Skessuhorn


Skessuhorn - 02.11.2016, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 02.11.2016, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2016 31 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Skallagrímur tók á móti ÍR í Dom- ino‘s deild karla í körfuknattleik síð- astliðinn fimmtudag. Bæði lið höfðu einn sigur hvort eftir þrjá leiki og gátu með sigri lyft sér upp að miðri stigatöflunni. Skallagrímur byrjaði mjög vel en að lokum voru það ÍR- ingar sem fóru með sigur af hólmi 78-84. Skallagrímsmönnum gekk illa að höndla með knöttinn, töpuðu honum alls 26 sinnum og var það banabiti liðsins í leiknum. Sem fyrri segir byrjuðu Borgnes- ingar af miklum krafti. Þeir kom- ust í 11-2 í upphafi leiksins en eft- ir það hrundi varnarleikur liðsins og ÍR-ingar jöfnuðu metin áður en fyrsti leikhluti var úti. Liðin fylgd- ust að í upphafi annars fjórðungs en eftir það tóku gestirnir góðan sprett og náðu 13 stiga forystu. En Skalla- grímsmenn spyrntu við fótum og náðu að minnka muninn í fimm stig í hálfleik, 36-41. Snemma síðari hálfleiks náðu gest- irnir aftur yfirhöndinni í leiknum og náðu 17 stiga forskoti um miðjan þriðja leikhluta. Skallagrímsmenn komu til baka og minnkuðu muninn í átta stig en ÍR-ingar áttu lokaorð leikhlutans og höfðu góða tólf stiga forystu fyrir lokafjórðunginn. Gestirnir héldu forskoti sínu af- gerandi fyrstu mínútur fjórða leik- hluta en eftir það tóku Skallagríms- menn á sig rögg. Þeir héldu ÍR-ing- um stigalausum í fjórar mínútur og söxuðu jafnt og þétt á forskot þeirra. En því miður fyrir Borgnesinga þá dugði góður leikkafli þeim ekki til að stela sigrinum. ÍR-ingar unnu að lokum með sex stigum, 78-84. Flenard Whitfield skoraði 25 stig fyrir Skallagrím, reif niður 17 frá- köst og gaf fimm stoðsendingar. Kristófer Gíslason skoraði 13 stig og tók ellefu fráköst, Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 13 stig einnig og Darrel Flake var með tíu stig og sjö fráköst. Skallagrímur er eftir leikinn í 9. sæti deildarinnar með tvö stig eft- ir fjóra leiki, jafn mörg og Haukar, Þór Ak. og Njarðvík. Síðastnefnda liðið er einmitt næsti andstæðing- ur Skallagrímsmanna. Þau mætast í Njarðvík á morgun fimmtudaginn 3. nóvember. kgk Misstu boltann og þar með sigurinn úr greipum sér Flenard Whitfield treður í leiknum gegn ÍR á fimmtudag. Ljósm. Skallagrímur Körfubolti á Facebook. Á föstudag mættust ÍA og Ármann í botnslag 1. deildar karla í körfuknatt- leik. Fyrir leikinn var hvorugt lið komið á blað í deildinni. Skagamenn höfðu tapað fyrstu fjórum leikjunum í vetur en Ármenningar fyrstu fimm leikjum sínum. Fór að lokum svo að Skagamenn sigruðu 65-88 og nældu sér í fyrstu stig tímabilsins. Jafnt var á með liðunum á fyrstu mínútum leiksins áður en Skaga- menn náðu yfirhöndinni um miðjan upphafsfjórðunginn. Þeir náðu níu stiga forystu en á síðustu 90 sekúnd- um leikhlutans svöruðu heimamenn heldur betur fyrir sig og minnk- uðu muninn í eitt stig, 19-20. Leik- menn ÍA létu það hins vegar ekki slá sig út af laginu. Þeir léku vel í öðrum fjórðungi og stjórnuðu gangi leiks- ins. Forskot Skagamanna óx jafnt og þétt allan leikhlutann og leiddu þeir afgerandi þegar flautað var til hálf- leiks, 30-48. Síðari hálfleikur fór fremur rólega af stað. Skagamenn fundu ekki al- mennilega taktinn í sókninni en að sama skapi gerðu Ármenningar eng- ar rósir. Þeir náðu aðeins að minnka forskot Skagamanna og fyrir loka- fjórðunginn munaði ellefu stigum á liðunum. Þar voru Skagamenn sterk- ari og með góðum kafla um miðjan leikhlutann gerðu þeir endanlega út um allar vonir heimamanna að fá eitthvað út úr leiknum. Skagamenn einfaldlega sigldu sigrinum heim í lokafjórðungnum og unnu með 23 stigum, 65-88. Derek Shouse átti sannkallaðan stórleik fyrir ÍA, skoraði 40 stig, tók 13 fráköst og gaf fimm stoðsending- ar. Jón Orri Kristjánsson kom honum næstur með 13 stig og 14 fráköst og þá skoraði Sindri Leví Ingason ellefu stig. Sem fyrr segir var þetta fyrsti sigur Skagamanna í deildinni í vetur. Þeir hafa því tvö stig eftir fimm leiki og sitja í 8. og næstneðsta sæti deildar- innar. Skagamenn eru með jafnmörg stig og Vestri í sætinu fyrir ofan en eiga leik til góða. Næst leikur ÍA á morgun, fimmtudaginn 3. nóvem- ber, þegar liðið fær Val í heimsókn á Akranes. kgk Skagamenn komnir á blað í 1. deildinni Derek Shouse átti stórleik fyrir ÍA og skoraði 40 stig í fyrsta sigri vetrarins. Ljósm. jho. Á miðvikudagskvöld fóru Snæfells- konur suður með sjó og öttu kappi við Grindavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Snæfell lék án Taylor Brown, sem er farin heim til Bandaríkjanna af persónulegum ástæðum og leikur ekki meir með liðinu. Leikurinn á miðvikudag var jafn og spennandi og þurfti að fram- lengja til að knýja fram sigurvegara. Að endingu var það Grindavík sem fór með þriggja stiga sigur af hólmi, 66-69. Grindavík byrjaði leikinn af mikl- um krafti en Snæfellskonur náðu sér ekki á strik í upphafi og var 15 stig- um á eftir þegar annar fjórðungur hófst. Þær voru hins vegar sterk- ara lið vallarins í öðrum leikhlutan- um og minnkuðu forskotið niður í fimm stig, 30-25 þegar flautað var til hálfleiks. Hólmarar komu sterkir til leiks eftir hléið og komust yfir um miðj- an þriðja leikhluta. Grindavíkurlið- ið spyrnti við fótum og minnkaði muninn í eitt stig en Snæfell kláraði leikhlutann af krafti og leiddi með fjórum stigum, 38-42 fyrir loka- fjórðunginn. Snæfell lék vel í fjórða leikhluta, náði snemma níu stiga forskoti og allt benti til þess að Ís- landsmeistararnir ætluðu að sigla sigrinum heim. En þegar þrjár mín- útur lifðu leiks náðu Grindvíkingar stórgóðum leikkafla og minnkuðu muninn í aðeins eitt stig. Upphóf- ust þá æsispennandi lokamínútur þar sem Snæfell leiddi með einu stigi en Grindvíkingar fylgdu þeim eins og skugginn. Bryndís Guð- mundsdóttir kom Snæfelli þrem- ur stigum yfir þegar tíu sekúndur lifðu leiks. Grindvíkingar brunuðu upp í sókn og Ashley Grimes skaut þriggja stiga skoti sem hitti og jafn- aði metin, 58-58 og knúði fram framlengingu. Þar var leikurinn í járnum. Snæ- fell skoraði fyrstu stigin en Grind- víkingar svöruðu. Forskot Íslands- meistaranna var aðeins eitt stig allt þar til á lokamínútu framlenging- arinnar. Þá komust Grindvíkingar yfir og unnu að lokum dramatískan þriggja stiga sigur, 69-66 í miklum spennuleik. Pálína Gunnlaugsdóttir var at- kvæðamest Snæfellskvenna með 17 stig og sjö fráköst. Gunnhildur Gunnarsdóttir var með 16 stig og sjö fráköst einnig og Helga Hjör- dís Björgvinsdóttir skoraði tíu stig. Áðurnefnd Ashley Grimes var at- kvæðamest Grindvíkinga með 24 stig og 16 fráköst. Eftir leikinn er Snæfell í þriðja sæti deildarinnar með átta stig, jafn mörg og lið Skallagríms í sæt- inu fyrir ofan. Næsti leikur Snæ- fells fer fram í kvöld, miðvikudag- inn 2. nóvember, þegar liðið tekur á móti Keflavík í Stykkishólmi. Bú- ist er við að þá leiki Aaryn Ellen- berg sinn fyrsta leik fyrir liðið, en henni er ætlað að fylla skarð Taylor Brown. kgk Snæfell varð að lúta í gras eftir framlengdan leik MT: Pálína Gunnlaugsdóttir var atkvæðamest Snæfells í leiknum gegn Grindavík. Ljósm. sá. Heil umferð fór fram í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik að kvöldi síðasta miðvikudags. Í Borgar- nesi var nýliðaslagur þar sem Skalla- grímur tók á móti Njarðvík, en liðin léku einmitt um deildarmeistaratit- il 1. deildar síðastliðið vor. Skemmst er frá því að segja að Skallagrímskon- ur gersamlega pökkuðu Njarðvíkur- liðinu saman og sigruðu með 85 stig- um gegn 52. Jafnt var á með liðunum í upp- hafi leiks og það voru gestirnir sem náðu yfirhöndinni um miðjan fyrsta fjórðunginn og leiddu með fjórum stigum að honum loknum. En for- skotinu héldu þær ekki mikið leng- ur því Skallagrímskonur komust yfir strax í upphafi annars leikhluta og tóku stjórn leiksins í sínar hendur. Þær náðu góðum leikkafla og stungu af um miðjan leikhlutann og leiddu með 14 stigum í hálfleik, 37-23. Síðari hálfleikur var algjör ein- stefna. Skallagrímskonur voru mun betri og bættu við forskot sitt hægt og sígandi eftir því sem leið á leik- inn. Áður en þriðji leikhluti var úti var munurinn orðinn 29 stig og átti enn eftir að aukast. Þegar lokaflautan gall munaði 33 stigum á liðunum og Skallagrímur sigraði 85-52. Tavelyn Tillman var atkvæðamest Skallagrímskvenna með 26 stig, sjö fráköst, sjö stoðsendingar og fjóra stolna bolta. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði tólf stig, Ragnheiður Benón- ísdóttir var með tíu stig og átta fráköst og Jóhanna Björk Sveinsdóttir sömu- leiðis með tíu stig en sjö fráköst. Skallagrímur lyfti sér með sigr- inum upp í annað sæti deildarinn- ar með átta stig, jafn mörg og Snæ- fell sem situr í því þriðja. Næst leikur Skallagrímur í kvöld, miðvikudaginn 2. nóvember, þegar liðið heimsækir Val. kgk Skallagrímur pakkaði Njarðvík saman Tavelyn Tillman skorar tvö af 26 stigum sínum í leiknum. Ljósm. Kvennakarfa Skallagríms á Facebook. Snæfell mætti Þór Þorlákshöfn í Domino‘s deild karla síðastliðinn föstudag. Leikið var í Þorlákshöfn og voru það heimamenn sem fóru með sigur af hólmi, 110-85 og Snæ- fell því enn án sigurs í vetur. Strax í upphafi leiks var ljóst í hvað stefndi. Leikmenn Þórs byrj- uðu af miklum krafti, náðu snemma forystunni og létu hana aldrei af hendi. Þeir höfðu níu stiga forskot eftir fyrsta leikhluta en Snæfellingar spyrntu við fótum í öðrum fjórðungi og náðu að minnka muninn í fimm stig. Síðustu mínútur fyrri hálfleiks bættu heimamenn hins vegar aft- ur við og leiddu með tólf stigum í hléinu, 54-42. Heimamenn bættu lítillega við forskot sitt í upphafi fyrri hálfleiks áður en þeir stungu af þegar þriðji leikhluti var hálfnaður. Þeir höfðu á bilinu 20 til 26 stiga forskot allt til leiksloka og unnu að lokum örugg- lega, 110-85. Sefton Barrett dró vagninn fyrir Snæfell með 35 stig, 15 fráköst og fimm stoðsendingar en það dugði skammt geng liði Þórs þar sem allir leikmenn komust á blað í leiknum. Næstir Sefton í stigaskori Snæfells- liðsins voru Andrée Fares Michels- son með ellefu stig og Viktor Mar- ínó Alexandersson með tíu en aðrir höfðu minna. Sem fyrr segir er Snæfellsliðið enn án stiga eftir fyrstu fjóra leiki vetrar- ins og situr á botni Domino‘s deild- arinnar, tveimur stigum á eftir næstu þremur liðum fyrir ofan. Snæfell leikur næst á morgun, fimmtudag- inn 3. nóvember, þegar liðið tekur á móti Stjörnunni. kgk/ Ljósm. karfan.is á Facebook. Sefton með stórleik í tapi Snæfells

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.