Skessuhorn - 14.12.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 201616
„Þetta er rúsínan í pylsuendanum
hjá okkur hér á Snæfellsnesi sem
við höfum verið að prófa að rækta
hjá okkur í gróðurhúsinu á ræktun-
arstöðinni undanfarin fjögur ár,“
segir Áslaug Sigvaldadóttir í sam-
tali við Skessuhorn. Hún á og rek-
ur Ræktunarstöðina að Lágafelli í
Eyja- og Miklaholtshreppi ásamt
eiginmanni sínum Þórði Runólfs-
syni. Fengu þau nýverið styrk úr
Uppbyggingarsjóði Vesturlands
til að vinna að þróun á „Snæfellska
kryddinu sæhvönn.“
Eins og nafnið gefur vísbend-
ingu um er kryddið unnið úr sæ-
hvönn, sem að sögn Áslaugar er
nokkuð sérstök planta, óalgeng
og villt í náttúrunni vex hún ein-
göngu í grýttum fjörum. Sæ-
hvönnin er ekki systir ætihvannar-
innar þó nafnið gefi það til kynna.
Hún er skyldari skessujurtinni,
eða maggi-jurtinni eins og hún
er stundum kölluð. Plantan hefur
ekki mikið verið notuð í matar-
gerð í gegnum tíðina. „Blöðin eru
glansandi og falleg og sæhvönn var
notuð sem skrautjurt á 20. öldinni
í görðum í Reykjavík. Fólk hef-
ur kannski ekki áttað sig á því að
þetta væri æt planta, enda gefur
hún sterkt bragð og mikið eins og
öll krydd,“ segir Áslaug. „Hún var
aftur á móti þekkt sem lækninga-
jurt á öldum áður og þá var aðal-
lega notuð rótin og fræin,“ segir
hún en bætir því við að þó þekki
hún dæmi þess að hún hafi verið
notuð við matseld og þá einmitt á
Snæfellsnesi. „Rúnar Marvinsson,
sem var kokkur á Búðum í gamla
daga, notaði plöntuna í matargerð
á sínum tíma og kallaði hana „snæ-
fellsku steinseljuna.“ Undanfarin
ár hafa kokkar á Búðum, Narfeyr-
arstofu og Sjávarpakkhúsinu ver-
ið að nota fersk lauf af Sæhvönn-
inni frá okkur til að krydda, blanda
drykki, grafa lamb og fisk og fleira.
Við byrjuðum einmitt þessa ræktun
sem við erum í núna með fræjum
sem við fengum frá Agnesi Lind
Heiðarsdóttur á Búðum,“ segir
Áslaug. „Bragðið er afgerandi og
plantan gefur einnig sérstakt eft-
irbragð. Sumir kunna vel að meta
hana sem krydd en aðrir ekki, eins
og gengur,“ bætir hún við.
Vonast til að
hefja sölu í vor
Áslaug segir að til kryddgerðar-
innar á Lágafelli hafi þau fyrst og
fremst notað laufblöð sæhvannar-
innar, en einnig hafi þau prófað
fræin og rótina. „Fræin gefa líka
sérstakt bragð og rótin enn eitt
bragðið, þannig að þetta er mjög
forvitnileg planta,“ segir Áslaug
og bætir því við að hún og Þórður
hafi verið dugleg að prófa kryddið
við matseld heima fyrir, en einn-
ig hafi kokkar á Snæfellsnesi tek-
ið jákvætt í og verið duglegir að
prófa sæhvönnina. En tilrauna-
starfsemi þessi miðar vitaskuld að
ákveðnu markmiði. „Okkar ætlun
er að þurrka laufin, koma í neyt-
endaumbúðir og selja í verslanir,“
segir Áslaug. „Til þess þurftum við
að lengja tímabilið sem hægt er að
tína plöntuna og höfum unnið að
því síðustu ár. Áður var ekki hægt
að nýta hana nema úti í náttúrunni
frá því í lok maí og kannski fram í
byrjun september. En í gróðurhús-
inu má tína hana frá marsmánuði
og alveg fram í nóvember. Það var
eiginlega forsenda þess að hægt
yrði að rækta plöntuna í nýtanlegu
magni,“ segir hún. Næst á dagskrá
segir hún að sé að láta greina virku
efnin í plöntunni og næringarefn-
in. „Það er í rauninni verkefnið
sem framundan er á næstu mánuð-
um, áður en hægt verður að fara út
í þurrkunina af fullum krafti og að
koma sæhvönninni í neytendaum-
búðir og markaðssetja,“ segir hún.
En hvenær mega landsmenn vænta
þess að sjá sæhvönnina í hillum
verslana?
„Stefnan er að vera búin að koma
kryddinu í neytendaumbúðir næsta
sumar og upp úr því mega Snæ-
fellingar eiga von á að sjá krydd-
ið í verslunum. Þetta er spennandi
verkefni sem við ætlum að halda
áfram að þróa og það verður gam-
an að sjá hvernig framvindan verð-
ur,“ segir Áslaug að lokum.
kgk
Nýlega voru tveir nemendur frá
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi valdir til að verða fulltrú-
ar Íslands í fjölþjóðlegu samstarfs-
verkefni Oddfellowreglunnar og
Sameinuðu þjóðanna, sem nefn-
ist „United Nations Pilgrimage
of Youth“. Valið fór þannig fram
að nemendur gerðu ritgerðir í
enskuáfanga sem tengjast starfsemi
Sameinuðu þjóðanna. Enskukenn-
arar völdu tíu bestu ritgerðirn-
ar og valnefnd frá Oddfellowregl-
unni tók síðan viðtöl við þá nem-
endur og valdi úr hópnum tvo full-
trúa sem fara í ferðina.
Ástæðan fyrir því að nemendur
FVA fá þetta tækifæri núna er að
regludeildir innan Oddfellowregl-
unnar á Íslandi skiptast á að sjá um
þetta starf og komið var að tveimur
regludeildum á Akranesi, sem heita
Oddfellowbúðir nr. 4 Borg og Re-
bekkubúðir nr. 4 Brák. Árlega eru
tveir þátttakendur sendir frá Ís-
landi en aðrir þátttakendur koma
frá hinum ýmsu ríkjum Bandaríkj-
anna, hinum Norðurlöndunum og
öðrum Evrópulöndum. Samtals
eru þátttakendur 200-300 manns,
ungmenni og fararstjórar.
Þau sem valin voru til þátttöku
fara í ellefu daga skipulagða ferð
um Bandaríkin og Kanada dag-
ana 8.-18. júlí 2017, þar sem há-
punkturinn verður heimsókn til
Sameinuðu þjóðanna í New York.
Flogið er til Philadelphiu, þaðan
haldið með rútu til New York þar
sem stoppað er í þrjá daga, síðan
er Washington heimsótt og í Kan-
ada eru viðkomustaðirnir Ottawa
og Toronto. Hjá Sameinuðu þjóð-
unum í New York fá þátttakendur
kynningar á starfsemi og hlutverki
samtakanna, fara í skoðunarferðir
og svo er haldin ræðukeppni með-
al þátttakenda.
Hingað til hafa nemendur frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti,
Flensborg, Borgarholtsskóla,
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri og Menntaskólanum á Akur-
eyri verið fulltrúar Íslands í svona
ferðum en núna er komið að Fjöl-
brautaskóla Vesturlands. Íslenskur
fararstjóri, sem var einnig í val-
nefndinni, fylgir íslensku þátttak-
endunum í ferðinni og er það Ása
Kristín Margeirsdóttir kennari úr
Reykjanesbæ.
Nemendur sem voru með bestu
ritgerðirnar eru í stafrófsröð: Að-
albjörg Egilsdóttir, Bergsveinn
Logi Ríkharðsson, Guðbjörg Halla
Arnardóttir, Gunnar Jóhannesson,
Gyða Kolbrún Hallgrímsdóttir,
Irma Alexandersdóttir, Jón Mýrdal
Böðvarsson, Júlía Rós Þorsteins-
dóttir, Kristmann Dagur Einars-
son og Sólveig Erla Þorsteinsdótt-
ir. Þau sem voru valdin sem full-
trúar Íslands í ferðinni næsta sum-
ar eru Aðalbjörg Egilsdóttir og
Bergsveinn Logi Ríkharðsson.
„Oddfellowreglan og Fjölbrauta-
skóli Vesturlands óska öllum þeim
sem skiluðu bestu ritgerðunum til
hamingju með góða verkefnavinnu
og sérstaklega þeim sem valin
voru til að taka þátt í verkefninu.
Aðalbjörgu og Bergsveini er ósk-
að góðrar ferðar, góðrar skemmt-
unar og ekki síst góðrar viðbótar
í reynslubankann,“ segir í tilkynn-
ingu. mm/bg
Nemendur úr FVA verða fulltrúar Íslands í fjölþjóðlegu verkefni
Frá vinstri: Vinningshafarnir Bergsveinn Logi Ríkharðsson og Aðalbjörg Egilsdóttir, Bergþór Guðmundsson frá Oddfellow-
búðum nr. 4 Borg, Jóna María Kjerúlf frá Rebekkubúðum nr. 4 Brák og Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari FVA.
Snæfellska kryddið sæhvönn í þróun á Lágafelli
Áslaug Sigvaldadóttir að vinna í salatinu í gróðurhúsinu á Ræktunarstöðinni að Lágafelli.
Sæhvönn í gróðurhúsinu í ræktunarstöðinni.