Skessuhorn


Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 201522 ÍA mætti FH í úrslitaleik 1. deild- ar kvenna í knattspyrnu laugardag- inn 12. september síðastliðinn. Lið- in höfðu þegar tryggt sér sæti í úr- valsdeild að ári en engu að síður var ljóst að bæði höfðu hug á að tryggja sér Íslandsmeistarabikarinn. Leikurinn var jafn frá fyrstu mín- útu og spennan jókst eftir því sem leið á. Það var ekki fyrr en á loka- mínútunni að Megan Dunnigan skoraði eftir góðan sprett og tryggði ÍA Íslandsmeistarabikarinn. kgk/ Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson. Sigur á FH í úrslitaleiknum Bryndís Rún Þórólfsdóttir snýr á miðjunni. Megan Dunnigan í þann mund að láta vaða á markið á lokamínútu leiksins. Skot hennar hafnaði í netinu og tryggði ÍA sigur í leiknum og Íslandsmeistarabikarinn. Eyrún Eiðsdóttir heldur boltanum frá varnarmanni FH. Leikmenn ÍA fanga marki Megan Dunnigan innilega. Á meðan FH-ingar voru sæmdir silfurpeningum biðu Skagakonur þess að fá bikarinn afhentan. Fyrirliðinn Unnur Ýr lyftir bikarnum. Þjálfararnir Þórður Þórðarson og Ágúst Valsson sáu um að útdeila kampavíninu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.