Skessuhorn - 11.01.2017, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2017 11
ÞITT ER VALIÐ
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM, FRAMHLIÐUM,
KLÆÐNINGUM OG EININGUM
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
HÁGÆÐA ÞVOTTAHÚSINNRÉTTINGAR
FATASKÁPAR &
RENNIHURÐIR
Opið:
Íþróttamaður Borgarfjarðar 2016
Ungmennasamband Borgarfjarðar - Borgarbraut 61 - 310 Borgarnesi Sími 437 1411 - www.umsb.is
Laugardaginn 14. janúar kl. 14:00 fer fram í félagsheimilinu Lyngbrekku
verðlaunaafhending í kjöri íþróttamanns Borgarfjarðar 2016
Veittar verða ýmsar viðurkenningar og verðlaun til þess íþróttafólks sem náð hefur
góðum árangri á árinu 2016
Við hvetjum alla til að koma og heiðra íþróttafólkið okkar,
boðið verður uppá léttar veitingar
Ungmennasamband Borgarfjarðar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Síðastliðið vor samþykkti Alþingi
breytingar á lögum um veitinga-
staði, gististaði og skemmtanahald,
frá því 2007. Með breytingunum nú
er einstaklingum heimilt að leigja út
heimili sitt og aðra fasteign, svo sem
sumarhús, sem viðkomandi hefur
til persónulegra nota, í allt að 90
daga á ári án þess að þurfa að sækja
um mörg, flókin eða kostnaðarsöm
rekstrarleyfi. Um leið er sett það
skilyrði að leigutekjur einstaklings
fari ekki yfir tvær milljónir króna á
ári. Þá eru í lögunum útskýrð bet-
ur mörkin milli gististarfsemi í at-
vinnuskyni og tímabundinnar leigu
af hálfu einstaklinga. Áhrifa breyt-
inganna gætir m.a. í betri yfirsýn
um gistiframboð, bættri skráningu
og skilum skatttekna af gististarf-
semi og einfaldara regluverki fyrir
rekstrarleyfi.
Til að mega leigja út herbergi,
íbúð eða sumarbústað í heimagist-
ingu þarf að skrá eignina hjá sýslu-
manni höfuðborgarsvæðisins eða
á miðlægu vefsvæði sé það fyrir
hendi. Einnig þarf skráningaraðili
að fá starfsleyfi hjá heilbrigðisnefnd
í viðkomandi sveitarfélagi. Eignin
fær svo úthlutað skráningarnúmeri
sem þarf að nota við alla markaðs-
setningu. Lögreglustjórar sjá um
eftirlit með heimagistingu en sýslu-
maðurinn á höfuðborgarsvæðinu
hefur hins vegar eftirlit með því að
skráningarnúmer sé notað á þeim
miðlum sem notaðir eru til að aug-
lýsa heimagistingu. Þá er eftirlitið
einnig í höndum þeirra sem lög og
reglugerðir um matvæli, hollustu-
hætti og mengunarvarnir, eftirlit,
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi
á vinnustöðum, og brunamál mæla
fyrir um og átt geta við um við-
komandi starfsemi. Brjóti fólk hin-
ar nýju reglur um heimagistingu
getur það átt á hættu að lögð verði
á stjórnvaldssekt sem getur numið
allt að einni milljón króna.
Fólk sem hyggst skoða útleigu á
íbúðarhúsnæði er hvatt til að lesa
hin nýbreyttu lög. Þá má einnig á
vef Sambands íslenskra sveitarfé-
laga finna undir „Ferðamál“ gagn-
leg svör við ýmsum spurningum
um útleigu fasteigna.
mm/ Ljósm. Ferðamálastofa.
Ný lög um heimagistingu
tóku gildi um áramótin
Þrír af hverjum fjórum fjarnem-
um við Háskólann á Akureyri búa
áfram í heimabyggð fimm árum
eftir brautskráningu. Þetta er nið-
urstaða rannsóknar sem unnin var
af Þóroddi Bjarnasyni, Inga Rúnari
Eðvarðssyni, Ingólfi Arnarsyni,
Skúla Skúlasyni og Kolbrúnu Ósk
Baldursdóttur við HA. Greinin
birtist í Tímariti um uppeldi og
menntun og ber heitið „Svæðis-
bundin áhrif íslenskra háskóla.“
„Þessar niðurstöður eru í sam-
ræmi við tilfinningu okkar hér við
HA en þetta er í fyrsta sinn sem
sýnt hefur verið fram á sterk tengsl
fjarnáms og búsetu í heimabyggð
með opinberum gögnum um bú-
setu fyrir nám,“ segir Þóroddur
Bjarnason, prófessor við HA og
einn höfunda greinarinnar. Hann
segir að rannsóknin sýni jafnframt
að mikill munur er á menntunar-
stigi þjóðarinnar eftir landshlutum.
Árið 2011 höfðu þannig 38% íbúa
höfuðborgarsvæðisins á aldrinum
25–64 ára lokið háskólaprófi en
einungis 21–23% í flestum öðrum
landshlutum. Hér á Vesturlandi er
hlutfallið þannig að 22-23% íbúa
á aldrinum 25-64 ára hefur lokið
háskólamenntun. Verulega hallar
á kynin því einungis 15-17% karla
á Vesturlandi höfðu lokið háskóla-
prófi en 29-30% kvenna. Háskóla-
menntun mælist lítið eitt hærri á
suðursvæði Vesturlands, Akra-
borgarsvæðinu, en í Dölum og á
Snæfellsnesi. „Þessi munur milli
landsbyggðar og höfuðborgar-
svæðis skýrist að hluta af takmörk-
uðu framboði starfa sem krefjast
háskólamenntunar en að hluta til
af skorti á háskólafólki til starfa,“
segir í niðurstöðu rannsóknarinn-
ar.
„Það er mikilvægt fyrir Háskól-
ann á Akureyri að fá þessar töl-
ur á hreint enda höfum við lengi
talið að við séum að mennta fólk
í heimabyggð. Nú er það sannað
og við getum haldið áfram að efla
okkar námsform sem hefur þróast
úr því að vera fjarnám yfir í það að
vera sveigjanlegt nám. Það þýð-
ir að engu skiptir hvort þú sért á
Akureyri eða annars staðar, allir
njóta sömu kennslu,“ segir Eyjólf-
ur Guðmundsson, rektor Háskól-
ans á Akureyri.
Hægt er að lesa nánar um niður-
stöðu rannsóknarinnar á vef Há-
skólans á Akureyri.
mm
Nú í haust hófst kennsla í lögreglufræðum
við HA. Nemendur geta bæði stundað það í
staðnámi og fjarnámi, eins og þessi vestlensku
nemendur völdu. Frá vinstri er Hafþór Ingi
Þorgrímsson í Stykkishólmi, Björgvin Fjeldsted
frá Ferjukoti, unnusta hans Guðrún Hildur
Hauksdóttir úr Borgarnesi og Ásgeir Yngvi
Ásgeirsson frá Staðarhúsum.
Fjarnám styður við
búsetu háskólamenntaðs
fólks í heimabyggð