Fréttablaðið - 09.11.2019, Side 70
Af 2.000 svar-
endum sagði meira
en helmingur að þjóð-
erniskennd væri ástæð-
an fyrir því að þeir kysu
að kaupa ekki banda-
rískar vörur.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Í nýlegri könnun sem var framkvæmd í Kína kom fram að næstum 78% af kínverskum
neytendum ætli sér að sniðganga
allar bandarískar vörur á Singles’
Day, stærsta netverslunardegi
ársins. Yfirstandandi deilur
Bandaríkjanna og Kína um við
skiptatolla og tæknileg yfirráð
á alþjóðamarkaði virðast vera
skýringin.
Könnunin var unnin af alþjóð
lega ráðgjafarfyrirtækinu Alix
Partners og fyrst var sagt frá henni
í South China Morning Post. Af
2.000 svarendum sagði meira en
helmingur að þjóðerniskennd
væri ástæðan fyrir því að þeir kysu
að kaupa ekki bandarískar vörur. Í
samtali við South China Morning
Post sagði yfirmaður AlixPart
ners, Jason Ong, að kínverskir
neytendur kjósi yfirleitt vörur úr
sínu nágrenni og að það hafi bara
aukist með vaxandi þjóðernis
kennd.
Ótrúlega mikil netverslun á
einum degi í Kína
Singles’ day, eða 1111, er sólar
hringslöng verslunarhátíð á vef
verslunum Alibaba; Taobao, Tmall
og AliExpress og þetta er stærsti
netverslunardagur ársins, stærri
en útsöludagur Amazon, svartur
föstudagur og „Cyber Monday“
samanlagðir. Árið 2018 seldust
vörur fyrir 6,2 milljarða Banda
ríkjadollara á svörtum föstudegi,
á „Cyber Monday“ var salan 7,9
milljarðar dollara og á útsöludegi
Amazon seldust vörur fyrir 4,2
milljarða dollara. Til samanburður
var salan á Singles’ Day 30,8
milljarðar dollara.
Könnunin gerir ráð fyrir því
að þrátt fyrir áhrif viðskiptadeil
unnar eigi kínverskir neytendur
sem búa í stórborgum eftir að eyða
54% meira á Singles’ Day í ár en
fyrir ári.
Þjóðerniskennd mótar
neysluhegðun
Í skýrslu sem fylgdi könnuninni
kemur fram að bandarísk merki
geti búist við truflunum á sölu í
Kína, en talið er að sniðgangan
muni helst hafa áhrif á vörumerki
eins og Nike, Tapestry Inc., Ralph
Lauren, Capri Holdings og Tiffany
& Co.
Svarendur sögðu að þó að þjóð
erniskennd væri að móta neyslu
hegðun þeirra myndu þeir samt
ekki hika við að versla við evrópsk,
japönsk og suðurkóresk merki.
Kínverskir neytendur eru farnir
að versla út frá þjóðernisáherslum
í auknum mæli og kunna sífellt
verr við allt sem þeir telja móðgun
við menningu sína eða fullveldi. Á
sama tíma eru fyrirtæki á Vestur
löndum að leita inn á kínverskan
markað þar sem ekkert efnahags
svæði í heimi býður upp á jafn
mikla möguleika á vexti.
Þetta hefur valdið nokkrum
núningi að undanförnu, til dæmis
þegar einstaklingar sem eru við
riðnir vestræn stórfyrirtæki hafa
lýst yfir stuðningi við mótmælin
í Hong Kong. Það er ekki vel séð í
Peking og hafa NBAleikmenn sem
og atvinnumenn í tölvuleikjum
lent í vandræðum fyrir að tjá sig
um mótmælin. Kínverskir neyt
endur hafa líka gagnrýnt fyrirtæki
sem hafa brotið strangar reglur
kínverskra stjórnvalda.
Kína sniðgengur
bandarískar vörur
Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína veldur því að verslunarhegðun kínverskra neytenda er sífellt meira mótuð af
þjóðerniskennd. Kínverskir neytendur kjósa yfirleitt vörur úr sínu nágrenni og það eykst með hverjum deginum.
Samkvæmt könnuninni ætla 78% af kínverskum neytendum að sniðganga
allar bandarískar vörur þegar þeir versla á Singles’ Day.NORDICPHOTOS/GETTY
Á Singles’ Day 2018 seldust vörur fyrir 30,8 milljarða Bandaríkjadollara.
Singles’ Day er stærsti netverslunardagur ársins, stærri en útsöludagur
Amazon, svartur föstudagur og „Cyber Monday“ samanlagðir.
Svo virðist sem
mjög margir Kín-
verjar ætli sér
að sniðganga
bandarískar
vörur á Singles’
Day. Þeir segja
að ástæðan sé
þjóðerniskennd,
en Bandaríkin
og Kína hafa háð
viðskiptastríð að
undanförnu.
6 KYNNINGARBLAÐ 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RSINGLE’S DAY
0
9
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
3
3
-4
C
0
4
2
4
3
3
-4
A
C
8
2
4
3
3
-4
9
8
C
2
4
3
3
-4
8
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
0
4
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K