Skessuhorn - 02.11.2016, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 44. tbl. 19. árg. 2. nóvember 2016 - kr. 750 í lausasölu
Hugmyndin með EVE Online var að
búa til leik sem margir gætu spilað
á sama tíma. Nú erum við aftur á
barmi byltingar.
Búðu þig undir
spennandi framtíð
Ferðin frá hugmynd að farsælu fyrirtæki með skýra
framtíðarsýn kallar á öflugan samstarfsaðila.
Pantaðu viðtal við fyrirtækjaráðgjafa á
arionbanki.is/fyrirtaeki eða í síma ��� ����
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6-
28
39
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
20%
afsláttur
Verkir í liðum?
Opnunartími:
Mán-föst.
08:00 - 18:00
Laugardaga
10:00 - 14:00
Sunnudaga
12:00 - 14:00
Innnesvegur 1, 300 Akranes
Sími: 431-2019
Vökudagar 2016
27. okt. – 6. nóv.
DAGSKRÁ Á AKRANES.IS
Menningarhátíðin Vökudagar stendur nú sem hæst á Akranesi. Afar fjölbreytt dagskrá er í boði og úr mörgu að moða fyrir þá sem vilja kynna sér list og menningu í
bæjarfélaginu. Á meðfylgjandi mynd eru Slitnir strengir sem spiluðu fyrir gesti undir stjórn Ragnars Skúlasonar á opnu húsi í tónlistarskólanum síðastliðinn laugardag.
Sjá myndasyrpu frá hátíðinni bls. 24-25. Ljósm. mm.
Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað
út klukkan 7:45 í gærmorgun vegna
bruna við sumarhús í landi Vatns-
enda í Skorradal. Skömmu áður hafði
Tryggvi Sæmundsson á Hálsum orð-
ið var við brunalykt frá hlaðinu heima
hjá sér þegar hann var að leggja af stað
í skólaakstur Tryggvi gerði Pétri Dav-
íðssyni á Grund viðvart en hélt sjálf-
ur áfram akstri með börnin. Pétur fór
að leita elds og fann við heitan pott
og skjólvegg við sumarbústað í Vatns-
endahlíð. Pétur og fleiri sem komu
á vettvang náðu að hefta útbreiðslu
eldsins með garðslöngu þar til fyrstu
slökkviliðsmenn komu frá Hvanneyri.
Gekk slökkvistarf vel. Talið er líklegt
að eldsupptök megi rekja til dælubún-
aðar við pottinn. Litlu mátti þó muna
að eldurinn næði að læsa sig í grind-
verk áfast húsinu. Þakka má þefvísi
Tryggva og fundvísi Péturs að ekki
fór ver í þessum bruna.
mm/ Ljósm. Pétur Davíðsson
Heitur pottur
brann við
sumarhús
Síðastliðinn föstudag var skrifað
undir samkomulag þess efnis að rík-
issjóður taki yfir lífeyrisskuldbind-
ingar þeirra hjúkrunarheimila sem
fram til þessa hafa verið rekin með
ábyrgð sveitarfélaga. Hér er ein-
ungis um hluta hjúkrunarheimila
í landinu að ræða þar sem lífeyris-
skuldbindingar margra þeirra höfðu
áður verið færðar til ríkisins. Heild-
arlífeyrisskuldir þessara sveitarfé-
laga vegna reksturs hjúkrunarheim-
ila voru um 3,5 milljarðar króna um
síðustu áramót. Stærsta einstaka líf-
eyrisskuldbindingin hér á landi var
hins vegar á Akranesi þar sem allar
lífeyrisskuldbindingar vegna starfs-
fólks Dvalar- og hjúkrunarheim-
ilisins Höfða voru á ábyrgð Akra-
neskaupstaðar og Hvalfjarðarsveit-
ar, sem á 10% í heimilinu á móti
90% hlut Skagamanna. Samkomu-
lagið nú miðast við að yfirtaka rík-
isins á lífeyrisskuldbindingunum
verður afturvirk til 1. janúar 2016.
Fyrir Hjúkrunar- og dvalarheimil-
ið Höfða voru þessar skulbinging-
ar um einn milljarður króna og mun
samkomulagið því lækka lífeyris-
skuldbindingar bæjarsjóðs Akranes-
kaupstaðar um fjórðung.
„Þetta samkomulag er gríðarlegur
áfangi fyrir okkur enda miklir hags-
munir í húfi. Með þessu erum við að
lækka skuldir bæjarjóðs verulega, og
auðvelda rekstur hjúkrunar og dval-
arheimislisins,“ segir Ólafur Adolfs-
son formaður bæjarráðs í samtali við
Skessuhorn. „Við þennan áfanga vil
ég þakka Regínu Ásvaldsdóttur bæj-
arstjóra og fjármáladeild Akranes-
kaupstaðar fyrir mikla vinnu við að
ná þessu fram, en Regína situr fyrir
hönd sveitarfélaga í viðræðunefnd-
inni við ráðuneytið. Ekki síður tel
ég að vinna Haraldar Benediktsson-
ar þingmanns hafi haft úrstlitaþýð-
ingu, en hann beitti sér mjög fyrir
lausn þessara mála. Við ásamt Kjart-
ani Kjartanssyni framkvæmdastjóra
Höfða höfum lagt nótt við dag við
að lenda þessu lífeyrisskuldbindinga-
máli farsællega, en ekki er ofsagt að
þessi baggi hefur íþyngt fjárhags-
stöðu A og B hlut ársreiknings Akra-
neskaupstaðar í alltof mörg ár,“ seg-
ir Ólafur sem var að vonum glaður
þegar Skessuhorn heyrði í honum
síðastliðinn föstudag. mm
Þungu fargi létt af bæjarsjóði
Akraneskaupstaða