Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 201512
Grímshúsið í Brákarey Borgarnesi
hefur fengið andlitslyftingu í sum-
ar. Búið er að skipta um alla glugga
í húsinu og byrjað að einangra með
steinull og klæða húsið með báru-
járni að utan. Að sögn Ámunda
Sigurðssonar, eins þeirra sem hef-
ur unnið að endurbótunum, á að
ljúka við að einangra suðaustur- og
norðausturhliðar hússins fyrir vet-
urinn og láta hinar hliðarnar bíða
betri tíma.
Grímshúsið stendur við höfn-
ina í Borgarnesi. Húsið er stein-
steypt, upphaflega á tveimur hæð-
um, 168 fermetrar að grunnfleti og
959 rúmmetrar. Það var útgerðar-
félagið Grímur hf. sem lét byggja
húsið árið 1942. Að framkvæmdun-
um stendur Grímshússfélagið sem
stofnað var gagngert haustið 2011
til þess að vinna að endurbótum á
húsinu.
þg
Grímshúsið tekur sífellt
á sig frísklegra yfirbragð
Ýmsar leiðir eru færar til að kenna
börnum stærðfræði með skilningi
og raunhæfum dæmum. Meðal ann-
ars má nota kubba, eins og á með-
fygljandi mynd, til að raða saman
ýmsu sem síðan er hægt að marg-
falda, leggja saman, deila eða draga
frá. Fé í dilkum er síst verra en hvað
annað. Börnin í 1.-4. bekk Grunn-
skóla Borgarfjarðar á Kleppjárns-
reykjum voru í stærðfræði hjá Sig-
rúnu Hjartardóttur kennara sín-
um í liðinni viku. Saman byggðu
þau fjárrétt með öllu tilheyrandi.
Þá gátu börnin úr sveitinni frætt
þau úr þéttbýlinu um ýmislegt sem
sveitastörfum tilheyrir. Auk þessar-
ar fjárréttar var byggð fjárgirðing og
meira að segja réttarskúr, því kon-
urnar í kvenfélaginu þurftu aðstöðu
til að selja flatkökur með hangikjöti!
Myndin á vel við núna því tími leita
og rétta stendur sem hæst. Gang-
afólki, bændum og búsmala er ósk-
að velfarnaðar í verkefnunum sem
framundan eru. mm
Lært með réttunum
Þær Anna Berta Heimisdóttir, Kar-
en Þórisdóttir og Tinna Guðrún
Ívarsdóttir, nemendur í 10. bekk í
Grundaskóla á Akranesi, færðu dag-
vist skólans fullbúið dúkkuhús að
gjöf nú í upphafi skólaárs. Húsið
hönnuðu þær undir leiðsögn Krist-
ins Guðbrandssonar smíðakennara
og smíðuðu svo sjálfar. „Við ákváð-
um að gera þetta í smíði og flettum
svo í gegnum alls konar blöð til að fá
hugmyndir. Þetta var alls ekki erfitt,
nema að gera vaskinn og baðið - það
var mjög erfitt,“ segja stelpurnar í
samtali við Skessuhorn. Húsinu skil-
uðu þær fullbúnu, með öllu tilheyr-
andi. „Við saumuðum sængurver og
handklæði, hengdum upp myndir
og settum allt sem okkur datt í hug
inn í húsið. Við vorum ekkert að
drífa okkur með þetta, það tók okk-
ur alveg heila önn að klára húsið,“
segja stelpurnar. Skóladagvistin átti
ekkert slíkt hús fyrir og því ljóst að
yngri nemendur skólans geta notið
þessa verkefnis stúlknanna. grþ
Smíðuðu dúkkuhús
fyrir yngri nemendur
Landsþing Rótarý á Íslandi,
umdæmis 1360, verður haldið í
Borgarnesi helgina 9.-10 október
næstkomandi. Hefð er fyrir því að
þingið haldi sá klúbbur þaðan sem
umdæmisstjórinn kemur hverju
sinni. Magnús B Jónsson á Hvann-
eyri var eins og kunnugt er fyrr á
þessu ári settur í embætti forseta
umdæmisins 1360. Umdæmisþingið
markar að þessu sinni ákveðin tíma-
mót því það verður númer sjötíu í
röð þinga Rótarý á Íslandi. Þing-
haldið fer fram á Hótel Borgarnesi
en auk þess verður farið í skoðun-
arferðir um Borgarfjörð. Þórir Páll
Guðjónsson er formaður undirbún-
ingsnefndar og félagi í Rótarýklúbbi
Borgarness.
„Vinna við undirbúning þing-
haldsins hófst fyrir um tveimur
árum þegar kynnt var á Selfossi að
Magnús B Jónsson yrði umdæm-
isstjóri starfsárið 2015-2016. Skip-
uð var undirbúningsnefnd og auk
hennar átta undirnefndir sem all-
ar hafa unnið ötullega að undirbún-
ingi,“ segir Þórir Páll. „Það starf
hefur allt gengið vonum framar og
meðal annars hefur ritnefnd okk-
ar nú fengið úr prentun 52 síðna
kynningarblað, með hinni ljóðrænu
skírskotun til héraðsins; „Kyssti
mig sól.“ Blaðinu verður dreift til
Rótarýklúbba um allt land og auk
þess borið inn á öll heimili á næstu
dögum á starfssvæði Rótarýklúbbs
Borgarness. Þar geta íbúar lesið sig
til um stiklur úr starfi klúbbsins,
gildi hreyfingarinnar og væntanlegt
umdæmisþing í Borgarnesi.“
Sjálft þinghaldið hefst föstudag-
inn 9. október með skráningu, mót-
töku og farið verður í kynnisferð-
ir. „Þema okkar er „menntun, saga,
menning“ og tekur dagskrá um-
dæmisþingsins og blaðsins okk-
ar mið af því. Við kynnum sögu og
sérstöðu héraðsins og fáum til liðs
við okkur tónlistarfólk til að krydda
dagskrána. Á laugardeginum verður
hið eiginlega þinghald og fara mak-
ar þingfulltrúa í kynnisferð á með-
an. Á laugardagskvöldinu verður svo
hátíðarkvöldverður þar sem Gísli
Einarsson verður veislustjóri. Við
eigum von á 140-150 gestum og þar
af erlendum fulltrúum Rotary Inter-
national og frá Norðurlöndunum.
Við vonum að okkur takist vel upp
í hlutverki gestgjafans og að þing-
ið verði Borgfirðingum öllum til
sóma,“ segir Þórir Páll Guðjónsson.
mm
Halda umdæmisþing
Rótarý í Borgarnesi
Forsíða kynnningarblaðs Rótarýklúbbs Borgarness sem á næstu dögum verður
dreift inn á öll heimili á starfssvæði klúbbsins.
Sigurbrandur Jakobsson hefur tek-
ið við sem útibússtjóri Fiskmark-
aðs Íslands á Akranesi. Hætta var á
að markaðurinn myndi loka á vor-
mánuðum vegna veiks rekstrar-
grundvallar sem stafar af því hve
lítið af fiski er selt í gegnum hann á
ársgrundvelli. Samkomulag var svo
gert milli Fiskmarkaðarins, Faxa-
flóahafna og Akraneskaupstað-
ar um samnýtingu bæði á húsnæði
og starfskrafti og var markaðnum
því haldið opnum og Sigurbrandur
ráðinn í framhaldinu. Sigurbrand-
ur er Vestlendingur í húð og hár,
alinn upp í Stykkishólmi. Hann er
ættaður frá Galtará í Reykhólasveit
og frá Öxney í Skógarstrandar-
hreppi, í Suðureyjaklasanum aust-
an við Stykkishólm. Rannveig Jó-
hannsdóttir eiginkona hans er aftur
á móti Akurnesingur. „Við bjugg-
um áður á Akureyri, þar sem ég
fékk ágætis vinnu. Fjölskyldan að-
lagaðist hins vegar ekki alveg eins
vel og langaði heim á Skagann. Það
var því alveg frábært að fá þetta
starf, þá höfðum við góða ástæðu til
að geta flutt hingað,“ segir Sigur-
brandur í samtali við blaðamann.
Alltaf eitthvað
framundan
Hjónin eiga stóra fjölskyldu og eru
börnin fimm talsins. Það er oft og
tíðum fjör á heimilinu enda eru
börnin ung, það yngsta eins árs en
elsta er þrettán ára. Sigurbrand-
ur segir alla vera ánægða með að
vera komna suður á Akranes. „Fjöl-
skylda konunnar er búsett hér
meira eða minna og hér á Vestur-
landi liggja ræturnar. Flutningarn-
ir gengu eins og í sögu, við fengum
heljarinnar raðhús sem hentar fjöl-
skyldunni mjög vel.“
Á Akureyri starfaði Sigurbrandur
sem hafnarvörður hjá Akureyrar-
höfn og líkaði vel. „Ég er með bæði
vélstjóra- og skipstjórnarréttindi
og var til að byrja með vélstjóri á
hafnsögubátunum í höfninni á Ak-
ureyri, síðar skipstjóri.“ Hann tók
við starfi sem útibússtjóri á Akra-
nesi nú um mánaðamótin og er því
enn að kynnast starfinu sem leggst
vel í hann. „Það er reyndar frekar
lítið magn sem fer hér í gegn á köfl-
um en talsvert á strandveiðitíman-
um. Það var full ástæða til að halda
þessu opnu, það er alltaf eitthvað
framundan,“ segir Sigurbrandur að
endingu.
grþ
Nýr útibússtjóri Fiskmarkaðs
Íslands á Akranesi
Sigurbrandur Jakobsson er útibússtjóri Fiskmarkaðs Íslands á Akranesi.
Umdæmisþing Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi
haldið í Borgarnesi 9. - 10. október 2015
Kyssti
mig sól