Skessuhorn


Skessuhorn - 14.12.2016, Side 22

Skessuhorn - 14.12.2016, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 201622 Pennagrein Ég telst víst til ungra Skagamanna þótt ég hafi lifað tímana tvenna. Þegar ég var lítil voru ekki tölv- ur og ekki farsímar og ekkert Int- ernet. Veröldin kollsteyptist hins vegar með tilkomu þessara tækni- nýjunga um það leyti sem ég var á miðju gelgjuskeiðinu. Ég naut þeirra forréttinda að vera krakki áður en þetta allt saman gerð- ist og eyddi töluverðum hluta af æsku minni niðri á Breið. Ég kunni klettana utan að og stökk þarna um eins og fjallageit á ógnarhraða, er enn með fullt af örum á leggjunum eftir að hafa flogið á hausinn og endasenst þarna um nokkrum sinnum, en örin vekja bara upp bros og ævintýraleg- ar minningar. Og kannski smá fortíð- arþrá líka. Ég vissi hvaða sílapollar voru gjöf- ulastir og hvar stærstu sílin földu sig í þeim. Ég þekkti allar fuglategund- irnar sem dvöldu á Breiðinni minni. Ég vissi um uppáhalds hreiðurstað- ina þeirra og kíkti stundum aðeins á ungana þeirra. Ég gat fylgst með því í óratíma þegar mávarnir steyptu sér í grynningarnar að sækja sér ígulker og létu þau svo detta niður á klettana og brotna til þess að ná í gómsætt gums- ið sem leyndist inni í þeim. Stundum þurftu þeir að láta kerið detta tvisv- ar sinnum áður en það brotnaði. Þeir fundu samt alltaf sitt ígulker aftur um leið. Stundum laumuðust aðrir að fiskinum og þá upphófst rifrildi sem var magnað fyrir litla stelpu að fylgj- ast með. Ég hélt alltaf með réttmæt- um eiganda. Einn af mínum uppáhaldsstöðum var aflokuð leynifjara með gulllit- uðum sandi og stærstu og litríkustu hörpuskeljum sem ég hafði séð. Ég var sannfærð um að enginn annar vissi af þessum stað. Aðeins ofar en leynifjaran var líka skemmtilegt sker og djúpt lón fyrir neðan og þegar ég var upp á mitt uppátækjasamasta þá stökk ég af skerinu og lét mig húrra þarna ofan í lónið og hræddi allar kollurnar og blikana í burtu og busl- aði svo skellihlæjandi í land. Einhvern tímann sá ég mink þarna í klettunum. Einhvern tímann fann ég hauskúpu af minki í sandinum. Þeir voru ófáir fjársjóðirnir og furðugripirnir sem ég fann í rannsóknarleiðangrum mínum um fjörurnar á Breiðinni. Í trönunum var enn annan æv- intýraheim að finna. Stundum var maður staddur í frumskógum Afríku og við krakkarnir sveifluðum okk- ur þarna eins og górillur og flúðum undan tígrisdýrum eða földum okk- ur fyrir mannræningjum í löggó- bófó leikjum. Við földum þarna líka ýmsa dýrgripi og merktum fjársjóðs- reitinn með fuglabeinum og kuðung- um. Vinkonur mínar voru þarna með bú í einum trönulundinum og þar voru ýmsir pottréttir með fjöruþema mallaðir og moldarkaffi bruggað og drullukökur skreyttar með baldurs- brám og bláliljum. Einhvern tímann fengum við lán- aða vídeóvél og tókum upp hryllings- mynd í gamla vitanum. Við stelpurn- ar í skólakórnum sátum líka oft þarna í grænu tröppunum og sungum kór- lögin okkar sem bergmáluðu þarna milli veggjanna. Við vinkuðum allt- af gömlu sjómönnunum sem rúnt- uðu þarna reglulega út að klettunum að gá til veðurs og athuga með báta á landleiðinni. Frá því að ég lítill stubbur sem rétt stóð upp úr stígvélunum fór ég reglu- lega í fjöruferðir með pabba þarna. Það var hann sem kenndi mér hvað allir fuglarnir hétu og hin ýmsu fjöru- kvikindi. Við tíndum skeljar og kuð- unga og fórum í skeljakóng. Ég er líka hálf alin upp í einum af beitusk- úrunum þarna. Sjómannsdóttir. Ræt- ur mínar og pabba eru þarna í fjör- unni og sjónum. Eins og svo margra annarra Skagamanna. Beituskúr hjá pabba var alltaf og hefur alltaf verið eins og hálfgerð fé- lagsmiðstöð. Ég sat þarna á stól og sveiflaði fótunum, japlaði á Síríus- lengju og drakk ískalda kók úr kæl- inum í Axelsbúð, og hlustaði á alla kallana spjalla saman um heima og geima og segja skemmtilegar sögur af sjálfum sér og öðrum. Þeir komu þarna og fengu kaffisopa úr brús- anum hjá pabba og reyktu pípurnar sínar og styttu pabba stundir á meðan hann beitti hvert bjóðið á fætur öðru. Í beituskúr hlustuðum við pabbi líka oft á tímamótaverk úr tónlistarheim- inum og dönsuðum jafnvel á með- an við smúluðum yfir skúrinn eftir vinnudaginn. Ég kíki enn reglulega í heimsókn í beituskúr. Einn staður á beituborð- inu er frátekinn fyrir hin ýmsu furðu- kvikindi sem hafa flækst með þeg- ar pabbi dregur fisk úr sjó og þessa gripi fá litlir fingur að handleika og skoða af hjartans lyst. Fyrir aftan skúrinn hendir pabbi beituafgöng- um fyrir mávana og mýslurnar. Fyr- ir framan skúrinn eru stórar kúskeljar með fersku vatni fyrir maríuerlurnar sem verpa alltaf í kartöflugeymslunni hans pabba. Það fá allir bita og sopa sem kíkja við í beituskúr. Beituskúr er vinnustaður, kaffihús, safn, hálfgerð- ur griðastaður, allt vafið saman í eitt og þangað finnst öllum notalegt að koma. Líka músum og maríuerlum. Í seinni tíð hafa börnin mín not- ið góðs af því að leika og basla í bei- tuskúr með afa. Við höfum farið í ófáar ævintýraferðir niður við vitana og veitt síli og marflær og tínt kuð- unga og skemmt okkur konunglega. Leikskólahópar krakkanna koma við hjá afa í fjöruferðum og kíkja á alla furðugripina og fá að heyra skemmti- legar sögur hjá þessum skemmtilega afa með mikla skeggið og blómótta rambóbandið á höfðinu. Hvílík for- réttindi að eiga svona ævintýraafa á svona ævintýrastað. Það hefur margt breyst á Breið- inni síðan ég var lítil. En þannig týn- ist tíminn ekki satt? Maður á ekki að ríghalda í fortíðina eins og mávur í skelfiskinn sinn. Trönurnar hurfu. En þær voru kannski orðnar of gaml- ar og hættulegar. Ég veit það ekki. Ég var bara leið þegar þær hurfu. Það er búið að gera stærðarinnar gat á leyni- fjöruna. Og setja kamra þar. Jú það er kannski bara eðlileg þróun og asna- legt að finnast það hálfgerð synd. Ferðamenn eru góðir fyrir efnahag- inn og gott fyrir bæinn okkar að fá þá í heimsókn. Þeir lífga upp á mannlíf- ið. Það er búið að steypa planið við vitann og loka því og gera það snyrti- legt og ferðamannavænt. Gömlu sjó- mennirnir komast ekki lengur að gá til veðurs eða sjá hvaða bátar eru á leið í land. En ferðamennirnir labba allavega á fínum palli. Það er auðvi- tað mjög mikilvæg og eðlileg þróun. Vitafélagið hefur unnið þarna flott og virðingarvert starf. Nýi vitinn stend- ur opinn og býður alla velkomna. Nýi vitinn starir þarna yfir og boðar nýja tíma og ygglir sig þegar hann sér all- an sóðaskapinn í kringum sig. Ryðg- aðir tankar og yfirgefin hús hér og þar, gamlir hjallar og bátar sem hafa ekki séð öldu í háa herrans tíð. Það gengur ekki að hafa svona sóðalegt hérna á Breiðinni lengur, hugsar nýi vitinn með nýju tímana sína. Þetta er ferðamannastaður, ekki vinnusvæði. Ferðamenn koma nú samt alltaf reglulega við í beituskúr hjá pabba þrátt fyrir allt. Spyrja hvar er hægt að gista, borða, spræna og svona hvað er skemmtilegt að skoða. Þeir fá allir að taka mynd af „innfæddum“ við sína „innfæddu“ sjómannsiðju og fá jafn- vel kaffisopa í kaupbæti. Þeim finnst líka gaman að fá að taka mynd af gömlu lappajálkunum hans pabba. Í beituskúr hafa jafnvel komið frægir myndatökumenn að taka upp heim- ildamyndir um íslenskan sjávarútveg og fengið að fara á sjó með pabba. Einhverjir ferðamenn hafa fengið að spræna á bak við skúr. Það var áður en kamrarnir komu. Hjón frá Mis- souri sváfu einhvern tímann í bíln- um sínum þarna á planinu. Það var áður en gistihúsin voru farin að taka almennilega við sér. Við krakkarnir mínir fórum í fjöruferð í sumar. Veiddum nokkur síli. Ferðamenn í stríðum straumum mynduðu okkur í bak og fyrir á með- an án þess að spyrja leyfis. Ég sem hélt þeir væru þarna til þess að skoða vitann og fína pallinn, ekki okk- ur „innfæddu“. Við settumst niður í sandinn og fengum okkur kleinu og kókómjólk. Fleiri tóku myndir. Dróni sveimaði yfir okkur í þónokkra stund. Ég flúði að endingu burt með krakk- ana mína og sílin í fötu og við þurftum að gæta okkar vel og vandlega að kom- ast þarna um fyrir ferðamannarútum og bílaleigubílum. Ég býst við að það sé ekki ætlast til þess að gestirnir sem koma að skoða vitann og sitja á fína pallinum komi þangað gangandi. Um daginn sá ég að það var búið að slá háa grasið á bakvið beitusk- úrana. Hvað skyldi hafa orðið um alla hrossagaukana, þúfutittlingana og lóurnar sem verptu þarna? Von- andi voru ungarnir allir skriðnir úr eggjunum og gátu hlaupið í burtu. Það er náttúrlega ekki hægt að láta þetta gras bara vaxa þarna villt og galið. Hvað myndu ferðamennirnir segja! Þeir eru náttúrulega þarna til þess að skoða snyrtilegt, vel slegið, sterílt ferðamannasvæði með ferða- kömrum og taka ljósmyndir af ljós- myndum í vitanum og leita svo út um allt að lundabúð. Þeir lögðu ekki leið sína frá Reykjavík, lundabúðun- um og sterílu ferðamannasvæðunum þar í leit að alvöru íslenskum fiskibæ, til þess að sjá daglegt amstur bæjar- búa, beituskúra, náttúru og fuglalíf og börn að veiða síli. Ég er alin upp á móti frystihúsinu. Í bræðslulykt og síldarþoku. Ég hljóp reglulega út og reitti niður þvott- inn af snúrunum fyrir mömmu áður en allt færi að anga af blessaðri pen- ingalyktinni. En allir höfðu vinnu og bærinn okkar var blómlegur. Þar með þurfti ekki að ræða það meira. Ég hef aldrei nennt að setja mig inn í „stóra fýlumálið“ en er samt glöð að fyrir- tækin eru að finna leiðir til þess að takmarka þess háttar mengun. En ég vil samt að fólkið okkar haldi áfram að hafa vinnu. Ég vil að öllum líði vel á Akranesi og að bærinn okkar haldi áfram að vera blómlegt fiskiþorp. Þegar ég hugsa um Akranes þá sé ég fyrir mér Akrafjallið, rauðu frysti- húsin, höfnina, kirkjuna, Einarsbúð og skógræktina. Og allt fólkið, alla Skagamennina. Það er Akranes fyr- ir mér. Nú eru öll rauðu frystihúsin orðin hvít. Kannski mála þeir Hall- grímskirkju gula næst. Nú á líka að ryðja burt beitusk- úrunum og öllum ljótu húsunum á Breiðinni. Þar mega bara vera hvít og steríl hús, allar grasflatir þrælslegnar og kassóttar, engin fiskifýla, ekkert slor. Þetta er allt svo agalega sóðalegt og ekki hægt að bjóða ferðamönnun- um upp á þetta eins og þetta er núna. Þeir vilja líka miklu frekar koma þarna og lesa á ferðamannaskiltum á þremur tungumálum um lífið og iðnaðinn sem átti sér einu sinni stað á Breiðinni frekar enn að sjá það bara með eigin augum. Þarna er núorðið líka bara pláss fyrir eitt fyrirtæki og færiböndin þeirra. Samt hélt ég að þetta héldist allt í hendur, Akranes, frystihúsin, trillukarlarnir og fjörurnar. Að við værum öll saman í liði. En nú virð- ast bæjarbúar og þeirra menning og lífsviðurværi vera algjört aukaatriði. Beituskúrar, gamlir sjómenn að gá til veðurs og börn að veiða síli eru enn meira aukaatriði. En ég ætti kannski bara að fagna öllum þessum breytingunum. Þetta er allt saman bara hluti af eðlilegri framþróun og ferðamennska og færi- bönd er það besta fyrir bæjarfélagið. Maður á víst ekki að halda í fortíð- ina. Það er alls ekki hollt, sjáiði til. Tinna Steindórsdóttir Höf. er framhaldsskólakennari og sjómannsdóttir. Farvel Breiðin, farvel beituskúrar. Halló ferðamenn og færibönd! Beitningarskúrinn á Breiðinni. Steindór Óliversson í skúrnum.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.