Skessuhorn - 04.11.2015, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 20158
Þokkalega veiðist
á krókana
Smábátar sem stunda veiðar með
línu og handfærum, svokallaðir
krókaaflamarksbátar, hafa veitt vel
í haust á landsvísu, samanborið við
sama tíma í fyrra. Þorsk- og ýsu-
afli þeirra er kominn yfir 10 þús-
und tonn sem er rúmum tvö þús-
und tonnum meira en á sama tíma
í fyrra. Alls höfðu þeir á mánu-
dag veitt 2.540 tonn af ýsu og
7.853 tonn af þorski. Aukningin
er nokkru meiri í ýsunni eða 35%
á móti 24% í þorskinum. Þetta
kemur fram á heimasíðu Lands-
sambands smábátaeigenda. -mþh
Rithöfunda-
sambandið
athugar varnir
LANDIÐ: Rithöfundasamband
Íslands hefur falið lögfræðingi
sínum að athuga hvort hægt sé
að innleiða í samninga rithöfunda
við útgefendur einhver ákvæði
sem geta varið rétt höfunda ef for-
lög fara í þrot. Tilefnið er þegar
bókaútgáfan Uppheimar á Akra-
nesi hætti störfum á síðasta ári.
„Nýlegt dæmi frá Uppheimum
er nöturleg saga þar sem höfund-
ar standa berskjaldaðir á meðan
banki heldur útgáfunni gangandi
til að fá upp í skuldir. Höfundar
fara aftast í röðina og fá ekki greitt
fyrir verk sín á meðan verið er að
selja þau,“ segir í skýrslu frá Krist-
ínu Helgu Gunnarsdóttur for-
manni Rithöfundasambandsins til
félagsmanna.
-mþh
Loðnukvóta
úthlutað
LANDIÐ: Fiskistofa hefur út-
hlutað loðnukvóta haustsins til
íslenskra skipa. Alls koma 2.154
tonn til úthlutunar og deilast á 22
skip. Mestan kvóta fær Venus NS,
hið nýja og fullkomna skip HB
Granda. Kvóti þess er 201 tonn.
Næst á eftir er Vilhelm Þorsteins-
son EA með 198 tonn. Íslensku
skipin fá hvert um sig útlhlutað
frá 11 til 210 tonni. Loðnukvót-
inn er samkvæmt þessu hverf-
andi nú í vetrarbyrjun. Ástæðan
er sú að afar lítið af loðnu fannst í
leiðangri Hafrannsóknarstofnun-
ar fyrr í haust. Til stendur að fara
í nýjan loðnuleiðangur nú í nóv-
embermánuði til að freista þess að
finna meira af loðnu.
-mþh
Skil á gögnum um
búfjáreign
LANDIÐ: Matvælastofnun hefur
sent öllum þeim sem skráðir eru
eigendur eða umráðamenn bú-
fjár í gagnagrunninum Bústofni
bréf þar sem minnt er á að sam-
kvæmt lögum um búfjárhald nr.
38/2013 skulu umráðamenn bú-
fjár skila árlegri haustskýrslu fyrir
20. nóvember nk. um búfjáreign,
fóður og landstærð. Með nýjum
lögum um búfjárhald var heimild
veitt til að eingöngu verði um raf-
ræn skil að ræða og hefur því ver-
ið horfið frá notkun haustskýrslu
eyðublaða og þess í stað tekin upp
rafræn skil á vefslóðinni www.bu-
stofn.is. Sérstaklega er minnt á að
hestar teljast til búfjár og skulu
eigendur hrossa ganga frá haust-
skýrslu eins og aðrir búfjáreigend-
ur fyrir tilsettan tíma.
–mm
Hafa opnað sorp-
flokkunarstöð
RVK: Sjávarútvegsfyrirtækið HB
Grandi opnaði á mánudag nýja
sorpflokkunarstöð á Norður-
garði í Reykjavík. Í stöðinni á að
safna saman sorpi sem fellur til á
athafnasvæði félagsins í Reykja-
vík og þeim skipum sem landa
þar. Þannig á að draga verulega
úr urðun sorps og auka hlutfall
til endurvinnslu. Öllu sorpi sem
fellur til í landvinnslu, verkstæði,
skrifstofum, skipum og frysti-
geymslu er safnað saman á einn
stað þar sem nákvæm flokkun fer
fram. Fyrirmyndin af stöðinni er
frá sambærilegri stöð sem fyr-
irtækið starfrækir á Vopnafirði.
Nýja flokkunarstöðin á Norður-
garði hefur hlotið heitið Svan-
ur. Við þetta tækifæri var gestum
einnig boðið að skoða nýbygg-
ingu HB Granda á Norðurgarði.
Hún mun hýsa nýtt verkstæði
og umbúðageymslu fyrirtækis-
ins. Þar þáðu gestir veitingar frá
Norðanfiski ehf. sem er dóttur-
fyrirtæki HB Granda á Akranesi.
–mþh
Aflatölur fyrir
Vesturland
24. - 30. október
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 8 bátar.
Heildarlöndun: 19.059 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 4.938 kg í
einni löndun.
Arnarstapi 6 bátar.
Heildarlöndun: 41.661 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 15.860 kg í tveimur löndun-
um.
Grundarfjörður 7 bátar.
Heildarlöndun: 195.591 kg.
Mestur afli: Hringur SH: 66.633
kg í einni löndun.
Ólafsvík 9 bátar.
Heildarlöndun: 71.526 kg.
Mestur afli: Brynja SH: 23.711
kg í fjórum löndunum.
Rif 10 bátar.
Heildarlöndun: 155.525 kg.
Mestur afli: Saxhamar SH:
51.152 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 5 bátar.
Heildarlöndun: 50.939 kg.
Mestur afli: Hannes Andrés-
son SH: 26.950 kg í fimm lönd-
unum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Hringur SH – GRU:
66.633 kg. 28. október
2. Saxhamar SH – RIF:
51.152 kg. 30. október
3. Drangavík VE – GRU:
48.120 kg. 29. október
4. Helgi SH – GRU:
44.505 kg. 26. október
5. Farsæll SH – GRU:
31.924 kg. 27. október
mþh
Seltjarnarnes er draumarsveitar-
félagið árið 2015, samkvæmt ár-
legri úttekt Vísbendingar á fjár-
hagslegum styrk sveitarfélaga. Sel-
tjarnarnes fær 9,0 í einkunn á skal-
anum 0 til 10. Á eftir Seltjarnarnesi
kemur Garðabær með einkunnina
8,1 og Grindavíkurbær þar á eftir
með einkunnina 8,0. Reykjavíkur-
borg er í 22. sæti með einkunnina
5,5 en í neðsta sæti í úttektinni á
fjárhag 36 stærstu sveitarfélaganna
er Hafnarfjörður með einkuninna
3,0.
Í úttektinni er byggt á útreikn-
ingum upp úr ársreikningum sveit-
arfélaga, sem Samband íslenskra
sveitarfélaga tekur saman. Einkunn
hefur hækkað hjá meira en helm-
ingi sveitarfélaganna milli ára, en
samt eru blikur á lofti í rekstrinum,
meðal annars vegna þess að fyrir-
sjáanlegt er að launakostnaður mun
hækka á þessu ári. Þá er á það bent
að nauðsynlegt sé fyrir sveitarfé-
lög að ná fram stærðarhagkvæmni
í rekstri með sameiningum.
Af sveitarfélögum á Vesturlandi
er Snæfellsbær í hæsta sæti á list-
anum, skipar það sjöunda með 7,1
í einkunn, sama sætið og á síðasta
ári. Akranes er í fjórtánda sæti með
6,3 í einkunn, lækkar um eitt sæti
frá árinu á undan. Stykkishólmur
er nú í 24 sæti, tíu sætum ofar en
árið á undan, með 4,8 í einkunn nú.
Borgarbyggð er í 27. sæti með 4,2 í
einkunn, þremur sætir ofar en árið
á undan. mm
Seltjarnarnes er draumasveitarfélagið
Nú er unnið að því að stækka þjón-
ustuverkstæði vélsmiðjunnar Héð-
ins á iðnaðarsvæðinu á Grundar-
tanga um nálega helming. Fyrir-
tækið hefur haft verkstæði þar síð-
an 2008. Þjónustuverkstæðið, sem
nú er tæplega 500 fermetrar, verð-
ur tvöfaldað. Héðinn sinnir allri al-
mennri járnsmíðavinnu og hefur
lengi þjónustað bæði járnblendi-
verksmiðju Elkem og álver Norð-
uráls. Um tíu til tólf starfsmenn
Héðins eru við störf á Grundar-
tanga að jafnaði en aðalstöðvar fyr-
irtækisins eru í Hafnarfirði.
mþh
Héðinn reisir stálgrindarhús á Grundartanga
Í síðustu viku var unnið að því að klæða stálgrind nýju viðbyggingarinnar við
þjónustuverkstæði Héðins á Grundartanga.
Færeyska krabbaveiðiskipið Fríð-
borg sem legið hefur við bryggju
við Lambhúsasund síðan í ágúst
var á flóði á laugardagsmorgun
flutt um set þaðan og yfir í Akra-
neshöfn. Eins og greint hefur verið
frá í Skessuhorni hefur verið unn-
ið að því að setja um borð í skipið
vinnslulínu fyrir snjókrabba. Hún
er hönnuð og smíðuð af fyrirtækj-
unum Skaginn og 3X Technology.
Nú líður óðum að verklokum.
Fríðborg er stærsta skip sem til
þessa hefur legið við bryggju í Lam-
húsasundi. „Við fórum með skipið
úr Lambhúsasundi og sigldum því
út á Faxaflóa þar sem ýmiss búnað-
ur var prófaður. Þessi reynslusigl-
ing gekk mjög vel. Við erum nú að
laga nokkur smáatriði. Við reiknum
með að fara aftur út á miðvikudag-
inn í prófanir og vonumst eftir að fá
aðeins meiri ölduhæð þá en á laug-
ardag var renniblíða og sléttur sjór.
Skipið siglir svo til Færeyja vænt-
anlega um eða eftir næstu helgi,“
segir Jónmundur Ingólfsson tækni-
stjóri hjá Skaganum í samtali við
Skessuhorn.
mþh
Fríðborg hin færeyska flutt um set
Dráttarbáturinn Þjótur frá Faxaflóa-
höfnum aðstoðaði áhöfn Fríðborgar
við að koma skipi þeirra af stað og út
Lambhúsasund. Allt gekk að óskum.
Næstkomandi sunnudag klukkan 16
verður lítið tónlistarævintýri flutt á
Akranesi. „Lítil saga úr orgelhúsi er
myndskreytt tónlistarævintýri fyr-
ir börn sem leiðir hlustendurna inn
í töfraheim pípuorgelsins. Pípu-
orgelið er í hugum barna sveip-
að ákveðnum ævintýraljóma og
höfðar tónlistarævintýrið sérstak-
lega til þess auðuga ímyndunarafls
sem börn búa yfir. Söguhetjurnar
eru íbúar orgelhússins, en það eru
orgelpípurnar. Það gengur á ýmsu
í samskiptum hjá orgelpípunum
og Sif litla sem er minnsta röddin
í orgelinu, er orðin mjög þreytt á
þessu eilífa rifrildi. Hún ákveður að
fara í burtu úr orgelhúsinu og finna
sér betri stað að búa á. Þá reynir nú
heldur betur á hinar orgelpípurnar
og þær fara að leita að Sif litlu. Allt
fer sem betur fer vel að lokum og
orgelpípurnar læra að búa í sátt og
samlyndi,“ segir í Sveinn Arnar Sæ-
mundsson organisti.
Verkið var frumflutt á tónleik-
um í Fella- og Hólakirkju á Barna-
menningarhátíð í Reykjavík 22.
apríl síðastliðinn og hlaut sýning-
in mikið lof áhorfenda. Í nóvember
2015 kemur sagan út sem mynd-
skreytt barnabók ásamt geisladiski,
þar sem sagan er lesin af Bergþóri
Pálssyni söngvara og tónlistin leik-
in á orgel af Guðnýju Einarsdóttur
organista. Þau munu jafnframt flytja
verkið í Akraneskirkju á sunnudag-
inn. Á tónleikum þegar verkið er
flutt er sagan lesin af sögumanni og
myndunum varpað á skjá jafnóðum.
Höfundur sögunnar er Guðný Ein-
arsdóttir, tónlistina samdi Michael
Jón Clarke og myndirnar teiknaði
Fanney Sizemore. Tónleikarnir eru
hluti af Vökudögum og er aðgang-
ur ókeypis.
mm
Tónlistarævintýri í Akraneskirkju á sunnudaginn