Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2017, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 11.01.2017, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 201718 Umsóknarfrestur í samstarfsverk- efnið Startup Tourism rennur út 16. janúar næstkomandi, en þetta er í annað skipti sem hægt er að sækja um þátttöku. Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall þar sem tíu valin fyrirtæki í ferðaþjónustu fá tækifæri til að þróa áfram við- skiptahugmyndir sínar undir leið- sögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu. „Við leitum að fjölbreyttum hugmyndum innan ferðaþjónustu til þátttöku en markmið verkefnisins er að fjölga afþreyingarmöguleikum til ferðamanna, styrkja innviði greinarinnar og stuðla að dreifingu ferðamanna um allt land, allan ársins hring. Með ört vaxandi fjölda ferðamanna er jafnframt nauðsynlegt að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu og styrkja stoðir nýrra fyrirtækja í greininni,“ segir í tilkynningu frá verkefninu. Meðal fyrirtækja sem tóku þátt í verkefninu í fyrra voru fyrirtækin Jaðarmiðlun sem ætla að vekja álfa til lífsins með aðstoð sýndarveruleika, Bergrisi sem þróar hugbúnað og vélbúnað sem auðveldar sölu að hvers kyns þjónustu eins og salernum og bílastæðum og vestlenska fyrirtækið Coldspot sem býður upp á stafrænar afeitrunarferðir (digital detoxing) á Vesturlandi. Startup Tourism er samstarfsverkefni Isavia, Íslandsbanka, Bláa Lónsins og Vodafone, sem fjármagna verkefnið, Icelandic Startups sem sér um framkvæmd verkefnisins og Íslenska ferðaklasans. „Leitað er eftir afþreyingar- og tæknilausnum og lausnum sem styrkja innviði greinarinnar. Startup Tourism hefst 16. febrúar og fer fram í Reykjavík. Opið er fyrir umsóknir á heimasíðu Startup Tourism www. startuptourism.is mm Hægt að sækja um í verkefnið Startup Tourism Þátttakendur í Startup Tourism 2016 ásamt bakhjörlum á lokadegi hraðalsins. Hanna Jónsdóttir er þroskaþjálfi hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfell- inga og hefur sem kunnugt er unn- ið gott starf með Ásbyrgi í Stykk- ishólmi undanfarin ár, en Ásbyrgi er dagþjónusta og vinnustofa FSSF. Í desembermánuði var Hanna til- nefnd til hvatningarverðlauna Ör- yrkjabandalags Íslands fyrir frum- kvöðlastarf í þágu fatlaðs fólks í Stykkishólmi. Þá má einnig geta þessa að hún fékk nokkrar tilnefn- ingar þegar Skessuhorn gekkst fyr- ir valinu á Vestlendingi ársins 2016. Skessuhorn sló á þráðinn til Hönnu á dögunum og ræddi við hana um starf Ásbyrgis, þýðingu þess fyrir samfélagið og hennar sýn á starf- semina til framtíðar. Ásbyrgi var stofnað fyrir bráðum fimm árum síðan, í kjölfar þess að málefni fatlaðra voru færð frá ríki yfir til sveitarfélaga. „Ég var á þeim tíma að vinna hjá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra. Þegar mála- flokkurinn var fluttur yfir til sveit- arfélaganna þá flutti ég með og vann í ráðgjöf vegna fatlaðra barna og fullorðinna á Snæfellsnesi og í Dölum,“ segir Hanna í samtali við Skessuhorn. „Síðan kom að því að úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga út- skrifuðust tveir ungir menn, tvítugir að aldri sem vantaði hlutverk í sam- félaginu. Þá var ákveðið að stofna Ábyrgi til að þeir fengju þjónustu. Þetta var 27. ágúst árið 2012,“ út- skýrir hún. Í upphafi störfuðu fjór- ir hjá Ásbyrgi og markmiðin voru skýr frá fyrsta degi: „Í fyrsta lagi að allir vinni á almennum vinnumark- aði líka, hluta úr degi eða hluta úr viku, en í þeim tilfellum Þá er gerð- ur örorkusamningur milli fyrirtæk- is og einstaklings. Hitt markmið- ið var það að allir fengju þjónustu utan heimilis átta tíma á dag, þann- ig að vinnudagurinn væri frá átta til fjögur. Þeir sem væru í hlutastarfi kæmu þá í Ásbyrgi og lykju degin- um þar, til að fá fullan vinnudag,“ útskýrir hún. Endurnýting í hávegum höfð Í Ásbyrgi er stefnan að búa til pen- ing úr því sem aðrir væru hættir að nota. „Endurnýting er þar í háveg- um höfð og búnir til nytjamunir og skraut sem síðan er selt á hóflegu verði. „Vörurnar eru fjölbreyttar og við reynum að vera dugleg að finna upp á nýjungum því það er ekki hægt að selja bæjarbúum allt- af það sama,“ segir Hanna og hlær við. Hún segir að peningarnir séu notaðir til að auka lífsgæði starfs- manna með því til dæmis að fara saman út að borða. Þá hefur starfs- fólk Ásbyrgis sótt og staðið fyr- ir námskeiðum og heimsótt aðra vinnustaði fyrir fólk með skerta starfsgetu. Bæjarbúar í Stykkishólmi hafa verið virkjaðir og safna alls kyns hlutum fyrir Ásbyrgi, sem síðan eru endurnýttir þar. „Þeir safna til dæmis líni, áldósum, kertum, kaffi- pokum, gömlum myndarömmum og mörgu fleiru sem kann að falla til á heimilinu. Við förum einu sinni í viku og sækjum varning til veitingahúsa sem safna fyrir okk- ur til dæmis glerkrukkum, kerta- afgöngum, eggjabökkum og fleiru. Aðra daga vikunnar útréttum við ýmislegt, fáum í leiðinni hreyf- ingu og styrkjum þar með and- lega heilsu,“ segir Hanna. „Þar að auki vinnum við í póstdreifingu einn dag í viku og það er hópverk- efni sem allir taka þátt í. Við ber- um út tímarit og fleira. Aðra daga sinnum við ýmsum útréttingum. Þá höfum við einnig sinnt ýmsum verkefnum fyrir HVE, saumað ver utan um svínahryggi,“ segir Hanna, en svínahryggur er tæki sem bak- sjúklingar nota til að styrkja lund- irnar. Það vissi blaðamaður ekki og kom nokkur undrunarsvipur á hann þar til Hanna útskýrði fyrir honum hvað svínahryggur væri. Vantar stærra húsnæði Ásbyrgi hefur stækkað hratt frá því það var stofnað fyrir fimm árum síðan. Nú starfa þar 14 manns, þar af fjórir með fulla starfsgetu. „Hér eru allir í mismiklu starfshlutfalli vegna þess að þeir eru á almenn- um vinnumarkaði líka. Fólk fær aðstoð á vinnumarkaði ef á þarf að halda, en annars er hver á sín- um vegum og einn með aðstoðar- mann með sér í vinnunni allan tím- ann,“ segir hún. Starfsemi Ásbyrg- is hefur hins vegar vaxið það ört að hún er að sprengja utan af sér hús- næðið, gamla skólastjórabústaðinn að Skólastíg 11, sem í daglegu tali kallast einmitt Ásbyrgi. „Þetta er rosa fallegur staður og stutt að fara í mat á dvalarheimilið í hádeginu, en húsnæðið er orðið allt of lítið. Sem stendur getum við ekki tekið við fleirum til vinnu, því miður, því ég er viss um að við gætum virkj- að fleiri til vinnu. Okkur vantar bara stærra húsnæði,“ segir Hanna. Ekkert húsnæði í eigu sveitarfélags- ins er á lausu undir starfsemina og sem stendur er ekki útlit fyrir að Ásbyrgi flytji. Hanna vonast þó til að svo verði í framtíðinni. „Ég vona að við fáum stórt og gott húsnæði þar sem vinnustaðn- um og starfsfólki verður sýnd sú virðing sem því ber, því ég er al- veg viss um að með stærra húsnæði að þá eigum við eftir að stækka og starfsmönnum að fjölga,“ segir hún. „Sveitarfélagið þarf að hafa metnað til að byggja eða útvega húsnæði til leigu. Þetta er allt spurning um að forgangsraða, því ef við hugsum ekki um það fólk sem hér býr þá erum við kannski ekki að leggja inn fyrir því að fólk vilji vera hérna.“ Þýðingarmikið starf Hún telur enda að starf Ásbyrgis hafi mjög mikla þýðingu fyrir sam- félagið í Stykkishólmi. „Ég er sann- færð um að við erum búin að gera góða hluti. Um leið og við auk- um lífsgæði eins einstaklings hef- ur það marföldunaráhrif því allir eiga fjölskyldu og eru hluti af ein- hverri keðju,“ segir hún. „Fólkið sem starfar í Ásbyrgi hefur skerta starfsgetu vegna alls konar ástæðna. Hér er ekki bara fólk með fötl- un heldur einnig fólk með skerta starfsgetu vegna örorku sem get- ur átt sér margar ástæður, alls kon- ar andlega erfiðleika til dæmis. Það er mikið atriði að allir hafi hlutverk, komist út á meðal fólks og finni að þeir séu að gera eitthvað sem skipt- ir máli. Að hafa tilgang með lífinu skiptir öllu máli, að vakna á morgn- ana og hafa hlutverk í samfélaginu. Ef fólk dettur í að vera bara heima við og gera ekki neitt þá getur það haft mikla erfiðleika í för með sér,“ segir Hanna. Aðspurð um sína framtíðarsýn fyrir Ásbyrgi segir hún að stærra og betra húsnæði sé efst á blaði. Það muni gera þeim kleift að efla starfsemina. „En mig langar líka að reyna að virkja fólk til atvinnu sem hefur kannski verið lengi frá vinnu, hverjar sem ástæður þess eru, þannig að þetta verði nokk- urs konar stökkpallur út á almenn- an vinnumarkað. Þá væri það hugs- að fyrir fólk sem hefur lengi ver- ið heima fyrir, án vinnu. Það gæti komið til okkar í nokkra mánuði og síðan væri hægt að aðstoða það við að komast út á almennan vinnu- markað,“ segir Hanna Jónsdóttir að lokum. kgk/ Ljósm. sá. „Það er mikið atriði að allir hafi hlutverk“ Segir Hanna Jónsdóttir þroskaþjálfi þegar rætt er við hana um starfsemi Ásbyrgis Hanna Jónsdóttir þroskaþjálfi. Hanna ásamt Helga Jóhanni í einu af fjölmörgum verkefnum Ásbyrgis.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.