Skessuhorn - 04.11.2015, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 19
Myndlistarmaðurinn Bjarni Þór og
eiginkona hans Ásta Alfreðsdóttir
stóðu fyrir skemmtilegri uppákomu
á Írskum dögum í sumar. Þau buðu
gestum og gangandi að koma og mála
myndir á vegginn á galleríi Bjarna
Þórs við Kirkjubraut 1 á Akranesi og
kölluðu verkefnið „Ævintýravegg-
inn“. Verkið byrjaði þó fyrr. „Við
byrjuðum aðeins í fyrra. Veggurinn
var orðinn mjög ljótur, mosavaxinn
og sprunginn og þá datt okkur í hug
að láta mála hann með þessum hætti,“
segir Bjarni Þór. Á þessu ári fengu
þau svo styrk frá Uppbyggingasjóði
Vesturlands til styrktar verkefninu. Í
framhaldinu auglýstu þau viðburð-
inn; að börn og fullorðnir gætu kom-
ið og málað vegginn á Írskum dög-
um. Hugmyndin féll í góðan jarðveg
og á annað hundrað manns mættu
til að mála og skoða. Þau söfnaðu
einnig saman hópi af listrænu fólki,
sem þau fengu til að koma og mála á
vegginn í kringum Írska daga. Hóp-
urinn kallar sig „Veggjakrotarana
hans Bjarna“ og samanstendur af
Tinnu Rós Þorsteinsdóttur, Jónasi
Sigurgeirssyni, Veru Líndal Guðna-
dóttur, Elínu Dögg Baldvinsdótt-
ur og Brynjari Mar Guðmundssyni.
Síðastliðinn mánudag buðu hjónin
hópnum í hálfgerða uppskeruhátíð, í
tilefni af menningarhátíðinni Vöku-
daga. Blaðamaður Skessuhorns sett-
ist niður með veggjakroturunum og
spjallaði við þau um ævintýravegg-
inn.
Þarf að fínpússa
„Ég opnaði galleríið vorið 2013
á þessum stað og hef síðan þá haft
mikið að gera. Ég hef reglulega haft
opna vinnustofu, sýningar og er til
dæmis alltaf með sýningu á ísskúlp-
túrum á Þorláksmessu, í samvinnu
við Eyþór Kristjánsson meistara-
kokk,“ segir Bjarni. „Ég er búinn að
mála í margar myndlistasýningar,
núna síðast tvær í Reykjavík á þessu
ári enda hef ég breiðan kúnnahóp og
marga fastagesti úr Reykjavík,“ bæt-
ir hann við. Málverk Bjarna Þórs
hafa farið út um allan heim, til dæm-
is til margra landa Evrópu, Ísrael og
Indónesíu. Hann tekur sjálfur þátt í
öllum menningarviðburðum og upp-
ákomum um list á Akranesi og þótti
hjónunum því tilvalið að ná hópnum
saman á Vökudögum. Hugmynd-
in var að halda áfram með verkið en
vegna veðurs þurfti það að bíða betri
tíma. „Svona myndir eru oft mikið
„chaos“ til að byrja með. Maður þarf
að sætta litina og svona, það er það
sem við þurfum að gera núna - að
fínpússa verkið. Það þarf að tengja
þetta, veggurinn þarf að verða flott
heild,“ segir Bjarni. „Það eru samt
margir búnir að stoppa hérna fyrir
utan og skoða,“ segir Ásta.
Byrjaði allt hjá Bjarna
Veggjakrotararnir hafa allir ein-
hvern bakgrunn í myndlist. Öll eiga
þau það sameiginlegt að hafa byrj-
að snemma að teikna og mála. Flest
þeirra hafa lært í myndlistarskólum
og voru einnig nemendur hjá Bjarna
Þór. „Eins og margir var ég hjá
Bjarna Þór í skóla. Ég ákvað í 1. bekk
að ég ætlaði að verða listamaður.
Þetta byrjaði allt hjá Bjarna. Ég fór
aldrei, hjá honum kviknaði áhuginn
almennilega og ég er hér enn,“ segir
Brynjar Mar. „Ég var svona að bíða
eftir að þau kæmu fram og nú eru þau
að gera það,“ bætir Bjarni Þór við.
Öll tóku þau vel í að skreyta vegg-
inn, þó að sumum hafi þótt erfitt að
standa uppi í stiga fyrir framan fjölda
fólks og mála. „Ég vildi vera með og
fá útrás fyrir sköpunargleðina en ég
hélt fyrst að það ætti að mála ann-
an vegg,“ segir Jónas sem ætlaði að
hætta við þegar hann komst að því að
veggurinn umræddi væri í miðbæn-
um. „Það var engin miskunn, þarna
var umferð og allir að horfa. Bjarni
sagði að ég hefði komið út úr skápn-
um þarna,“ segir hann og hlær. Þau
segja þó að það hafi auðveldað verk-
ið að þau sneru bakinu í fjöldann.
„Maður fer bara í ákveðið „zone“, er
að hlusta á tónlist og er bara í sín-
um heimi. Það gæti verið eldgos fyr-
ir aftan mig og ég myndi ekki taka
eftir því,“ segir Vera. Hún bætir því
við að erfiðast hafi verið að mála eftir
að Írskum dögum lauk. „Þá var búið
að mála svo mikið af írskum fánum á
vegginn og sú stemning var svolítið
búin að vera. Þá þurfti að mála yfir
fánana,“ heldur hún áfram.
Veggurinn er lifandi
Þau segja að efnið hafi verið gefið al-
veg frjálst, fólk hafi mátt mála hvað
sem er á vegginn. „Við byrjuðum og
leyfðum svo hinum og þessum að
koma. Þetta var alveg frjálst og svo
má mála yfir það sem fyrir er,“ segja
þau. „Já, veggurinn er lifandi, verk-
ið verður aldrei búið,“ bætir Bjarni
Þór við. Gestir á Írskum dögum tóku
svo sannarlega þátt í að skapa verkið AKRANES • BORGARNES • BÚÐARDALUR • GRUNDARFJÖRÐUR • HÓLMAVÍK • HVAMMSTANGI • ÓLAFSVÍK • STYKKISHÓLMUR
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands er að fara af stað skipulagt sérnám í heimilislækningum sem byggir
á marklýsingu Félags íslenskra heimilislækna um sérnám í heimilislækningum
Hæfnikröfur
•
•
framangreind skilyrði
•
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá
Laugardaginn 7. nóvember
á milli kl. 14:00 og 16:00
Til sýnis og sölu munir úr handavinnustofu.
Vöfflur og kaffi verður selt gegn vægu gjaldi.
Allur ágóði rennur í handavinnu- og
ferðasjóð heimilisfólks í Brákarhlíð.
Allir velkomnir
Hlökkum til að sjá ykkur!
Basar og vöfflusala
í Brákarhlíð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Veggjakrotarar gerðu ævintýravegg
ásamt bæjarbúum
og var fjöldi fólks sem tók sér pens-
il í hönd eða fylgdist með listaverk-
inu verða til. „Það myndaðist smá
örtröð, þarna voru örugglega hátt í
hundrað manns á sama tíma - alveg
niður í fjögurra eða fimm ára börn,“
segja þau. „Svo þorði maður varla að
fara niður, maður var hræddur um að
einhver annar myndi klára það sem
maður var byrjaður á,“ segir Tinna
Rós. Hópurinn mun halda áfram að
skapa á Ævintýraveggnum en Bjarni
Þór segist þó ekki ætla að bjóða
hverjum sem er að mála á vegginn.
„En það getur vel verið að við ger-
um þetta aftur á einhverjum öðrum
vegg. Það er nóg til af veggjum,“ seg-
ir hann að endingu.
grþ
Veggjakrotararnir ásamt Bjarna Þór. Frá vinstri: Vera Líndal, Jónas, Brynjar Mar,
Elín Dögg, Bjarni Þór og Tinna Rós.
Elín Dögg Baldvinsdóttir byrjaði á
verkinu.
Börn og fullorðnir tóku þátt í að mála Ævintýravegginn á Írskum Dögum.
Glófi ehf. verður með aðfangasölu
dagana 5. – 7. nóvember á saumastofu sinni
í Ármúla 31 (við hliðina á Innréttingar og tæki)
Opnunartíminn er eftirfarandi:
Fimmtudagur 5. nóvember frá 16-19
Föstudagur 6. nóvember frá 16-19
Laugardagur 7. nóvember frá 11-15
Til sölu verða: Saumavélar, tölur,
rennilásar, ullarefnisbútar, flísefni og tvinnar
Hlökkum til að sjá ykkur!
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5