Skessuhorn


Skessuhorn - 04.11.2015, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 04.11.2015, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 201530 „Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Vökudögum?“ Spurning vikunnar (spurt á Akranesi) Ellert Ingi Ellertsson: Ég er að spá í að fara á eldsmíð- anámskeið í Smiðjunni á Safn- asvæðinu næsta laugardag. Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir: Ýmsa skemmtilega viðburði á bókasafninu, tónleika Ragn- heiðar Hafsteinsdóttur á Gamla Kaupfélaginu og á sýninguna „Þar sem maður hittir mann“. Jóhannes Ingibjartsson: Á stofutónleika í Haraldarhúsi, sýningu í Kirkjuhvoli og svo ætla ég að kíkja í kringum mig á bókasafninu. Guðný Kristín Guðnadóttir: Ekkert skipulagt, það kemur bara í ljós. Aníta Franklínsdóttir: Myndlistasýninguna á Höfða, Þar sem maður hittir mann á Kirkjubraut og á Blúshátíðina. Sjötíu ferðalangar frá Akranesi lögðu land undir fót föstudaginn 30. október síðastliðinn. Þar af voru 52 iðkendur frá FIMA sem tóku þátt í Íslandsmótinu í stökk- fimi en alls voru þátttakendur á mótinu um 200 talsins. Mótið var haldið á laugardeginum á Akureyri og gekk ferðin norður ótrúlega vel. Keppendur voru svo sannar- lega FIMA og Akranesi til sóma á mótinu. Þeir stóðu sig með prýði og kláruðu stökkin sín vel og lít- ið var um föll. Á mótinu var keppt í þremur hlutum. Fyrsti hluti var fyrir aldurshópinn 9-11 ára, ann- ar hluti fyrir 11-13 ára og þriðji hluti fyrir 14 ára og eldri. Íslands- mót í stökkfimi er einstaklingsmót og þar er keppt á trampólíni og hesti, sem telja saman til stiga. Svo er keppt á dýnu í framumferð og afturábakumferð, sem telja einn- ig saman til stiga. Íslandsmeistar- ar urðu þeir sem unnu í saman- lögðu. Keppt var í opnum flokki, A-flokki og B-flokki. Í B-flokki má bara gera stökk upp í ákveðið erf- iðleikagildi, eftir það er keppt í A- flokki sem aftur nær upp í ákveðið erfiðleikagildi. Að lokum er opni flokkurinn, en þar má finna erfið- ustu stökkin skv. Code Of Points, en það eru hópfimleikareglur sem keppt er eftir. Í fyrsta hluta fengu allir þátttak- endur FIMA sem fæddir eru 2006 þátttökuverðlaun en þær stóðu sig mjög vel. Ragna Sól, fædd 2005, lenti í fyrsta sæti á dýnu í B-flokki. Í öðrum hluta gerði Guðrún Unn- arsdóttir sér lítið fyrir og tók gull á öllum áhöldunum og í samanlögðu í A-flokki í sínum aldursflokki. Hún var jafnframt Íslandsmeist- ari í A-flokki. Guðný Sigurrós Jó- hannsdóttir sigraði á öllum áhöld- um og í samanlögðu í sínum ald- ursflokki í A-flokki og varð Íslands- meistari í A-flokki. Evlalía Þórð- ardóttir lenti í 2. sæti á trampól- íni í A-flokki, Andrea Kristín lenti í 3. sæti á trampólíni í A- flokki og var í 2. sæti í samanlögðu. Andrea Reynisdóttir lenti í 3. sæti á dýnu í A-flokki og Thelma Ragnarsdóttir lenti í 3. sæti á öllum áhöldum og í 3. sæti í samanlögðu í A-flokki. Þá varð Ásdís Björgvinsdóttir í 4. sæti á dýnu og í 2. sæti í samanlögðu í B-flokki. Krissý van der Berg lenti í 2. sæti á dýnu í B-flokki. Í þriðja hluta lenti Sóley Brynj- arsdóttir í fyrsta sæti á dýnu í A- flokki, öðru sæti á trampólíni og öðru sæti í samanlögðu. Sylvía Mist Bjarnadóttir varð í fyrsta sæti á dýnu, öðru sæti á trampólíni, í fyrsta sæti í samanlögðu og jafn- framt Íslandsmeistari í sínum ald- ursflokki. Harpa Rós Bjarkadóttir varð í 3. sæti á dýnu, 3. sæti á tram- pólíni og í 3. sæti í samanlögðu. Í Opnum flokki lenti Dawn Sim- ire í 3.sæti í samanlögðu, Ragna Dís Sveinbjörnsdóttir varð í 2.sæti á dýnu, 3.sæti á trampólíni og í 3.sæti í samanlögðu. Það er greinilegt að framtíð- in er björt hjá FIMA og gefur ár- angurinn góð fyrirheit fyrir kom- andi keppnistímabil hjá stelpun- um í hópfimleikum. Næsta verk- efni FIMA er Haustmótið í Hóp- fimleikum, sem haldið verður á Akranesi 20.-22. nóvember í umsjá okkar. Lóa Guðrún Gísladóttir Ljósm. Sesselja Andrésdóttir Frábær árangur FIMA á Íslandsmótinu í stökkfimi Allur hópurinn frá FIMA samankominn. Stelpurnar skemmtu sér vel á Akureyri þar sem þær kepptu á Íslandsmóti í stökk- fimi. Hér er hluti keppenda FIMA kominn í náttfötin. Keppni lokið hjá stúlkunum sem kepptu í öðrum hluta. Upphitun hjá 9-11 ára í gangi.Svifið í lausu lofti. Þátttakendur þriðja og elsta flokksins með verðlaunagripi sína.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.