Skessuhorn - 02.11.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Um þessar mundir standa yfir
Vökudagar á Akranesi. Að venju
eru fjölmargir viðburðir í boði,
bæjarbúum og öðrum til yndis og
ánægju. Einn viðburðurinn ,,Um-
breyting - Eitthvað verður annað,“
er samsýning átta nemenda og fjög-
urra kennara úr Grundaskóla. Við-
fangsefnið er að nýta gamla hluti til
endurhönnunar og endursköpun-
ar þar sem ofgnótt og neysluhyggja
einkenna samtímann. Sýningin er
ótrúlega flott og mörg verkin eiga
sjálfsagt eftir að standa lengi. Á það
ekki síður við um verk unga fólks-
ins en kennaranna.
En það er ekki sýningin sjálf,
þó glæsileg sé, sem er ástæða þess
að ég set þessar línur á blað. Það
er verkefnið sjálft sem mér finnst
svo merkilegt. Sýningin sprettur
ekki upp af engu! Hún er afrakstur
margra vikna vinnu þeirra sem að
henni standa.
Fjórir kennarar sem allir stunda
ólíkar listgreinar meðfram grunn-
skólakennslu tóku sig saman fyr-
ir fjórum árum og bjuggu til þetta
verkefni, með það að markmiði
að samþætta ólíkar listgreinar og
stuðla að samvinnu nemenda og
kennara óháð aldri og reynslu.
Það eitt, að gefa ungu fólki tæki-
færi til að finna hæfileikum sínum
farveg við listsköpun undir hand-
leiðslu fullorðinna, en þó á jafn-
ingjagrundvelli er frábært framtak.
Að gera það síðan í sínum frítíma
er aðdáunarvert! Í sameiningu naut
hópurinn handleiðslu listakonunn-
ar Helenu Guttormsdóttur. Í ferl-
inu eru allir jafnir, allir miðla, ungir
læra af þeim sem eldri eru og öfugt.
Viðfangsefni verkefnisins gefur til-
efni til gagnrýninnar hugsunar.
Verkefnið er styrkt af Uppbygg-
ingasjóði Vesturlands. Þar stendur
sjóðurinn algjörlega undir nafni.
Að byggja upp, styðja við og styrkja
ungt fólk og gefa þeim veganesti
sem getur hvort sem er nýst þeim
á komandi starfsvettvangi eða ýtt
undir áhugamál sem stuðlar að
innihaldsíkum tómstundum. Það
að eiga sér áhugamál og geta stund-
að það við góð skilyrði undir góðri
handleiðslu er lykilatriði í öllu for-
varnarstarfi hvort sem er í íþróttum
eða listum.
Um leið og ég óska aðstandend-
um verkefnisins til hamingju hvet
ég bæjarbúa og ekki síður aðra til
að gera sér ferð í matsalinn í Sem-
entverksmiðjunni og skoða glæsi-
lega sýningu.
Heiðrún Janusardóttir
Höf. er verkefnisstjóri æskulýðs- og
forvarnarmála hjá Akraneskaupstað.
Pennagrein Pennagrein
Uppbyggingasjóður í
forvarnarstarfi!
Bob Dylan, eftir Loga.
Snarpri kosningabaráttu er lokið.
Við í Norðvesturkjördæmi get-
um verið stolt af góðum árangri
Vinstri grænna. Hreyfingin fékk
18,1% atkvæða sem hefði að öllu
eðlilegu átt að skila okkur tveim-
ur þingmönnum. Flokkurinn jók
fylgi sitt á landsvísu í 15,9% og er
útkoma okkar í þeim samanburði
glæsileg. Þetta er önnur besta út-
koma flokksins í kjördæminu frá
stofnun hans en árið 2009 fékk
hann 22,8% og þrjá menn kjörna.
Skoðanakannanir höfðu sýnt
allt kjörtímabilið að flokkurinn
átti í vök að verjast í kjördæminu
miðað við fylgi hans á landsvísu og
kannanir síðastliðið vor bentu til
þess að fylgi flokksins yfir landið
væri hvað lakast í NV kjördæmi.
Við fundum fyrir miklum meðbyr
síðustu vikur og í kosningunum á
laugardaginn ríflega tvöfaldaðist
fylgið frá síðustu kosningum, sem
er jafnframt helmingi meiri aukn-
ing en hjá hreyfingunni á landsvísu
og kjörfylgið hér er nú talsvert yfir
kjörfylgi flokksins yfir landið.
Við vissum öll að 2. sætið var
baráttusæti og gæti farið á báða
vegu. Ég viðurkenni fúslega að
hafa lagt mig allan fram, hef far-
ið um allt kjördæmið, ekið vegina
holótta og skrikkjótta og veit hvað
þar brennur á fólki. Ég hef hitt
og kynnst fjölda fólks víðsvegar
um kjördæmið og fyrir það er ég
þakklátur. Annað sætið er nú vara-
þingmannssæti og ég vænti þess að
fá tækifæri til að koma málefnum
kjördæmisins á framfæri á Alþingi
en einnig að vinna að innra starfi
hreyfingarinnar í kjördæminu.
Ég vil þakka öllu stuðnings-
fólki fyrir það traust og hvatningu
sem það hefur sýnt okkur í barátt-
unni. Á framboðslista okkar voru
öflugir einstaklingar og baráttu-
sveit sem bæði í krafti hugsjóna,
reynslu og metnaðar vilja gera vel
fyrir íslenskt samfélag. Hópur sem
í sameiningu vann góðan kosn-
ingasigur í NV kjördæmi. Með-
frambjóðendum á listanum þakka
ég gott samstarf og skemmtilega
kosningabaráttu.
Bjarni Jónsson
Ágæta stuðningsfólk!
Pennagrein
Kærar þakkir fyrir það mikla traust
sem þið sýnduð framboði Sjálf-
stæðisflokksins í alþingiskosning-
um 29. október sl. Markmið okk-
ar um að fá þrjá þingmenn kjörna
náðist. Slíku takmarki er ekki auð-
velt að ná í kjördæmi sem aðeins
hefur átta þingmenn og mörg
framboð. En niðurstaðan er skýr,
góður sigur framboðsins.
Sigrinum fylgir ábyrgð. Við lof-
uðum að vinna þjóðinni allt það
gagn sem við gætum og kjördæm-
inu okkar. Við lögðum sérstaka
áherslu á ýmis úrbótamál sem þarf
að vinna að. Þau eru mörg og
breytileg í okkar víðfeðma kjör-
dæmi. En þau eru öll mál sem þið
í þeim byggðum leggið áherslu á.
Þannig á okkar starf að vera, vinna
með fólkinu að betra samfélagi.
Við þökkum góðar móttökur
í fyrirtækjum og stofnunum. Að
þessu sinni náðist ekki að fara
eins víða og æskilegt er. Barátt-
an var stutt og tíminn af skorn-
um skammti. Það er einstaklega
ánægjulegt að upplifa nú, þær
miklu breytingar sem hafa orðið
frá því að við kusum 2013. Nú ríkti
bjartsýni og kraftur. Mikilvægast
af öllu er að varðveita það.
Sjálfstæðimenn um allt kjör-
dæmið lögðu sig alla fram í þess-
ari baráttu. Þeirra er sigurinn og
þeirra er þessi árangur. Það er
ekki sjálfgefið að svo margt hæfi-
leikaríkt fólk leggi svo hart að sér í
sjálfboðavinnu. En einmitt þannig
látum við hvert og eitt verkin tala.
Við viljum öll vinna samfélögum
okkar gagn og standa með þeim.
Frambjóðendum annarra flokka
sendum við okkar bestu kveðj-
ur. Sú mikla vinna og álag sem
fylgir ferðalögum og kosningabar-
áttu í NV kjördæmi er líka mikill
skóli. Þann skóla höfum við allir
frambjóðendur tekið og þakka ég
drengilega og skemmtilega baráttu
sem aldrei bar skugga á.
Nú liggur fyrir að mynda sterka
ríksstjórn. Það er í mínum huga
einboðið að Sjálfstæðisflokkurinn
eigi þar aðild og formaður okkar
Bjarni Benediktsson leiði þá stjórn.
Enda er ein niðurstaða kosning-
anna að engin stjórnmálaleiðtogi
nýtur jafn mikils trausts.
Kærar þakkir fyrir skemmtilega
októberdaga.
Haraldur Benediktsson.
Höf er 1. þingmaður Norvestur-
kjördæmis og oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminu.
Takk fyrir traustið