Skessuhorn


Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 39

Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2015 39 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Úrslitin þýða að Skagamenn sitja sem fyrr í níunda sæti deildarinnar, nú með 20 stig eftir 19 leiki, tveim- ur stigum á undan ÍBV í sætinu fyr- ir neðan og fimm stigum á undan Leikni í ellefta sætinu. Næst mæta Skagamenn Keflvík- ingum á útivelli, en Keflvíkingar eru langneðstir með aðeins sjö stig og eiga ekki lengur möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. kgk F ÍT O N / S ÍA FASTEIGNIR Í BORGARFIRÐI Húsið var byggt sem húsmæðraskóli 1944 og 1961 en nú er þar grunnskóli. Það er á þremur hæðum og samtals 1.825 ferm. Húsið er í góðu ástandi að utan og hluti þess hefur nýlega verið endurnýjaður að innan, þ.e. kennslustofur og kennararými. Í heild má því segja að húsið sé í góðu ástandi og henti undir ýmsa starfsemi svo sem ferðaþjónustu. Verð: 210.000.000 191 ferm. rými (salur, eldhús, snyrtingar og geymsla) á efstu hæð í fjölbýlishúsi fyrir 60 ára og eldri og/eða öryrkja. Húsnæðið verður selt með þeirri kvöð að því verði breytt í sambærilegar íbúðir og fyrir eru í húsinu og uppfylli sömu kröfur m.a. hvað varðar aðgengi. Verð: 30.000.000 BORGARBRAUT 65a, Borgarnesi VARMALAND, húsmæðraskóli Allar nánari upplýsingar á skrifstofu. LIT ehf. Ingi Tryggvason hrl. löggiltur fasteignasali Borgarbraut 61, 310 Borgarnes s. 437 1700, gsm 860 2181 netfang: ingi@lit.is - veffang: lit.is SK ES SU H O R N 2 01 5 1219. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 22. september kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Sjálfstæðisflokkurinn í Gamla Kaupfélaginu, laugardaginn • 19. september kl. 10.30.• Fr• jálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 21. september kl. 20.00. Björt fr• amtíð í Vitakaffi, Stillholti 16-18, mánudaginn 21. september kl. 20.00. Samfylkin• gin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 19. september kl. 11.00. SK ES SU H O R N 2 01 5 Bæjarstjórnarfundur Skagastúlkurnar Aníta Sól Ágústs- dóttir og Bryndís Rún Þórólfsdótt- ir hafa verið valdar í hóp U19 ára landsliðs Ísland sem fer til Sviss dagana 15.-20. september næst- komandi og tekur þátt í undan- keppni Evrópumótsins 2016. Aníta og Bryndís eru báðar fædd- ar árið 1997 en hafa þrátt fyrir ung- an aldur verið fastamenn í liði ÍA í sumar. Þær léku alla leiki liðsins í 1. deildinni sem og í úrslitakeppninni. Báðar léku þær 90 mínútur þegar ÍA tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni þrátt fyrir 2-1 tap á móti Grindavík miðvikudaginn 9. september síð- astliðinn. Í þessari umferð undankeppni Evrópumótsins verður leikið í ell- efu fjögurra manna riðlum og er Ísland í riðli með Georgíumönn- um, Grikkjum og Svisslendingum. Tvö efstu liðin úr hverjum riðli fara sjálfkrafa áfram í næstu umferð undankeppninnar sem leikin verð- ur næsta vor, 5.-10 apríl. Eftir síð- ari umferð undankeppninnar kem- ur í ljós hvaða átta lið tryggja sér þátt í lokakeppninni sem fer fram í Slóvakíu 19.-31 júlí. kgk Aníta og Bryndís í U19 ára landsliðið Aníta (t.v.) og Bryndís. Laugardaginn 12. september síð- astliðinn var síðari hluti vinabæj- arkeppni Golfklúbbsins Mostra í Stykkishólmi og Golfklúbbs- ins Vestarr leikinn á Báravelli við Grundarfjörð. Leiknar voru þrjár umferð- ir með Texas Scramble fyrirkomu- lagi. Liðsmenn GMS höfðu fjög- urra vinninga forskot á Vestarr eftir fyrri umferðina sem leikin var í vor. Liðsmenn Vestarr gerðu það for- skot hins vegar að engu og höfðu sigur á heimavelli. Bikarinn verður því geymdur í Grundarfirði í vetur. kgk/sk Grundfirðingar sigruðu í vinabæjarkeppni í golfi Björgvin Ragnarsson, liðsstjóri Mostra, afhendir Garðari Svanssyni, formanni Vestarr, bikarinn veglega. Ljósm. sk. Hauststarf íþróttafélaga á landinu er komið á fulla ferð eftir sumarfrí. Starfið fer vel af stað á Akranesi og hefur skráning iðkenda hjá flestum aðildarfélögum ÍA gengið vonum framar. Í nýju fréttabréfi formanns ÍA nefnir Sigurður Arnar Sigurðs- son sem dæmi að fullt er hjá yngstu hópum Sundfélags Akraness og hjá Fimleikafélagi Akraness. Þá er skráning hjá Knattspyrnufélagi ÍA með betra móti og aldrei hafa verið fleiri á upphafsæfingum hjá Hnefa- leikafélaginu. Sem fyrr er því bar- ist um hvern æfingatíma í íþrótta- mannvirkjum bæjarins. Skráning á hið nýja afreksíþrótta- svið í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi gekk einnig vel, að sögn Sigurðar Arnar, en brautin er rek- in í samvinnu við ÍA. Alls skráðu fimmtíu nemendur sig á braut- ina og skiptast þeir á sex mismun- andi greinar; badminton, fimleika, knattspyrnu, körfubolta, keilu og sund. Til stendur að fjölga grein- unum þegar fram líða stundir, sam- hliða því að námsmönnum fjölgi á brautinni. grþ Margir vilja æfa með ÍA Fullt er hjá yngstu hópum Sundfélags Akraness og hjá Fimleikafélaginu. ÍA tók á móti erkifjendunum úr KR í 19. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu á Akranesvelli á sunnu- daginn. Fyrir leikinn var ÍA í níunda sæti deildarinnar með 19 stig úr 18 leikjum en KR var í því þriðja með 35 stig. Liðin skildu jöfn þegar þau mættust í Frostaskjólinu fyrr í sum- ar, 1-1. Leikurinn á sunnudaginn fór nokkuð rólega af stað. Báðum liðum gekk ágætlega að spila boltanum en KR-ingar voru heldur beittari fram á við. Allar aðgerðir þeirra strönd- uðu þó ýmist á vörn ÍA eða Árna Snæ í markinu. Árni spilaði framarlega í leiknum og gerði nokkrum sinnum vel og stöðvaði sóknir KR-inga utan vítateigsins. Besta færi fyrri hálfleiks fékk Ás- geir Marteinsson eftir skyndisókn. Hann fékk boltann úti á vinstri kanti, lék á varnarmann en skaut yfir mark- ið. Þrátt fyrir ágæta spilamennsku og sæmilega sóknartilburði tókst hvor- ugu liðinu að skapa sér virkilega góð marktækifæri og alltaf vantaði herslu- muninn. Staðan var því markalaus þegar flautað var til hálfleiks. Í síðari hálfleik var það sama uppi á teningnum. Ágæt spilamennska liðanna úti á velli, hraðinn í leiknum jókst og liðin sóttu á báða bóga. Allt- af vantaði þó að reka endahnútinn á sóknirnar. Besta færi Skagamann í síðari hálf- leik fékk Garðar Gunnlaugsson. Ingimar Elí Hlynsson átti þá góða fyrirgjöf, djúpt af hægri kanti. Garð- ar reis hátt í teignum en náði ekki að stýra skallanum framhjá Stefáni Loga í marki KR-inga. Þegar komið var fram í uppbót- artíma gerðist umdeilt atvik. Skaga- menn unnu tæklingu á miðjunni, sendu boltann fram á varamanninn Tryggva Haraldsson og Skagamenn komnir tveir á móti einum. Dóm- arinn stöðvaði hins vegar leikinn, spjaldaði leikmann KR fyrir leikara- skap og gaf ÍA aukaspyrnu. Dómur- inn var hinn undarlegasti og Skaga- menn, innan vallar sem utan, æfir. Ekkert kom upp úr aukaspyrnunni og leiknum lauk með markalausu jafntefli. Jafnt gegn erkifjendunum í KR Árni Snær Ólafsson, markvörður ÍA, var ófeiminn að koma út úr marki sínu í leiknum og stöðvaði þannig nokkrar sóknir KR-inga. Hér vinnur hann boltann af Jacob Schoop. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.