Skessuhorn


Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2015 11 Undanfarna daga hefur laxveiðin gengið frábærlega í ám landsins. Nú stefnir víða í afburðasumar og met falla. „Bæði heildartalan og vikuveið- in eru með því besta sem sést hef- ur síðustu tíu árin. Það er einung- is árið 2008 sem skilar betri árangri,“ skrifaði Þorsteinn á Skálpastöðum á vef Landssambands veiðifélaga um miðja síðustu viku. Þorsteinn segir að veiðin í fyrstu viku september hafi verið sú mesta á þessum tíma árs úr sjálfbærum ám síðan LV fór að halda utan um veiðitölur. Úr Dölum Talsverð úrkoma síðustu daga hefur heldur betur hleypt lífi í veiðina og haustveiðin stefnir í að verða ágæt. „Við fengum fína laxveiði, 12 laxa en lítið af bleikju. Hvolsáin er komin vel yfir 100 laxa,“ sagði Siggi Kalla sem var á veiðislóðum í Hvolsá og Stað- arhólsá fyrir skömmu. Eitthvað hefur veiðst af bleikju þarna, eða í kringum 150 stykki, en sú veiði hefur reyndar oft verið meiri. Búðardalsá er kominn með 475 laxa og veiðimenn hafa verið að fá fína veiði í henni. Lítið hefur frést af Flekkudalsánni. Einn og einn lax hefur verið að tog- ast upp úr ánni. Fáskrúð í Dölum hefur gefið 180 laxa og veiðimenn sem voru þar fyrir skömmu fengu sjö laxa. „Þetta er bara mok. Áin hefur gef- ið 1300 laxa en var ekki góð í fyrra. Það er núna fiskur um alla á,“ sagði Haraldur Eiríksson þegar við spurð- um um Laxá í Dölum, sem hefur heldur betur gefið vel í sumar. Hollin hafa verið að gefa yfir 100 laxa. Ein- ungis er veitt á flugu í Laxá. „Það gengur vel í Haukadalsá, en áin hefur gefið um 600 laxa og það er víða fiskur í henni,“ sagði Ari Hermóður Jafetsson um stöðuna í Haukadalsánni. „Það eru komnir næstum 300 lax- ar úr Miðá og eitthvað af bleikju,“ sögðu veiðimenn sem voru að koma úr ánni fyrir skömmu og það er víða fiskur. „Við fengum vel í soðið,“ bættu þeir við. „Veiðin er búin að ganga vel hjá okkur í sumar. Laxveiðin verið góð og einnig silungurinn. Einn veiði- maður er búinn að veiða yfir 20 laxa í ánni,“ sagði Níels Sigurður Ol- geirsson á Seljalandi í Hörðudal um Hörðudalsána. Lítið hefur frést af Dunká eftir að svissneski veiðimaðurinn Doppler tók við henni og það sama má segja um Álftá á Mýrum en hann er einn- ig með hana. Veiðimaður átti leið framhjá Álftá fyrir skömmu, taldi 60 laxa í einum hylnum. Veiðimenn voru hvergi sjáanlegir. Gott víða á Snæfellsnesi og í Borgarfirði Straumfjarðará er að komast í 500 laxa sem verður að teljast mjög gott. „Veiðin hefur góð í Haffjarðará og áin komin 1.640 laxa,“ sagði Einar Sigfússon. Hann hefur einnig annast sölu laxveiðileyfa í Norðurá í Borg- arfirði en þar er lokatalan í sum- ar 2.886 laxar sem verður að teljast prýðilegt. Góður gangur hefur verið í Hít- ará og er áin komin með 1.240 laxa. Bjarni Júlíusson og fjölskylda voru þar um helgina og veiddu vel. Mögu- leiki er að veiðimet falli í Hítará eins og víðar á svæðinu. „Langá er að komast í 2.190 laxa, sem er frábær veiði,“ sagði Ari Her- móður Jafetsson framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur um Langána. Áin hefur verið góð frá fyrsta degi í sumar. Gljúfurá í Borgarfirði hefur verið frábær í sumar og met frá gamalli tíð er í hættu. Áin hefur núna gefið 570 laxa, að sögn Sigurðar Skúla Bárðar- sonar sem er í árnefnd Gljúfurár. „Áin hefur gefið 2.280 laxa,“ sagði Aðalsteinn Pétursson leiðsögumað- ur við Þverá í Borgarfirði, þegar við spurðum um ána sem hefur heldur betur gefið vel af laxi í sumar þrátt fyrir vatnsleysi stóran hluta sum- ars. Lítið vatn varð reyndar til þess að veiðin varð töluvert minni í Þverá og laxinn gekk seinna í Kjarará. Auk- ið rennsli breytti því og nú veiðist lax um alla Kjarará upp í efstu veiðistaði á Gilsbakkaeyrum og þar fyrir ofan. Flókadalsá í Borgarfirði hefur gef- ið 711 laxa á tvær stangir og hafa veiðimenn verið að fá fína veiði þar að undanförnu. Reykjadalsáin hefur ekki ver- ið síðri en kannski aðeins færri lax- ar. „Reykjadalsá hefur gefið 260 laxa,“ sagði Óskar Færseth og bætti við: „Sigmar og félagar voru fyrir skömmu og fengu 21 lax og þar af 19 á fluguna.“ Grímsá í Borgarfirði er kom- in með 1.140 laxa á land og eins og fleiri ár á svæðinu bætir hún sig um helming frá fyrra ári. ,,Veiðin hefur góð í Grímsá,“ sagði Haraldur Ei- ríksson hjá Hreggnasa. „Við erum að komast í 940 laxa,“ sagði Ólafur Johnson þegar við spurðum um Laxá í Leirársveit sem hefur verið á góðu róli í allt sum- ar. „Gætum farið yfir þúsund laxana áður en yfir lýkur,“ sagði Ólafur enn fremur. gb Rigningarnar hleyptu auknu lífi í annars gott laxveiðisumar Veiðimaður með nýgenginn lax úr Þverá í Borgarfirði fyrr í sumar. Ljósm. Aðalsteinn. Kári Jónsson með fínar bleikjur úr lóninu í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum. Ljósm. gb. Borgarbyggð auglýsir lausar eftirfarandi stöður: SÁLFRÆÐINGUR Starfshlutfall er 50 – 100%. Verkefni og ábyrgðarsvið • Forvarnarstarf til að stuðla að velferð barna og ungmenna • Snemmtækt mat á stöðu nemenda, greining og ráðgjöf • Ráðgjöf til foreldra og barna • Stuðningur við starfsemi og starfshætti í skólum með ráðgjöf og fræðslu • Greining og meðferð vegna barnaverndarmála • Önnur teymisvinna á fjölskyldusviði Hæfniskröfur • Löggildur sálfræðingur • Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu starfi • Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum TALMEINAFRÆÐINGUR Starfshlutfall er 50 – 100%. Verkefni og ábyrgðarsvið • Fagleg forysta í málþroska og læsi barna og ungmenna • Snemmtækt mat á stöðu nemenda, ráðgjöf og fræðsla • Ráðgjöf til foreldra og barna • Stuðningur við starfsemi og starfshætti í skólum með ráðgjöf og fræðslu • Önnur teymisvinna á fjölskyldusviði Hæfniskröfur • Löggildur talmeinafræðingur • Hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu starfi • Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. DAGFORELDRAR Verkefni og ábyrgðarsvið • Starfa sem sjálfstæðir verktakar með starfsleyfi og eftirlit frá Borgarbyggð • Veita börnum góða umönnun, öryggi og hlýju • Sækja grunnnámskeið fyrir dagforeldra • Taka þátt í skyndihjálparnámskeiðum og fræðslu sem boðið er upp á hverju sinni Hæfniskröfur • Skal ekki vera yngri en 20 ára • Heilsuhraustur • Rík ábyrgðartilfinning • Aðgangur að húsnæði sem uppfyllir þau skilyrði sem sett eru fram í reglugerð • Aðgangur að útileiksvæði Möguleiki er á húsnæði fyrir dagforeldra sem vilja starfa á Bifröst. Niðurgreiðslur og gjöld foreldra eru samkvæmt núgildandi reglum um niðurgreiðslur til dagforeldra í Borgarbyggð. UMSÓKNAFRESTUR ER TIL OG MEÐ 25. SEPTEMBER 2015. Upplýsingar um störfin veitir Anna Magnea Hreinsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, netfang: annamagnea@borgarbyggd.is og í síma 840 1522. S K E S S U H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.