Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2017, Side 4

Skessuhorn - 11.01.2017, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 20174 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Ránsfengur Síðastliðið sunnudagskvöld var sýnd í Ríkissjónvarpinu heimildamyndin Ránsfengur eftir Pétur Einarsson. Myndin fjallar um bankahrunið sem hér varð 2008, orsakir þess og aðdraganda, en ekki síður afleiðingar. Til að kafa ofan í afleiðingarnar var dreginn fram í sviðsljósið einyrki sem starfað hafði í áratugi við rekstur vörubíls og farnast vel í lífinu, þar til hrunið varð. Full- orðinn maður sem endurnýjað hafði atvinnutæki sitt reglulega og með- al annars skömmu fyrir fall bankanna. Fjármagnaði hann að hluta kaupin með láni sem bundið var gengi allt annarra gjaldmiðla en lánað var í. Á síð- ari stigum var sá gjörningur illu heilli dæmdur ólögmætur. Þessi fullorðni maður hafði einfaldlega bugast af þeirri ábyrgð sem margföldun höfuðstóls lánsins fól í sér og brostnar forsendur. Hann tapaði heilsu og bugaðist. Sagt var frá baráttu dóttur þessa manns sem hóf að læra lögfræði til að verja föður sinn. Lærði lög til að eiga roð í þann vegg sem íslensku dómstólarn- ir voru í réttindagæslu fyrir bankana og aðra fjármagnseigendur á kostnað almennings. Að draga fram í dagsljósið þennan mann, sem dæmi um þús- undir Íslendinga sem misstu allt í hruninu, færði áhorfandann nær því sem raunverulega var til umfjöllunar í heimildamyndinni. Fyrst og fremst fjallaði myndin um erlenda vogunarsjóði sem smám sam- an eignuðust bankakerfi örþjóðar sem stoltsins vegna hafði átt sinn eigin gjaldmiðil, minnsta og veikasta gjaldmiðil í heimi, þrátt fyrir kosti þess en einkum galla. Vogunarsjóðir þessir tóku stöðu gegn íslenska fjármálakerf- inu sem ekki reyndist pappírsins virði þegar það var orðið margfalt stærra en hagkerfið sem að baki þess stóð. Ég hika ekki við að segja að þetta sé besta heimildamynd sem gerð hefur verið um ástæður hrunsins og fyrir sauðsvartan almúgan var myndin afar þörf áminning. Vonandi minnir hún okkur öll á að gæta réttar okkar og láta ekki peningaöflin enn og aftur hafa okkur að féþúfu. Í Ránsfeng er því lýst hvernig vogunarsjóðir keyptu rústir fallinna banka á hrakvirði, eða fyrir eitt til sex prósent af bókfærðu virði þeirra fyrir hrun. Snilldin við gerð þessarar heimildamyndar er að dregin var fram í sviðsljós- ið saga venjulegs Íslendings. Hann er jú einn af okkur. Það voru Íslendingar sem borguðu brúsann og hafa síðan þurft að standa skil á óreiðu peninga- manna. Þeirra sem mest stálu og verst fóru með íslenska fjármálamarkað- inn. Þeir sluppu með allt nema skömmina. Ég kýs að færa þetta í tal hér af þeirri einföldu ástæðu að ég tel fráleitt að Íslendingar hafi lært nógu mikið af hruninu. Mjög margt í okkar þjóð- félagi hefur aftur leitað til verri vegar því vatnið heldur jú áfram að renna niður í móti. Við upplifum græðgi á fjölmörgum sviðum þar sem gullgraf- arar nútímans eira engu. Við erum sífellt að láta hagsmunaöfl í skjóli fjár- magnseigenda hafa okkur að féþúfu. Við erum til dæmis að láta bjóða okkur að borga hæstu vexti í hinum vestræna heimi fyrir almenn fjárfestingalán. Að stýrivextir séu fimm prósentustig er ekkert annað en þjófnaður um há- bjartan dag í boði stjórnvalda sem hafa óboðlega peningastefnu. Á meðan slíkt ástand varir eigum við fullorðna fólkið t.d. alls ekki að hvetja ungt fólk til að fjárfesta í íbúðarhúsnæði á þeim kjörum sem því býðst í dag. Það er glapræði að mæla með því að keypt sé fasteign á 25-40 ára láni og borgað fyrir hana tvisvar eða þrisvar sinnum áður en upp er staðið. Við eigum ekki að sætta okkur við ljótar hliðar viðskipta, hvort sem það er beint í viðskipt- um við fjármálastofnanir eða óbeint í boði þeirra sem kjósa að níðast á al- menningi í skjóli fákeppni. Við eigum heldur ekki að taka öllu sem gefnu sem stjórnmálamenn segja okkur. Við eigum þvert á móti að mótmæla ef réttlætiskenndin segir til sín. Þá eigum við einmitt að standa upp og krefjast þess að hér verði byggt upp samfélag þar sem hið venjulega fólk á meiri rétt en það sem á feita peninga í banka. Komum í veg fyrir næsta Ránsfeng. Já, og takk RÚV fyrir að sýna myndina. Magnús Magnússon. Leiðari Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæj- ar síðastliðinn fimmtudag tók við nýr forseti bæjarstjórnar, en Krist- ín Björg Árnadóttir fráfarandi for- seti er flutt úr sveitarfélaginu og sat sinn síðast fund í desember. Björn Haraldur Hilmarsson tekur nú við sem forseti en hann hefur að aðal- starfi að vera umboðsmaður Olís í Ólafsvík. Björn kom nýr inn í sveit- arstjórn Snæfellsbæjar við síðustu sveitarstjórnarkosningar og var þá í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokks- ins sem skipar meirihluta í bæjar- stjórn. mm Björn kosinn forseti bæjarstjórnar Í nýjustu Hagsjá Landsbanka Ís- lands er fjallað um sumarhúsamark- aðinn á Íslandi. Þar kemur m.a. í ljós að í lok árs 2015 voru tæplega 13 þúsund sumarhús í landinu og hafði fjölgað um rúm 70% frá árinu 1997. Frá 1997 til 2015 fjölgaði sumarhúsum á Vesturlandi um 75% en um 63% á Suðurlandi. Um það bil helmingur sumarhúsa á land- inu var á Suðurlandi í árslok 2015 og um fimmtungur á Vesturlandi. Um 70% allra sumarhúsa á land- inu er því á þessum tveimur svæð- um. Verð á sumarbústöðum hefur hækkað í takt við aukna eftirspurn og samkvæmt fasteignasölum á það einkum við um eftirsótta staði, t.d. á Suðurlandi, í Grímsnesi, á Þing- völlum og í Skorradal. Eins og áður segir hefur orðið nokkur veltu- aukning á markaði með sumarhús, einkum ódýrari sumarhús. Frá árinu 2010 hefur verðþró- unin sumarhúsa verið stöðug upp á við á Suðurlandi og verðhækkun- in var rúm 20% frá 2010 til 2015. Verðið hækkaði mikið á Vestur- landi frá 2008 til 2011, en lækk- aði þá aftur og hefur ekki náð sér á strik. Verð var svipað bæði á Suður- og Vesturlandi 2015 og það var árið 2008. Verð á Norðurlandi tók mik- inn kipp frá 2009-2011 en hafa far- ið stöðugt lækkandi síðan þá. Verð- ið fyrir sumarhús á Norðurlandi var engu að síður um 40% hærri 2015 en það var 2008. Sé meðal- fermetraverð á öllum svæðum á landinu borið saman má sjá að það var hæst á Suðurlandi og töluvert þar fyrir neðan var Norðurland og Vesturland. Verð á öðrum svæðum var töluvert lægra. Minni og ódýrari hús vinsæl Sumarbústaðir á verðbilinu 12 til 15 milljónir króna hafa verið vin- sælastir í sölu að undanförnu. Nýrri bústaðir hafa almennt verið erfiðari í sölu. „Það eru því eldri bústaðirn- ir sem virðast besta söluvaran, enda eru þeir minni en þeir nýrri sem byggðir voru á hápunkti góðæris- ins. Samkvæmt fasteignasölum eru kaupendur yfirleitt fólk með hóf- leg fjárráð. Markaðurinn hefur því breyst töluvert frá því sem var fyr- ir hrun,“ segir í Hagsjá LÍ um fast- eignamarkaðinn. mm Fimmtungur sumarhúsa er á Vesturlandi Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, boðar til vitundarvakningar um ungt fólk og krabbamein. Félags- menn Krafts eru krabbameins- greindir einstaklingar á aldrinum 18 - 40 ára og aðstandendur. Meg- in markmið átaksins er að vekja at- hygli á aðstæðum þessa fólks. Auk þess verður leitað til almennings að gerast mánaðarlegir styrktarað- ilar til að styðja við bakið á starf- seminni. Átakið hefst formlega í dag, miðvikudaginn 11. janú- ar. Á morgun hefst vitundarvakn- ing þar sem birtar verða athyglis- verðar auglýsingar í fjölmiðlum; auglýsingar sem vekja fólk til um- hugsunar um málefnið. Myndirn- ar eru af þjóðþekktum einstakling- um sem „bera á sér skallann“ til að sýna fram á að hver sem er get- ur greinst með krabbamein. Hluti af herferð Krafts verður að perla armbönd sem á stendur „Lífið er núna“ og eru þau seld til styrktar Krafti. Leitað verður til almenn- ings um að hjálpa okkur að perla þessi armbönd. Kraftur, stuðningsfélag, var stofnað árið 1999 og byggir af- komu sína alfarið á velvilja al- mennings og fyrirtækja. Megin ástæða þess að félagið fer út í átak sem þetta er m.a. til að styrkja fjár- hagslegar stoðir þess. Helstu verk- efni Krafts eru að reka faglegt stuðningsnet þar sem jafningjar styðja aðra með sömu lífsreynslu. Félagið úthlutar einnig styrkjum úr sérstökum neyðarsjóði til ungs fólks með krabbamein til að standa straum af læknis- og lyfjakostn- aði, heldur úti útivistar- og endur- hæfingarhópnum FítonsKrafti og veitir einnig endurgjaldslausa sál- fræðiþjónustu. mm Það þarf Kraft til að takast á við krabbamein

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.