Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2017, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 11.01.2017, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2017 25 Nýfæddir Vestlendingar Stykkishólmur - miðvikudagur 11. janúar Snæfell tekur á móti Skalla- grími í úrvalsdeild kvenna. Leikurinn fer fram í íþróttamið- stöð Stykkishólms og hefst kl. 19:15. Borgarbyggð - föstudagur 13. janúar Svarti galdur á Íslandi - frum- sýning í Landnámssetri Íslands kl. 20. Kröftugur einleikur eftir og í flutningi Geirs Konráðs Theodórssonar. Þar vefur hann saman minnum úr þekktum þjóðsögum sem lifað hafa með þjóðinni í gegnum aldirnar og sem ömmur notuðu gjarnan til að hræða börn fyrir svefninn hér á árum áður. Þarna koma við sögu margar þekktar persónur úr Íslandssögunni, Sæmundur fróði, Gottskálk grimmi, Hellismenn, Galdra Loftur svo aðeins fáir séu nefndir. En er það víst að svarti galdur á Íslandi heyri sögunni til? Lifir hann kannski enn með okkur í dag? Lengd: 90 mín- útur Verð: 3.500 kr. Höfundur og leikari: Geir Konráð Theo- dórsson. Leikstjóri: Theodór Kristinn Þórðarson. Sýningar- stjórn og uppsetning: Eiríkur Þór Theodórsson. Einnig sýnt laugardaginn 14. janúar. Snæfellsbær - föstudagur 13. janúar „Journey to the centre of the earth“ í Frystiklefanum í Rifi kl. 20. Sýning byggð á Leyndar- dómum Snæfellsjökuls, klass- ískri sögu Jules Verne. Sýningin er tveggja tíma löng, fer að mestu fram á ensku og er ekki við hæfi barna undir sex ára aldri. Miðaverð er 3.900 kr. Netfang: info@thefreezerhos- tel.com / 662-0170. Einnig sýnt laugardaginn 14. janúar og sunnudaginn 15. janúar. Borgarbyggð - laugardagur 14. janúar Opnun ljósmyndasýningar í Safnahúsinu í Borgarnesi kl. 13, þar sem ellefu áhugaljósmynd- arar sýna myndir sínar. Mynd- efnið er Borgarnes á árinu 2016, mannlíf og umhverfi. Borgarbyggð - sunnudagur 15. janúar Guðmundur Andri Thorsson segir frá litríkum og um- deildum langafa sínum, Thor Jensen. Það er gaman að geta þess að það var Thor Jensen sem stóð fyrir að láta byggja pakkhúsið þar sem nú er Sögu- loft Landnámsseturs. Sýningin hefst kl. 16. Stykkishólmur - sunnudagur 15. janúar Bikarkeppni kvenna í körfu- knattleik: Snæfell mætir Stjörn- unni í Stykkishólmi kl. 15. Borgarbyggð - mánudagur 16. janúar Bikarkeppni kvenna í körfu- knattleik: Skallagrímur fær KR í heimsókn kl. 19:15. Á döfinni Óska eftir íbúð Erum 3 manna fjölskylda sem óskar eftir íbúð til leigu á Akranesi frá 1. mars. Erum bæði í fastri vinnu, ekkert partístand og borgum alltaf á réttum tíma, eigum lítinn 1 árs gamlan strák. Rakel- osk92@hotmail.com. Óskum eftir íbúð Erum hjón með 3 börn að leita okkur að íbúð, 4 - 5 herbergja. Erum reglusöm, reyklaus og skilvís. sylvia. list@gmail.com. Íbúð til leigu Fjögurra herbergja íbúð til leigu á Akranesi, Suðurgötu 29. gullhusid@hotmail.com. Netnámskeið – http://fjarkennsla.com Hagnýt netnámskeið, fjöl- breytt og gagnleg fjarnám- skeið; bókhalds- og tölvun- ámskeið, mannauðsstjór- nun, skattskil fyrirtækja o.fl. Skráning:http://fjarkennsla. com, 553-7768, 898-7824. ÝMISLEGT 6. janúar. Stúlka. Þyngd 3.232 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Sesselja Salóme Tómasdóttir og Magnús Sigurðsson, Akranesi. Ljósmóðir: Hrafnhildur Ólafsdóttir. Markaðstorg Vesturlands LEIGUMARKAÐUR Markaðstorg Vesturlands Skráðu SMáauglýSinguna á www.SkeSSuhorn.iS fyrir klukkan 12.00 á þriðjudöguM 8. janúar. Drengur. Þyngd 3.986 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Aurelija Stasiunaite og Kristinn Viggósson, Reykjavík. Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir. Nýverið fékk Byggðasafn Borgar- fjarðar afhent flöskuskeyti til varð- veislu. Skeytið var síðasti gripurinn sem tekið var inn á byggðasafnið á liðnu ári en safnið er eitt fimm safna í Safnahúsi Borgarfjarðar. Flösku- skeytið var sent úr Borgarnesi 8. júlí síðastliðinn af Hildi Tinnu Tand- berg, sem er níu ára hálf-íslensk stúlka. Hildur Tinna er búsett í Sví- þjóð ásamt foreldrum sínum, Lóu Brynjólfsdóttur og Johann Tandberg en þau eiga sumardvalarhús í Borg- arnesi ásamt fleirum. Hildur Tinna var á sumarnámskeiði í Borgarnesi síðastliðið sumar og skrifaði skeyt- ið í nafni hressra krakka í Sumar- fjöri í Borgarnesi og var tilgangur- inn með sendingunni að sjá hvert flöskuskeytið myndi ferðast. Skeyt- ið fannst í Sundskálavík, sem er vík á mörkum Ægissíðu og Skerjafjarðar 16. nóvember sl. Alls voru 20 flösk- ur sendar þennan dag af Sumarfjör- shópnum og eru þrjár þeirra fundn- ar. Sendi sjálf flöskuskeyti frá Borgarnesi Það var Anna Þorbjörg Þorgríms- dóttir sem fann flöskuskeytið þegar hún var á göngu með hundinn sinn við Ægissíðu. Hún segir í bréfi til Hildar Tinnu að nóttina áður hafi verið stormur og göngustígurinn því þakinn þara, skeljum og öðrum hlut- um úr fjörunni og þar hafi flösku- skeytið legið. Í bréfinu segir hún einnig frá því að hún og synir henn- ar hefðu orðið hissa þegar í ljós kom að ung stúlka hefði sent flöskuna úr Borgarnesi. „Borgarnes er nefnilega uppáhalds staðurinn minn á Íslandi. Ástæðan er sú að ég átti heima þar frá því ég var tveggja ára og þar til ég var níu ára. Þaðan eru mínar fyrstu minningar sem margar eru mjög góðar. Þar lék ég mér í holtunum og mjög oft var ég í fjörunni með vinum mínum. Ég veiddi fisk, hljóp á ísjök- um, synti, skautaði og sigldi á sjón- um og einu sinni sendi ég meira að segja flöskuskeyti sem enginn hefur fundið. Allavega hef ég aldrei feng- ið svar,“ segir Anna Þorbjörg. Hún segir jafnframt að henni þyki merki- legt að hafa fundið flöskuskeytið og að því hafi verið hent í sjóinn í Borg- arnesi, þar sem hún bjó einu sinni, og af stelpu sem á heima í Svíþjóð - líkt og Þorbjörg og synir hennar gerðu einnig um árabil. Anna Þorbjörg ákvað að gefa Byggðasafninu í Borgarnesi flöskuna og ákvað að afhenda hana næst þegar Hildur Tinna yrði á landinu. Það var svo föstudaginn 30. desember síðast- liðinn sem Anna Þorbjörg og Hild- ur Tinna hittust í Safnahúsi Borgar- fjarðar og afhentu Guðrúnu Jóns- dóttur flöskuskeytið til varðveislu. grþ/ Ljósm. Halldór Óli Gunnarsson. Flöskuskeyti afhent í Byggðasafni Borgarfjarðar Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir og Hildur Tinna Tandberg við afhendingu skeytisins. Hér má sjá hvað Hildur Tinna skrifaði í flösku- skeytið. Sunnudagaskólinn Kirkjuprakkarar fyrir 6-9 ára. Alla sunnudaga kl.11:00 í Akraneskirkju. Alla miðvikudaga kl.14:30 í gamla Iðnskólanum. TTT fyrir 10-12 ára. Æskulýðsfélag fyrir 8-10. bekk Alla miðvikudaga kl.15:30 í gamla Iðnskólanum. Akraneskirkju og KFUM/KFUK Nánari upplýsingar á akraneskirkja.is Alla mánudaga kl.19:30 í gamla Iðnskólanum. Allir eru velkomnir í starfið og ekkert kostar að taka þátt! ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.