Skessuhorn - 23.06.2015, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2015 15
Fjallkonur settu svip á þjóðhátíðardaginn
Á Akranesi var Brynja Valdimarsdóttir í hlutverki fjall-
konunnar og var sannast sagna stórglæsileg. Flutti hún
ljóðið Ísland eftir Jón Thoroddsen. Ljósm. akranes.is
Í Snæfellsbæ var Kolbrún Halla Guðjónsdóttir fjallkona
þetta árið. Ljósm. þa.
Í hlutverki fjallkonunnar á Reykhólum
var Jóhanna Ösp Einarsdóttir í Kapla-
skjóli í Fremri-Gufudal. Hún flutti tvö
ljóð sem standa héraðsfólki nærri.
Ljósm. Herdís Erna Matthíasdóttir.
Í Grundarfirði var Una Ýr Jörunds-
dóttir kennari við FSN í hlutverki
fjallkonunnar. Ljósm. tfk.
Í Hvalfjarðarsveit var hátíðar-
dagskrá í Heiðarskóla. Brynhildur
Stefánsdóttir á Ytri Hólmi var fjall-
konan að þessu sinni.
17. júní hér og þar um Vesturland
Skrúðganga í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Kaffiborðum var komið fyrir í Skallagrímsgarði í Borgarnesi
í tilefni hátíðarhaldanna. Ljósm. hlh.
Fjölmenni var við hátíðarhöldin í tilefni dagsins á Akratorgi.
Það var Ingþór Bergmann Þórhallsson formaður menn-
ingar- og safnanefndar sem setti dagskrána og Sigríður
Indriðadóttir forseti bæjarstjórnar flutti hátíðarræðuna.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri útnefndi Gyðu L Jónsdóttur
Wells bæjarlistamann Akraness 2015, nemendur úr dans-
stúdíoi Írisar sýndu dans og flutt var tónlistaratriði unga
fólksins undir stjórn Heiðrúnar Hámundadóttur og Samúels
Þorsteinssonar. Áður en formleg dagskrá hófst á torginu var
farið í skrúðgöngu. Ljósm. ale.
Frá 17. júní á Hvanneyri. Þessar ungu dömur skemmtu sér vel í Skjólbeltunum.
Ljósm. Bryndís Geirsdóttir.
Nýstúdentinn Vignir Snær Stefánsson
flutti ræðu í Snæfellsbæ. Ljósm. þa.
Á Hvanneyri var farið í skrúðgöngu frá Sverrisvelli og í Skjólbeltin, þar sem grillað
var og farið í leiki. Ljósm. Borgar Páll Bragason.
Kvenfélagið Katla og Hótel
Bjarkalundur stóðu að þjóðhátíð í
Reykhólahreppi 2015. Þar var meðal
annars dagskrá fyrir börnin, svo sem
hoppukastalar og andlitsmálun.
Ljósm. Herdís Erna Matthíasdóttir.
Á Akranesi var fjölbreytt dagskrá
í tilefni dagsins. Meðal annars var
boðið upp á andlitsmálun fyrir börnin
á Safnasvæðinu. Hér er Hafdís Rós
Skarphéðinsdóttir að fá íslenska
fánann á kinnarnar. Ljósm. ale.
Frá 17. júní í Búðardal. Þar var gott veður, skátar og Lions
stóðu fyrir skemmtun. Hér er marserað um göturnar í
skrúðgöngu. Ljósm. bae.
Í Snæfellsbæ var ýmislegt gert í tilefni dagsins. Meðal annars
Landsbankahlaup, andlitsmálun og skrúðganga. Á Þor-
grímspalli voru svo ýmis skemmtiatriði, ávarp fjallkonu og
helgistund. Þessar stúlkur voru meðal þeirra sem voru með
atriði á þjóðhátíðardaginn. Ljósm. þa.
Mikið fjör var á þjóðhátíðardaginn í Grundarfirði. Hér má sjá unga fólkið spreyta
sig í fótbolta á sápubornum plastvelli. Ljósm. tfk.
Börnin voru í hátíðarskapi í Búðardal. Ljósm. bae.