Skessuhorn - 18.11.2015, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2015 21
Átthagamyndir
af öllum lögbýlum og þéttbýlisstöðum á Vesturlandi
Átthagamyndir í nærri hálfa öld
Loftmynd frá Mats er alltaf kærkomin gjöf. Mýmargar stærðir
og gerðir í boði.
Kynnist úrvalinu á www.mats.is
Hafið samband á mats@mats.is
Gilsbakki
Haustmót í Hópfimleikum
á Akranesi 20. - 22. nóvember
Haustmót í Hópfimleikum verður haldið
í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi,
helgina 20. - 22. nóvember nk.
Bæjarbúar og nærsveitungar eru hvattir
til að koma á mótið en allur aðgangseyrir
rennur til styrktar Fimleikafélags Akraness.
Áfram FIMA!
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
svifaseinar Sjúkratryggingar Ís-
lands geta verið þegar hreyfihaml-
aðir þurfa að leita á náðir stofnun-
arinnar. Hann kveðst afar háður úti-
hjólastólnum sem hann segir í hlut-
verki fótanna í hans tilfelli, án stóls-
ins komist hann ekki út úr bílnum
og ferða sinna. Síðasta mánudags-
kvöld sprakk á dekki undir útistóln-
um hans Andrésar. Morguninn eft-
ir hringdi hann í Sjúkratrygging-
ar Íslands, stofnunina sem tók fyrir
nokkrum árum yfir hlutverk Hjálp-
artækjabanka Tryggingastofnunar. Í
ljós kom að varahluturinn var ekki
til hjá stofnuninni og reiðhjólaverk-
stæði eru ekki viðurkenndir birgj-
ar hjá Sjúkratryggingum. Fyrir fjór-
um mánuðum hafði hann pantað ný
dekk undir hjólastólinn, en það virt-
ist ekki hafa dugað til. Dekk undir
útihjólastóla eru nefnilega þau sömu
og undir reiðhjólum.
Verða að standa
sig betur
„Þjónustan hefur versnað hjá Sjúkra-
tryggingum. Þar er fólk ekki sérhæft
í ákveðnum hópum fólks með mis-
jafnar þarfir. Eftirfylgni er því ekki
sú sama og var og þjónustustig-
ið er einfaldlega ekki nógu hátt,“
segir Andrés. „Þetta er náttúrlega
engan veginn í lagi. Þarna eiga
menn í fyrsta lagi að eiga til á lager
svona algenga varahluti og í öðru
lagi að sýna þá þjónustulund að út-
vega þá með hraði þannig að málið
séu leyst og það helst samdægurs,“
segir hann. Í kjölfar fréttar Skessu-
horns fékk hann reyndar hjálp úr
óvæntum áttum. Einstaklingur á
Akranesi, sem ekki vill láta nafns
síns getið, kom einfaldlega til hans
á Hvanneyri á fimmtudagskvöld-
ið og gaf honum nýtt dekk í stað
þess sprungna og annar hafði sam-
band og bauðst til að borga fyrir
hann nýjan dekkjagang undir stól-
inn. „Ég er óendanlega þakklát-
ur þegar fólk sýnir svona velvilja.
Mér fannst þarna á þessum tíma-
punkti í síðustu viku að ég yrði að
láta heyra í mér því öryrkjar hafa
sinn rétt eins og annað fólk. Mér
finnst ekki viðunandi að stofnun-
in sem á að sjá okkur fyrir nauð-
synlegum hjálpartækjum sé ekki að
standa sig í stykkinu. Ég hef einn-
ig lent í vandræðum með dýnuna
í rúminu mínu og sessuna sem ég
sit á í hjólastólnum og hef lent í
því að þessir hlutir eru vitlaust af-
greiddir, manni eru sendir bilað-
ir varahlutir og þar fram eftir göt-
unum. Réttur búnaður er okkur
hreyfihömluðum mjög mikilvæg-
ur. Til dæmis eru loftfylltar dýnur
afar mikilvægar þar sem við búum
við stöðuga sárahættu ef búnað-
urinn er ekki í lagi,“ segir Andr-
és að endingu.Því má við þetta
bæta að forstjóri Sjúkratrygginga
Íslands viðurkenndi í sjónvarps-
fréttum RUV síðastliðið fimmtu-
dagskvöld að þjónustan væri vissu-
lega ekki gallalaus en reynt væri
eftir getu að vinna á meinbugum
hennar. Engu að síður er hreyfi-
hömluðum og öðrum nauðsynlegt
að menn eins og Andrés Ólafsson
hafi kjark til að láta í sér heyra ef á
hlut þeirra er gengið af starfsfólki
stofnana í almannaþágu.
mm
Útihjólastóllinn var á sprungnu í síðustu viku, allt þar til einstaklingur kom Andrési til hjálpar eftir að hafa lesið um málið á
vef Skessuhorns.
„Það kemur mér í jólaskap að brugga
jólabjór. Við hér á Steðja komumst
í jólaskapið í september þegar við
byrjuðum að smakka bjórinn til og
gera hann góðan,“ segir Dagbjart-
ur Arilíusson hjá Brugghúsi Steðja í
Borgarfirði. Venju samkvæmt boða
brugghús komu jólanna með jóla-
drykkjum sínum og að þessu sinni
sendir Steðji þrjá slíka á markað-
inn, tvo jólabjóra auk jólaléttöls.
„Annars vegar er það Steðji jóla-
bjór, hefðbundni jólabjórinn okk-
ar sem er suður-þýskur millidökk-
ur lagerbjór með lakkrís frá Góu.
Hann hefur alltaf notið mikilla vin-
sælda,“ segir Dagbjartur. „Hins
vegar er það Almáttugur, sem er
porterstíll af bjór, 6% og mjög mal-
taður með enn meira lakkrísbragði
en sá hefðbundni. Hann er svona
eins og sælgætismoli eftir matinn,“
bætir hann við.
Báðir jólabjórarnir komu í áfeng-
isverslanir síðastliðinn föstudag en
auk þeirra býður Steðji upp á Jóla
léttöl, fáanlegt í Ljómalind í Borg-
arnesi og verslunum Krónunn-
ar. „Það er yfirgerjaður bjór, létt-
ur stout með lakkrísbragði sem við
niðurblönduðum með hreinu app-
elsínuþykkni og bættum við smá
stevíu-sætuefni. Ölið er 2,15% og
bragðið er mjög margslungið, þetta
er mjög skemmtilegur drykkur,“
segir hann.
Að sögn Dagbjartar eru allir jóla-
drykkirnir 100% náttúrulegir og án
viðbætts sykurs eins og aðrir bjór-
ar brugghússins. „Þetta eru heilsu-
drykkir,“ segir hann léttur í bragði.
Brugghús Steðja tryggði sér ný-
verið sýningarrétt á myndbandi
sem nota á í auglýsingaskyni fyrir
Jólaléttölið. Áhugasamir borið það
augum á facebook-síðu brugghúss-
ins.
Jarðarberjabjór fyrir
skvísurnar
Auk þess að boða komu jólanna með
gerð jólabjórs hafa bruggmeistarar
Steðja undanfarið unnið að nýrri
tegund af jarðarberjabjór sem hef-
ur fengið nafnið Steðji Skvísu-
bjór. „Þetta er léttur lagerbjór með
góðu jarðarberjabragði. Við hófum
samstarf við nágranna okkar í Sól-
byrgi, fáum hjá þeim íslensk jarðar-
ber í bjórinn og hann kemur virki-
lega á óvart,“ segir Dagbjartur en
bætir því við að Steðji hafi reyndar
áður boðið upp á jarðarberjabjór.
„Í hann fluttum inn frostþurrkuð
jarðarber en eftir að Sólbyrgi jók
framleiðslu sína höfum við verið í
góðu sambandi við þau og ákváð-
um að nota jarðarberin þeirra. Þau
breyta drykknum heilmikið enda
hvergi hægt að fá betri jarðarber,“
segir hann. Jarðarberjabjórinn er
einnig án alls viðbætts sykurs og
kemur í hillur áfengisverslana 1.
desember. „Þetta er bjór fyrir allar
skvísurnar,“ segir Dagbjartur.
kgk
Brugghús Steðja kynnir nýjar bjórtegundir
Jóladrykkirnir þrír frá Brugghúsi
Steðja.
Vetrarljóð
Aðventutónleikar Kórs Akraneskirkkju á
Kalmansvöllum laugardaginn 28. nóvember kl. 20
Frumflutt lög og ljóð aftir Akurnesinga
Jólasmáréttir úr smiðju kórfélaga
Sérstakir gestir:
Guðrún Gunnarsdóttir söngkona
og Gunnar Gunnarsson
píanóleikari
Stjórnandi:
Sveinn Arnar Sæmundsson
Aðgangseyrir kr. 4.000
Í forsölu kr. 3.500
Forsala í versluninni Bjargi við Stillholt
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5