Skessuhorn - 04.11.2015, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 17
Menningarverðlaun Akraneskaup-
staðar voru afhent síðastliðið föstu-
dagskvöld við fjölmenna athöfn
samhliða opnun ljósmyndasýning-
ar Vitans, félags áhugaljósmynd-
ara á Akranesi. Þetta var í níunda
sinn sem verðlaunin voru afhent og
eins og jafnan áður var óskað eftir
tilnefningum frá íbúum á Akranesi.
Verðlaunin eru veitt árlega einstak-
lingi eða hópi sem þótt hefur skara
framúr í menningarlífi á Akranesi
og þetta ár komu þau í hlut Vitans,
félags áhugaljósmyndara. Ingþór
Bergmann Þórhallsson formaður
menningar- og safnanefndar gat
þess við afhendingu verðlaunanna
að Vitinn hefði sannarlega stað-
ið undir því að skara framúr á sviði
menningar og kvað félagið hafa
sýnt frumkvæði í menningarmálum
í þau fimm ár sem félagið hefur ver-
ið starfandi.
Félagsmenn í Vitanum eru yfir 70
talsins og er tilgangur félagsins að
auka ljósmyndaáhuga almennings
og efla áhugamálið. Félagið hefur
staðið fyrir kynningum, námskeið-
um og ljósmyndaferðum og var
meðal annars með fræðslu í grunn-
skólum á Akranesi, sem endaði með
ljósmyndasýningu. Þá hafa félagar
Vitans tekið myndir af öllum hús-
um á Akranesi og voru myndirnar
afhentar Ljósmyndasafni Akraness
til varðveislu. Félagið hefur gefið
út tvær ljósmyndabækur og félags-
skapurinn hefur haldið vel sótt-
ar ljósmyndasýningar á Vökudög-
um, Írskum dögum og í Akranes-
vita. Meðlimir félagsins hafa einn-
ig eflst til þess að sýna ljósmynd-
ir sínar víðar, bæði á samsýningum
og einkasýningum og hafa keppt í
ljósmyndasamkeppnum með góð-
um árangri. Gunnar Viðarsson for-
maður félagsins tók við verðlaun-
unum fyrir hönd félagsmanna.
Hann sagði Vitafólk stolt og ánægt
með viðurkenninguna. „Fyrir hönd
félaga Vitans langar mig að þakka
Akraneskaupstað fyrir að hafa sýnt
okkur þann heiður að veita okkur
þessi verðlaun. Þetta kom verulega
á óvart,“ sagði Gunnar í samtali við
Skessuhorn.
grþ
1222. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í
bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 10. nóvember
kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til
að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt
er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn í Gamla Kaupfélaginu, laugardaginn •
7. nóvember kl. 10.30.
Frj• álsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara,
gengið inn frá palli, mánudaginn 9. nóvember kl. 20.00.
Bjö• rt framtíð í Vitakaffi Stillholti 16-18, mánudaginn
9. nóvember kl. 20.00.
Samf• ylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18,
laugardaginn 7. nóvember kl. 11.00. SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Bæjarstjórnarfundur
Reykjavík
Grundartangi
Akranes
Borganes
Vélstjóri
Faxaflóahafnir sf. óska að ráða til starfa vélstjóra frá og með
1. mars 2016 með starfsstöð í Reykjavík. Starfið felst aðal-
lega í vélstjórn á dráttarbátum Faxaflóahafna sf. en einnig í
afgreiðslu rafmagns, móttöku skipa og öðrum tilfallandi
störfum.
Nauðsynlegt er að umsækjandi uppfylli eftirfarandi
skilyrði:
Hafi full vélstjórnaréttindi - VF 1•
Hafi sótt námskeið í Slysavarnarskóla sjómanna•
Hafi góða kunnáttu í íslensku og ensku•
Hafi góða tölvukunnáttu•
Faxaflóahafnir sf. eru með starfsemi í Reykjavík, á Akranesi,
á Grundartanga og í Borgarnesi og sinna starfsmenn
Faxaflóahafna sf. verkefnum á þeim stöðum. Unnið er alla
virka daga 07:00 - 17:00.
Umsóknir sendist Faxaflóahöfnum sf., Tryggvagötu 17,
121 Reykjavík, merkt VÉLSTJÓRI fyrir 1. desember nk.
Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnarvernd þá er óskað
eftir að umsækjandi geti lagt fram sakavottorð.
Nánari upplýsingar gefur yfirhafnsögumaður í síma 525-8900.
SK
ESSU
H
O
R
N
2015
Fingurnir titra á lyklaborðinu,
þetta er svo auðvelt og svo freist-
andi. Það er hægt að vinna svo mik-
ið með þetta efni. Nýstárleg túlk-
un Eyglóar húsnæðismálaráðherra
á prósentureikningi vekur hræðslu
mína. Eftir þungan yfirlestur á því
sem ráðherrann lét út úr sér varð ég
engu nær og virkir í athugasemdum
samfélagsmiðlanna breyttust í dóm-
harða stærðfræðinga. Nú á að fara
byggja vandað, hagkvæmt og hratt.
Hef heyrt talað um gámabyggð en
ég sel það ekki dýrara en ég keypti
það, það væri nú flott. Verðtryggð
gámaíbúð það hljómar vel, nema
að verðtryggingin er eins og tím-
inn; köld og djúp. Einnig las ég að
það ætti að vera meiri sveigjanleiki
í skipulagsferlinu sem þýðir aðeins
eitt. Það munu rísa upp hús eins og
það hafi verið skotið úr haglabyssu
á byggingarsvæðinu, fórnarlömb
sköpunargáfu húsreisandans og
undirskriftagleði byggingafulltrú-
ans. En er það bara ég eða var ekki
byggt fullt af ljótum sveppahúsum,
sem kosta reyndar brjálæðislega
mikið sökum póstnúmers, á fyrsta
áratug þessarar aldar? Man það
ekki, hef lélegt skammtímaminni
og kann ekki prósentureikning jafn
vel eins og ráðherrann.
Annað sparnaðarráð Eyglóar er
að geymslur og bílskúrar séu ekki
grunnþörf. Að ímynda sér íbúð án
geymslu eða hús án bílskúrs er eins
og að reyna að æfa sig í að hætta
að anda. Ekki hægt. Þarna er um
frumeðli mannsins að ræða, það
sem hefur fylgt okkur síðan við
ákváðum að standa á tveimur fót-
um. Veiði og söfnun, fengurinn var
geymdur í hellinum heima sem og
draslið sem við fundum. Hvað ger-
um við við það sem við kaupum í
dag? Jú við geymum það og hend-
um því stundum en þá er það líklega
búið að fara eina ferð á haugana en
tekið aftur í sátt sökum ómetanlegs
gildis. Í pistli sínum um geymslur
hnykkir hún því út með að drasl-
ið í geymslunni hafi ekki verið 1,8
milljónar króna virði, sem áætlað-
ur byggingarkostnaður geymslu í
Reykjavík, sumt af draslinu sem við
eigum er ekki hægt að meta til fjár.
Bara svo ég nefni dæmi um sjálfan
mig, þá á ég eldgamla MacIntosh
dollu, þú veist þessi með tindátan-
um og hefðarfrúnni. Hvers vegna
ég geymi hana veit enginn, en það
á enginn að spyrja hvers vegna ég
geymi hana.
Með kveðju,
Axel Freyr - Borgarfirði
Eitt prósent leiðin
PIstill
Vitinn hlaut menningarverðlaun
Akraneskaupstaðar
Vitafélagar tóku á móti verðlaununum. F.v. Jónas H Ottósson, Þorvaldur Sveinsson, Einar Viðarsson, Guðmundur Bjarki Hall-
dórsson og Sverrir Þór Guðmundsson. Ljósm. grþ.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, Gunnar Viðarsson formaður Vitans og Ingþór
Bergmann Þórhallsson formaður menningar- og safnanefndar. Ljósm. gh.
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA