Skessuhorn - 14.12.2016, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 50. tbl. 19. árg. 14. desember 2016 - kr. 750 í lausasölu
Gjafakort Arion banka er hægt
að nota hvar sem er.
Gjafakortið fæst í öllum útibúum
okkar og á arionbanki.is/gjafakort
Jólagjöf sem
allir geta notað
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
Verkir í liðum?
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Fyrir leik ÍA og Hattar í 1. deild karla í körfuknatt-
leik sem fram fór síðastliðinn föstudag mættu leikmenn
yngri flokka Skagaliðsins á völlinn og afhentu ágóðann
af sölu Bleiku og Bláu slaufunnar. Allir iðkendur félags-
ins spiluðu með slaufurnar á búningum sínum á öllum
mótum í október og nóvember og seldu þær síðan.
Ákveðið var að nýta ágóðann til að styrkja gott málefni
og var það félagið Englaforeldrar á Akranesi sem naut
góðs af sölu slaufanna, en Englaforeldrar er hópur for-
eldra á Akranesi sem misst hafa börn sín og vilja leggja
öðrum foreldrum í sömu stöðu lið. Guðbjörg Þórunn
Sveinsdóttir, formaður Englaforeldra, veitti styrknum
viðtöku fyrir hönd félagsins. „Vonum við að hann komi
að góðum notum,“ segir í tilkynningu frá Körfuknatt-
leiksfélagi ÍA.
kgk/ Ljósm. jho.
Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdótt-
ir úr Golfklúbbnum Leyni á Akra-
nesi komst áfram á lokaúrtökumót-
ið fyrir LET Evrópumótaröð-
ina, sterkustu mótaröð í Evrópu.
Valdís lék lokahringinn á úrtöku-
mótinu, sem leikinn var í Marokkó
á mánudaginn, á 75 höggum, eða
samtals þremur yfir pari. Samtals
lék hún hringina fjóra á 12 högg-
um yfir pari og endaði í 12.-13. sæti
á mótinu, en alls komast 30 áfram
á lokaúrtökumótið sem fer fram í
Marokkó dagana 17.-21. desember
næstkomandi.
Þetta er í fjórða skipti sem Valdís
tekur þátt í úrtökumóti LET Evr-
ópumótaraðarinnar. Á fyrsta stig-
inu í Marokkó voru 57 keppend-
ur alls en keppt var á fjórum mis-
munandi stöðum á þessu fyrsta stigi
mótsins.
Valdís hefur undanfarnar vikur
verið við æfingar í Bandaríkjun-
um. Í samtali við golf.is segir hún
að æfingarnar hafi gengið vel, en
verið misjafnar eins og gengur og
gerist, sveiflan hafi verið ágæt en
henni hafi þótt vantað herslumun-
inn. „Sem kom síðan þegar ég hitti
á Hlyn Geir Hjaltason þjálfarann
minn sl. mánudag á Íslandi. Hann
lagaði tempóið og jafnvægið í þessu
hjá mér og það small allt. Púttæf-
ingarnar í Orlando gengu mjög
vel,“ segir Valdís í samtali við golf.
is.
Hún komst inn á lokaúrtök-
umótið á síðasta ári en hefur leik-
ið á LET Access mótaröðinni síð-
ustu þrjú tímabil. „Væntingarnar
hjá mér eru að komast í gegnum
þetta allt saman stig af stigi. Ég
ætla að einbeita mér að því að halda
ró minni, hafa tempóið í lagi og þá
get ég spilað gott golf,“ segir Valdís
í frétt á golf.is.
kgk
Valdís Þóra aðeins
feti frá Evrópu-
mótaröðinni
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golf-
klúbbnum Leyni á Akranesi.
Ljósm. kylfingur.is.
Í Skessuhorni í síðustu viku var
frétt þess efnis að biskup hafi í byrj-
un þessa mánaðar tilkynnt sóknar-
nefndum í Staðastaðarprestakalli um
þá ákvörðun sína að aflétta búsetu-
skyldu sóknarprests á kirkjustaðnum
Staðastað. Séra Þorvaldur Víðisson
biskupsritari segir að ákvörðunin
feli í sér að sóknarprestur geti nú
um sinn ákveðið hvar búseta hans
verður. Hluti sóknarbarna í Staða-
staðarsókn á erfitt með að una þess-
ari niðurstöðu og segist ekki skilja
hana, telja jafnvel að prestsbústað-
urinn sé nú eitt besta íbúðarhúsið í
sveitinni eftir lagfæringar sem gerð-
ar hafa verið á því.
Skessuhorn fékk eftir birtingu
fréttarinnar í síðustu viku send
minnisblöð og skýrslur sem ritaðar
voru um ástand prestsbústaðarins
á síðasta ári og úttektir sem gerðar
voru á húsinu eftir að töluvert mikl-
ar og kostnaðarsamar lagfæringar
voru gerðar á því í fyrravetur. Verk-
fræðistofan Verkís hafði umsjón
með lagfæringum á húsinu. Stefán
Andrésson hjá framkvæmda-, eftir-
lits- og byggingasviði Verkís stað-
festir í minnisblaði frá 9. apríl síðast-
liðnum að vel hafi tekist til með lag-
færingar og breytingar á húsinu og
það sé nú í góðu lagi. Því til staðfest-
ingar hafi meðal annars verið lagðar
fram niðurstöður loft- og snertisýna
sem tekin voru 1. mars 2016. Niður-
stöður sýnanna útiloki meðal annars
að húsið hafi myglusvepp. Í kjölfar
heimsóknar í prestsbústaðinn haust-
ið 2015 gaf Helgi Helgason, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Vesturlands (HeV), út þann úrskurð
að húsið væri heilsuspillandi og ekki
íbúðarhæft. Ráðlagði hann sókn-
arpresti og fjölskyldu þá að flytja
úr húsinu þar til viðgerð hafi farið
fram sérstaklega vegna raka í kjall-
ara og viðbyggingu. Helgi fram-
kvæmdi síðan aðra úttekt á húsinu
eftir að viðgerðir höfðu átt sér stað
í vor. Í bréfi frá 11. apríl síðastliðn-
um skrifar Helgi: „Við úttekt HeV
á húsnæðinu er niðurstaðan sú að
HeV telur að unnið hafi verið að
fagmennsku við endurbætur og hús-
næðið sé komið í samt lag og ekki
heilsuspillandi.“
Eftir að Skessuhorn hafði feng-
ið send fyrrgreinda minnispunkta
og bréf sem votta viðgerðir og gefa
húsinu „heilbrigðisvottorð“, var
leitað til Biskupsstofu og beðið um
útskýringar á af hverju biskup tók
þá ákvörðun að aflétta engu að síður
búsetuskyldu sóknarprests á Staðar-
stað frá og með 2. desember síðast-
liðnum. Fyrir svörum varð sem fyrr
Þorvaldur Víðisson biskupsritari.
Hann segir ákvörðun biskups ekki
fela í sér að verið sé að leggja prests-
setrið á Staðastað niður. „Ástæða
ákvörðunarinnar er sú að fólk er
misjafnlega viðkvæmt fyrir því að
búa í húsnæði sem þurft hefur að
laga vegna raka og hugsanlegrar
myglu. Biskup taldi ekki fært að
knýja sóknarprestinn og fjölskyldu
hans til að flytja aftur inn í íbúðar-
húsið á Staðastað að svo stöddu,“
segir Þorvaldur.
mm
Prestsbústaður lagfærður og talinn íbúðarhæfur
Körfuboltakrakkar styrktu Englaforeldra
Svunta
www.smaprent.is