Skessuhorn - 04.11.2015, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 201516
í nokkur sumur, barþjónn á Hótel
Borgarnesi, tók vaktir á sambýlinu
og vann á börum og veitingastöð-
um í Reykjavík. Það síðasta sem ég
gerði áður en ég fór í læknisfræðina
var að selja baðinnréttingar,“ seg-
ir Kristín. „Ég held samt að starfs-
ferill minn hafi náð hátindi sínum
þegar ég lék Paddington bangsa
fyrir Búnaðarbankann sáluga,“ bæt-
ir hún við létt í bragði.
Kristín er fjölskyldumann-
eskja, maður hennar er Jens Garð-
ar Helgason. „Hann á þrjú börn af
fyrra hjónabandi; Heklu, Thor og
Vögg og ég er mjög heppin að hafa
fengið að vera hluti af þeirra lífi.
Þau búa á Eskifirði og við „fljúg-
umst mikið á,“ segir hún og að-
spurð bætir hún því við að hún
reikni með að flytja heim aftur.
Hvenær það verður sé hins vegar
óráðið. „Ég er íslensk í gegn, fyr-
ir utan örlítið færeyskt brot og fæ
reglulega heimþrá. Það jafnast ekk-
ert á við Ísland og sérstaklega ekki
landsbyggðina,“ segir Kristín. „Í
dag eru bara þrír heila- og tauga-
skurðlæknar á Landspítalanum.
Ég kem heim þegar ég verð kom-
in með meiri reynslu og mín verður
óskað heima,“ bætir hún við.
Alls ekki eins og
í sjónvarpinu
Þegar blaðamaður spyr í fáfræði
sinni hvort hendur hennar séu
tryggðar og hvort einhver líkindi
séu með starfi hennar og skurð-
lækna sem birtast á sjónvarpsskjám,
til dæmis McDreamy í Gray‘s Anat-
omy, þvertekur hún fyrir það. „Mitt
starf sem heila- og taugaskurðlækn-
ir felst fyrst og fremst í aðgerðum á
höfði; að fjarlægja heilaæxli, leggja
inn ventil fyrir vatnshöfuð, að taka
á móti sjúklingum sem hafa orðið
fyrir alvarlegum höfuðáverkum og
framkvæma bráðaaðgerðir vegna
heilablæðinga. Einnig fjarlægjum
við æxli og blæðingar við mænu og
taugarætur,“ útskýrir Kristín. „Svar-
ið við spurningunni er sem sagt nei.
Ég held ég hafi aldrei náð að klára
heilan svona „læknaþátt“ vegna þess
að ég fæ svo mikinn kjánahroll. Ég
vissi reyndar ekki hver McDreamy
var þegar þú spurðir mig, en eftir
að hafa gúgglað hann sé ég að ég
er töluvert huggulegri en hann.
Með minna skegg og líklega miklu
fyndnari,“ segir hún „og hendurnar
á mér eru ekki tryggðar en kannski
fer að koma tími til að huga að því.
Ég gæti kannski spurt Jennifer Lo-
pez hjá hvaða tryggingafélagi hún
tryggði á sér afturendann!“
Á sínar dökku
hliðar einnig
Því er oft fleygt fram að vísinda-
menn viti mjög lítið um heilann en
Kristín vill ekki meina að svo sé.
„Við vitum í raun mjög mikið um
heilann en það er alltaf eitthvað
nýtt að koma fram og þekkingin
eykst stöðugt því stór hópur vís-
indamanna um heim allan fæst við
rannsóknir á taugakerfinu,“ segir
Kristín en bætir því við að enginn
heili sé eins, ekki einu sinni útlits-
lega. „Það er mikilvægt að „nota“
heilann, æfa hann eins og vöðva.
Maður getur til dæmis séð rýrnun
á heila hjá eldra fólki og fólki sem
neytir of mikils áfengis,“ útskýr-
ir hún.
En hversu heillandi sem lesend-
um kann að þykja starf hennar er
það að sjálfsögðu ekki stöðugur
dans á rósum, langt því frá. Oft vill
böggull fylgja skammrifi og burt-
séð frá því að unnið sé undir miklu
álagi segir hún að sérstaklega geti
einn hluti starfsins tekið verulega
á. „Það er erfiðast að bera aðstand-
endum sjúklinga slæmar fréttir, til
dæmis ef einhver lifir ekki af slys
eða alvarlega heilablæðingu. Verst
af öllu er þegar sjúklingurinn er
barn,“ segir hún.
Velgengnin kemur með
dugnaði og sjálfstrausti
Kristín er fjórða íslenska konan
sem lýkur námi í heila- og tauga-
skurðlækningum. Undir lok við-
talsins lítur hún aftur til bernsku
sinnar og veltir því fyrir sér hvers
vegna lítil stelpa úr Borgarnesi hafi
orðið heilaskurðlæknir. „Í uppeldi
mínu fékk ég enga hvatningu til að
læra en að sama skapi voru held-
ur engar kröfur gerðar til mín um
nám, engin pressa. Líklega hefði
það átt að virka þveröfugt á mann-
eskju eins og mig,“ segir hún. „En
í staðinn fékk ég frá móður minni
ást, gleði, dugnað, frelsi og sjálfs-
traust. Mér var kennt að vera dug-
leg, mæta í vinnuna, standa með
sjálfri mér og bera ábyrgð. Ég fékk
frelsi til að gera mistök og læra af
þeim,“ bætir hún við.
Þegar kom að námi leggur Krist-
ín Lilja áherslu á að verkvitið hafi
komið henni í gegnum skólann. „Ef
maður er duglegur að vinna, mætir
og er ekki með neitt væl, þá gengur
vel. Öll vinna sem ég hef einhvern
tímann unnið hefur gagnast mér
síðar meir á lífsleiðinni. Krakkar
verða að læra að vinda tusku ef þeir
eiga að komast áfram í lífinu,“ segir
Kristín Lilja að lokum.
kgk
Fjölmenningarhátíð á vegum Fé-
lags nýrra Íslendinga var hald-
in í Hjálmakletti í Borgarnesi á
sunnudaginn. „Það gekk vel og
vel var mætt af gestum. Við hefð-
um þó viljað fá fólk frá fleiri lönd-
um til að kynna lönd sín og þjóð-
ir. Í ár voru engir frá Afríku, eng-
ir frá Mið- og Suður Ameríku og
ekki frá Norðurlöndunum. En
þau sem voru að kynna gerðu
það vel. Þetta voru alls fulltrúar
frá hátt í 20 löndum víðs vegar um
heim. Breski sendiherrann Stuart
Gill var heiðursgestur ásamt eing-
inkonu. Hann kom og hélt ræðu.
Páll Óskar ætlaði að koma en for-
fallaðist vegna flensu. Síðan var
skoskur sekkjapípuleikari sem lék
á hljóðfæri sitt fyrir gesti og gang-
andi,“ segir Guðrún Vala Elísdótt-
ir mannfræðingur, náms- og starfs-
ráðgjafi á Símenntunarmiðstöð
Vesturlands og áhugamanneskja
um fjölmenningu á Íslandi.
Hátíðin er haldin með styrk
frá Menningarráði Vesturlandi.
„Þetta er ekki nein fjárgróðahá-
tíð. Allir sem koma og kynna fá
kostnað endurgreiddan en fólk
gefur vinnu sína. Þessi hátíð er
orðin árlegur viðburður á Vestur-
landi og hefur undanfarin ár ver-
ið haldin til skiptis á Akranesi og í
Borgarnesi.“
mþh
Fjölmenningarhátíð í Borgarnesi
Meðal atriða við hátíðarhöldin í Hjálmakletti var að stíga búlgarska þjóðdansa við þarlenda tónlist.
„Ég byrjaði í sérnáminu heima
á Íslandi árið 2009 og fékk stöðu
hér árið 2011. Nú bíð ég eftir sér-
fræðistimpli frá sænskum yfirvöld-
um,“ segir Borgnesingurinn Krist-
ín Lilja Eyglóardóttir í samtali við
Skessuhorn, en hún lauk nýver-
ið sérhæfingu í heila- og tauga-
skurðlækningum frá Sahlgrenska
háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg,
eftir grunnnám í Ungverjalandi.
„Eftir að hafa lokið stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi árið 1999 fór ég í nám í
læknisfræði til Ungverjalands árið
eftir. Ég var með þeim fyrstu sem
fóru þangað frá Íslandi og í nokk-
urri óvissu um hvað tæki við. Hún
reyndist óþörf enda skólinn frá-
bær. Frá FVA kom ég vel undirbú-
in og kann ég kennurum við þá
stofnun bestu þakkir fyrir,“ seg-
ir Kristín Lilja í samtali við blaða-
mann Skessuhorns.
Aðspurð um ástæður þess að
hún ákvað að læra til læknis segir
Kristín Lilja að forvitnin ein hafi
þar haft mest að segja. „Mig lang-
aði bara að kunna læknisfræði en
var ekkert viss um að ég myndi
vilja starfa sem hefðbundinn lækn-
ir. Ég tók pásu í nokkra mánuði
á síðari hluta námsins til að læra
Kung-Fu í Shaolin klaustri í Kína
en útskrifaðist svo árið 2007. Und-
ir lokin vann ég meðfram námi á
heilsugæslustöðvum víðs vegar um
Ísland.“
Að grunnnámi loknu er komið
að sérhæfingunni og segist Kristín
hafa prófað ýmislegt áður en hún
ákvað að sérhæfa sig í heila- og
taugaskurðlækningum. „Mér hefur
alltaf fundist gaman að vinna ná-
kvæmnisvinnu með höndunum og
vissi að ég myndi á endanum velja
einhvers konar skurðlækning-
ar. Eftir að hafa prófað nær allar
mögulegar skurðdeildir sá ég ljós-
ið á heila- og taugaskurðdeildinni
á Landspítalanum í Reykjavík. Þar
eru þrír snillingar sem kynntu mig
fyrir faginu og smásjánni, sem er
hrein unun að vinna undir. Ég var
þar í eitt ár áður en ég fór út í sér-
nám,“ segir hún.
Fær reglulega heimþrá
Kristín er Borgnesingur að upp-
runa og kom víða við í leik og
starfi áður en hún hélt til náms
á erlendri grundu. „Ég sleit öll-
um mínum barnsskóm í Borgar-
nesi og á virkilega góðar minning-
ar frá æsku minni á Vesturlandinu.
Meðfram skóla vann ég hér og þar
eins og hægt var, held ég hafi verið
nokkuð dugleg og og ég tók alla þá
vinnu sem mér bauðst,“ segir hún.
Störfin sem Kristín tók sér fyrir
hendur voru eins fjölbreytt og þau
eru mörg. „Ég byrjaði í unglinga-
vinnunni sem krakki, vann á kassa
í verslun Jóns og Stefáns sem þá
hét og við veitingar hjá Golfklúbbi
Borgarness. Ég var aðstoðarkokk-
ur á Hótel Búðum á Snæfellsnesi
Sá ljósið á heila- og taugaskurðdeild Landspítalans
Rætt við Kristínu Lilju Eyglóardóttur heilaskurðlækni úr Borgarnesi
Kristín Lilja Eyglóardóttir fyrir framan Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg.
Á skurðstofunni í fullum skrúða.
„Ég og Jens minn.“ Kristín ásamt manni
sínum Jens Garðari Helgasyni.