Skessuhorn - 14.12.2016, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 201618
Lionsklúbbur Grundarfjarðar hélt
árlegan jólamarkað í Sögumiðstöð-
inni um liðna helgi. Þar var hægt
að næla sér í jólatré, greni, fisk og
fleira góðgæti. Mesta athygli vakti
þá heimsókn Hurðaskellis sem kíkti
við og spjallaði við börnin. Ekki
voru þó allir hrifnir af gassagang-
inum í jólasveininum káta en hann
náði þó að vinna þau flest yfir á sitt
band áður en hann þurfti að hlaupa
til fjalla. tfk
Jólamarkaður Lions
í Grundarfirði
Hann datt heldur betur í lukku-
pottinn karlmaðurinn sem keypti
sér lottómiða í N1 í Borgarnesi
í lok nóvember. Íslensk getspá
greinir frá því að vinningshafinn
stoppi oft á leið sinni hjá N1 til að
kaupa sér kók og ákvað að þessu
sinni að taka með einn Lottómiða.
Næst þegar hann átti leið hjá bað
hann afgreiðslumanninn að renna
miðanum í gegn til að kanna hvort
það leyndist nokkuð vinningur á
miðanum sem myndi duga fyrir
kókflösku. Í ljós kom að á miðan-
um leyndist vinningsröð og upp-
skar hann ríflega 22 skattfrjáls-
ar milljónir að launum. Þess má
geta að fyrir þá upphæð gæti hann
keypt á að giska 74 þúsund kók-
flöskur.
Vinningshafinn er hins veg-
ar jarðbundinn maður og ætlar
að fjárfesta fyrir vinninginn. Að
hans sögn er besta fjárfestingin að
borga niður skuldir og það ætlar
hann sér að gera og jafnframt að
ljúka þeim framkvæmdum sem
eftir eru á heimilinu. Til hamingju
með þetta!
mm
Vestlenskur milljónamæringur
Tískusveiflur eiga sér stað allan árs-
ins hring og eru jólin engin undan-
tekning þar á. Hefðin segir að mað-
ur eigi að vera í nýjum fötum, þó
að alls ekki allir fari eftir henni nú
til dags. Jólatískan í ár er falleg, lit-
rík og margbreytileg. Rakel Ósk-
arsdóttir hjá versluninni Bjargi á
Akranesi segir jólatískuna vera fjöl-
breytta í ár, enginn ætti að þurfa að
fara í jólaköttinn. Hún segir feld
og skinn vera áberandi í jólaversl-
uninni, ásamt yfirhöfnum, kápum
og jökkum. Gjafaöskjur eru einn-
ig vinsælar sem jólagjafir. „Þar
færðu meira fyrir peninginn. Þú ert
kannski að kaupa uppáhalds ilm-
vatnið en færð eitthvað annað með,
svo sem krem eða sturtusápu af-
hent í fallegri öskju eða tösku. Þú
ert alltaf að fá kaupauka með þess-
um gjafaöskjum.“
Eitthvað fyrir alla
Rakel segir að líkt og venjulega
séu sparilegir litir áberandi í jóla-
tískunni í ár, svo sem silfur, gylltur
og hárauður. „Tískan í ár er þann-
ig að það er rosalega mikið í gangi.
Það er ekkert eitt snið í gangi held-
ur er eitthvað til sem hentar öllum.
Það er til dæmis búin að vera mikil
buxnatíska í gangi, því alls ekki all-
ar konur vilja fara í kjól. En svo eru
auðvitað til alls konar kjólar líka,
bæði aðsniðnir og víðir,“ segir Rak-
el. Í Bjargi er bæði seldur fatnaður
fyrir dömur og herra frá evrópsk-
um hönnuðum, einna helst dönsk-
um. Þar má einnig finna snyrti-
vörur, ilmi, herraskó og feldvör-
ur, svo eitthvað sé nefnt. Starfsfólk
verslunarinnar fylgist vel með nýj-
ungum á tískumarkaðinum, meðal
annars með því að fara tvisvar á ári
á tískuviku erlendis þar sem nýjasta
tíska er kynnt fyrir heiminum.
Blár vinsæll
hjá karlmönnum
Rakel segir engar stórvægileg-
ar breytingar hafa orðið á tískunni
frá því í fyrra. Einna helst séu Ís-
lendingar orðnir meðvitaðri um að
þora aðeins meira í fatavali. „Fólk
er orðið duglegra að velja sér föt í
einhverjum lit, þó að sumir lendi
alltaf í þessu klassíska svarta.“ Hún
segir vínrauðan vinsælastan af lit-
unum í kvenfatnaði ásamt „camel“
lit. „Svo eru þessir glamúrlitir eins
og gull, silfur, svart og grátt allt-
af vinsælt fyrir jólin.“ Hjá herr-
um er blár litur áberandi í fatnaði,
ásamt camel lit og brúnum. „Svo
er alltaf svart og hvítt líka, það er
auðvitað mjög sparilegt.“ Hún seg-
ir karlmannsfötin hafa tekið tölu-
verðum breytingum á undanförn-
um árum. Til að mynda sé núna
hægt að fá jakkaföt úr mjög teygj-
anlegu efni sem gefur vel eftir og
er þægilegt. „Það væri þess vegna
hægt að fara í klifur í jakkafötun-
um, þau gefa ótrúlega vel eftir og
það ætti því engin fyrirstaða að vera
að bregða sér í jakkafötin,“ seg-
ir hún og brosir. Á undanförnum
árum hafa stakir jakkar verið í tísku
og Rakel segir þá enn koma sterka
inn. „Þá eru teknar svokallaðar chi-
nos buxur við og jafnvel slaufur um
hálsinn. En ef menn velja jakka-
fötin, þá nota þeir frekar bindi.“
Hún segir notkun á hálsbindum
þó hafa minnkað aðeins í kjölfar
breytinga sem hafa orðið á herra-
skyrtum. Á þeim megi finna meiri
smáatriði sem geri það að verkum
að menn sleppa bindinu. „Tölurn-
ar eru kannski orðnar öðruvísi, það
eru ekki allir kragar eins og á sum-
um skyrtum er komið munstur inn
í kragann. Þá er það þannig að þeg-
ar maður opnar skyrtuna, þá brýtur
það upp munstrið.“
Fjölbreyttir fylgihlutir
Aðspurð um fylgihluti segir hún
það sama vera uppi á teningnum
og með fatnaðinn, tískan er fjöl-
breytt og hver og einn getur fund-
ið eitthvað fyrir sinn smekk enda
er alls konar skart í boði. „Og það
þarf heldur ekki að vera einn hlut-
ur. Konur eru jafnvel tilbúnar að
hlaða á sig mörgum hálsmenum
eða nokkrum armböndum.“ Hún
segir skinnin einnig hafa sótt á.
„Við seljum skinn frá Feldi og þeir
hafa verið mjög duglegir að koma
með alls konar nýjungar. Það næg-
ir oft ekki konum að eiga einn feld,
þær vilja oft eiga fleiri liti eða teg-
undir líka. Karlmenn skreyta sig
með treflum og upp úr miðjum
aldri vilja þeir fá sér sixpensara,“
segir Rakel. grþ
Mikið í gangi í jólatískunni
Margt er í gangi í jólatískunni í ár. Hér eru fyrirsæturnar Ingi B. Róbertsson
og Rut Ragnarsdóttir í fallegum jólafötum úr Bjargi. Ingi B. í ljósblárri skyrtu
frá Bertoni, brúnum skóm frá TGA og jakkafötum með súper „stretch“ og því
engin fyrirstaða að vera í jakkafötum. Rut er í silfur kjól frá MBYM og síðum
skyrtufrakka frá Molly Jo.
Feldur og skinn er áberandi í jólaversluninni í ár, ásamt yfirhöfnum, kápum og
jökkum. Hér er Rut í ullarslá frá Huginn Muninn og með úlfaskinn frá Feldi en
Ingi er í bláum buxum, rúllukragapeysu og ullarfrakka, allt frá Bertoni.