Skessuhorn


Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 32

Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 201532 Í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit er hefð fyrir því að allir nemend- ur skólans taki þátt í haustferðum á vegum skólans. Haustferðir eru hluti af útinámi skólans en í Heið- arskóla er lögð áhersla á að nám fari ekki einungis fram í skólastof- um heldur líka úti á skólalóðinni sem og í náttúrulegu umhverfi. Þessi nálgun auðgar nám barnanna og getur verið uppspretta nýrra hugmynda og leikja. Einnig er þetta góð leið til að þjappa hópn- um saman eftir langt sumarfrí. Hvert haust er boðið upp á þrjár ferðir, eina fyrir hvert aldursstig skólans. Unglingastigið fór í hjóla- og gistiferð í Skorradal Fimmtudaginn 27. ágúst fóru nemendur í 8. - 10. bekk Heið- arskóla í hjólaferð. Hjólað var frá skólanum í Skátaskálann í Skorra- dal. Hópurinn gisti í skálanum eina nótt. Hjólaferðin gekk von- um framar og voru allir sáttir og sælir, bæði nemendur og kenn- arar. Ferðin að Skátaskálanum gekk áfallalaust og fór hver á sín- um hraða, sumir jafnvel löbbuðu megnið af leiðinni því mótvind- urinn var töluverður (sá hópur ákvað að kalla sig Afturgöngurn- ar, því hann gekk aftast). Stoppað var á Þórisstöðum þar sem hópur- inn grillaði pylsur og hvíldi sig að- eins fyrir seinni hluta ferðarinnar. Hópnum var skutlað upp Dragann og „rúllaði“ svo niður nánast alla leið að Skátaskálanum. Á meðan Grillmaster 2000 undirbjó grillið fóru nokkrir ofurhugar og böðuðu sig í Skorradalsvatni. Grillmaster- inn bauð upp á dýrindis lamba- kjöt og krakkarnir borðuðu eins og þeir gátu í sig látið. Um kvöld- ið var hin víðfræga spurninga- keppni Gettu betur í vetur og voru það Hjörtun sem höfðu betur að þessu sinni. Heimferðin var mjög skemmtileg þar sem vindurinn og brekkurnar sáu að mestu leyti um að koma fólkinu heim. Þessi ferð var frábær í alla staði og krakkarn- ir yndislegir, hjálpsamir og glaðir. Miðstigið gekk á Akrafjall Nemendur miðstigs skólans fóru í gönguferð upp í Akrafjall. Gengið var upp frá vatnsveitu Akurnesinga og upp eftir Berjadalsánni. Ætlun- in var að fara upp á Háahnúk en vegna vindáttar var farið í hina átt- ina og alveg upp að Guðfinnuþúfu sem er í tæplega 400 metra hæð. Allir komust upp og skrifuðu nöfn sín í gestabók sem þar er og borð- uðu nestið sitt í blíðskaparveðri. Fallegt útsýni er af Guðfinnuþúfu og vel var hægt að dást að því í sig- urvímunni. Síðan var haldið niður af fjallinu og að bílastæðunum en þar voru pylsur grillaðar, klifrað í klettum og spjallað. Rútan kom svo rétt fyrir klukkan tvö og flutti hópinn aftur í skólann í tæka tíð fyrir heimferð. Yngsta stigið fór að Þórisstöðum Miðvikudaginn 26. ágúst fór yngsta stigið í haustferðina sína. Að þessu sinni var haldið að Þór- isstöðum en þar tók húsráðand- inn hún Alla vel á móti hópnum. Alla vann í Heiðarskóla síðasta vetur og var því gaman fyrir börn og starfsfólk að hitta hana aftur. Á Þórisstöðum var ýmis afþrey- ing í boði enda er þar tekið á móti fjölda ferðamanna árið um kring. Þar hefur til dæmis gömlum golf- velli verið breytt í fótboltagolfvöll og hlökkuðu mörg barnanna til þess að prófa fótboltagolfið. Þau höfðu líka mikinn áhuga á að hitta dýrin á bænum og eftir talsverða leit fundu þau bæði hana og hæn- ur, heimalninga og heimiliskött- inn hana Guðnýju. Börnin höfðu líka tekið með sér lítil ílát, þau fundu prýðis berjaland og náðu sum hver að fylla ílátin sín af góm- sætum berjum. Veðurbarðir ferða- langar fengu síðan grillaðar pylsur í hádegisverð og hafði hópurinn það notalegt í fjárhúsinu á bænum enda þó nokkuð rok þennan dag. Eftir vel heppnaða og skemmti- lega vettvangsferð var haldið aftur heim í skóla. -frétt frá Heiðarskóla Þættirnir Tónahlaup hefja göngu sína á RÚV á miðvikudagskvöld- ið kl. 20.05. Þættirnir verða sex talsins og fékk þáttastjórnandinn Jónas Sen sex grunnskóla og jafn marga tónlistarmenn til liðs við sig. Tónlistarmennirnir fengu úthlut- að skólum og sömdu eitt lag fyrir skólann sem þeir afhentu nokkr- um völdum nemendum. Brekku- bæjarskóli á Akranesi er einn þess- ara skóla og var það Ingó Veður- guð sem sótti skólann heim. Hann samdi lagið „Loggaðu þig út“ sem hópur nemenda úr Brekkubæjar- skóla æfði og útsetti og á endanum fóru krakkarnir með lagið fullæft til upptöku í sjónvarpssal. Fram- laga Skagakrakkanna verður í fyrsta þættinum sem sýnt verður á RUV í kvöld, miðvikudaginn 16. sept- ember, og hefst útsending klukk- an 20:05. mm Það var mikið líf og fjör hjá börn- unum í 1. til 4. bekk í Grunnskóla Snæfellsbæjar síðastliðinn mánu- dag. Þau hófu daginn á því að hittast á sal skólans á Hellissandi þar sem verkefninu Göngum í skólann var formlega hleypt af stokkunum en skólinn tekur nú þátt í fyrsta skipti. Að því loknu gengu börnin ásamt kennurum og starfsfólki saman upp á Reynisvöll þar sem þau tók þátt í Norræna skólahlaupinu. Létu þau haustveðrið ekkert á sig fá og lögðu sig öll fram í hlaupið og var gleðin og ánægjan í fyrirrúmi. Þegar þau höfðu lokið við að hlaupa var geng- ið aftur í skólann þar sem barnanna biðu ávaxtapinnar. þa Nemandi yngsta stigs á berjamó. Haustferðir nemenda Heiðarskóla Norrænt skólahlaup og verkefnið Göngum í skólann Krakkar úr Brekkubæjarskóla í Tónahlaupi á RUV Hérna er hluti af hjólreiðarfólkinu, þreytt en ánægt við skátaskálann í Skorradal. Miðstigshópurinn saman kominn á toppi Akrafjalls. Miðstigsnemendur virða fyrir sér útsýnið af Akrafjalli.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.