Skessuhorn - 11.01.2017, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2017 9
Karlakórinn Söngbræður heldur sína árlegu
þjóðlegu veislu í Þinghamri, Varmalandi,
laugardaginn 14. janúar 2017 kl. 20:00.
Á matseðli verða: Svið frá Fjallalambi, heit og köld.
Saltað hrossakjöt. Meðlæti: rófustappa og kartöflumús.
Til skemmtunar verður söngur
Söngbræðra og hagyrðingar.
Hljómsveit kórsins leikur undir fjöldasöng.
Miðaverð kr. 5000 - posi á staðnum.
Miðapantanir í síma 894-9535 eða 892-8882 fyrir
kl. 22:00 fimmtudaginn 12. janúar 2017.
MATARVEISLA &
SKEMMTIKVÖLD
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Grundarfjarðarbær var af Héraðs-
dómi Vesturlands 14. desember
síðastliðinn dæmdur til að greiða
Sonju Karen Marinósdóttur, fyrr-
verandi starfsmanni bæjarins, bætur
vegna ólögmætrar uppsagnar. Sonja
starfaði hjá bænum, í fullu starfi við
kennslu í Tónlistarskóla Grundar-
fjarðar en í hlutastarfi við ræstingar
í tónlistarskólanum, þar sem starfs-
hlutfall var ákveðið 42%. Henni
var með bréfi dagsettu 27. febrúar
2015 sagt upp störfum við ræsting-
ar vegna breytinga á starfinu, sem
fólu meðal annars í sér að starfs-
hlutfallið var minnkað. Niðurstaða
Héraðsdóms Vesturlands er breyt-
ingar á starfinu sem um ræðir ver-
ið umtalsverðar og því hafi bænum
borið skylda til að tilkynna starfs-
manni um þær með sama fyrirvara
og ef um uppsögn væri að ræða.
Í slíkum tilvikum sé það starfs-
manns að tilkynna vinnuveitanda
innan eins mánaðar hvort hann
uni breytingunum eða láti af störf-
um. „Verður ekki talið að stefndi
hafi gert viðhlítandi grein fyrir því
af hverju þessi leið hafi ekki ver-
ið fær í tilviki stefnanda. Bar hon-
um að láta reyna á framangreindan
rétt stefnanda áður en ráðist yrði í
svo íþyngjandi ráðstöfun sem upp-
sögn úr starfi óneitanlega er,“ segir
í dómnum. Var uppsögnin því tal-
in ólögmæt og Grundarfjarðarbæ
gert að greiða Sonju Karen bæt-
ur að verðmæti 650 þúsund krón-
ur með vöxtum og dráttarvöxtum
auk þess að bera málskostnað, eina
milljón króna.
kgk
Uppsögn dæmd
ólögmæt