifa
undir samning um lóða- og hafnar-
mál á Grundartanga. Samningurinn
við MT Højgaard er skilyrtur því að
takist að ljúka fjármögnun uppbygg-
ingar Silicor á Íslandi, en þess jafn-
framt getið að nú þegar búið sé að
ljúka samningum um byggingu verk-
smiðjuhúss og tækjakaup, verði þess
ekki langt að bíða að hægt verði að
ljúka fjármögnun að fullu. mm
Skrifað undir 30 milljarða samning um
byggingu verksmiðjuhúss Silicor