Skessuhorn - 11.01.2017, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2017 15
www.skessuhorn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
TÆKNIMAÐUR BORGARNESI
Laust er til umsóknar starf tæknimanns á tæknideild
Vegagerðarinnar í Borgarnesi. Deildin hefur umsjón með
verklegum framkvæmdum á sviði nýframkvæmda, viðhalds á
slitlögum, efnisvinnslu, styrkingum og endurbótum. Um 100%
starf er að ræða.
Starfssvið
Umsjón og eftirlit með nýframkvæmdum og öðrum •
framkvæmdum.
Umsjón undirbúnings og útboðs framkvæmdaverka.•
Gerð útboðs- og verðkönnunargagna.•
Landmælingar vegna verkhönnunar og undirbúnings.•
Annast önnur tæknileg úrlausnarverkefni innan deildarinnar.•
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í verk- eða tæknifræði eða önnur •
háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af ámóta störfum er kostur•
Góð íslenskukunnátta•
Góð tölvukunnátta•
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt•
Hæfni í mannlegum samskiptum•
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt
báðum kynjum og í samræmi við jafnréttisáætlun Vegagerðarinnar
eru konur með umbeðnar hæfniskröfur sérstaklega hvattar til að
sækja um starfið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi
stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 23. janúar 2017. Umsóknir berist
mannauðsstjóra netfang oth@vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram
persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og
hæfni sem óskað er eftir, þar með talin menntunar- og starfsferilsskrá.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst..
Nánari upplýsingar um störfin veitir Pálmi Þór Sævarsson
í síma 522-1000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Til dæmis mjaltir, afleysingar, mokstur, fjárrag, hænsnatínslu, þrif og
bón á bílum og vélum, smölun, slátrun og svo mætti lengi telja.
Nemendur á öðru ári í búfræðideild Landbúnaðarháskóla Íslands
taka nú að sér hverskyns verkefni til fjáröflunnar útskriftarferðar
sinnar á komandi ári. Erum með reynslubolta í flestum verkum.
Ítarlegri upplýsingar veita
Harpa Björk: 894-1011
Sigríður Linda: 771-3341
bufraedi@gmail.com
Er ekki hugsanlegt að þig vanti
aðstoð við hin ýmsu verk?
Geymið auglýsinguna því við
verðum til taks í allan vetur.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Lesbókin Café, nýtt kaffihús við
Akratorg á Akranesi, var opnað
fyrsta sinni fyrir gestum og gang-
andi kl. 11:30 föstudaginn 6. janú-
ar. Að rekstri kaffihússins standa
Christel Björg Rudolfsdóttir Clot-
hier og Guðleifur Rafn Einarsson.
Um miðjan desembermánuð keyptu
þau rekstur Skökkin Café, sem áður
var rekið í sama húsnæði, af Hafdísi
Bergsdóttur og Hildi Björnsdóttur.
Síðan þá hafa Christel og Guðleif-
ur breytt nafni kaffihússins og end-
urinnréttað húsnæðið til að ljá því
sinn blæ. Að sögn þeirra gekk opn-
unin síðastliðinn föstudag vel, að-
sóknin góð fyrsta daginn og voru
þau að vonum ánægð með viðtök-
urnar.
kgk
Lesbókin Café var opnuð á föstudag
Christel Björg Rudolfsdóttir Clothier og Guðleifur Rafn Einarsson voru að vonum
ánægð með góða aðsókn að Lesbókinni Café á opnunardaginn sl. föstudag.
Leikskólinn Sólvellir í Grundarfirði
fagnaði 40 ára starfsafmæli sínu í
byrjun janúar. Blásið var til veglegr-
ar veislu í Samkomuhúsi Grundar-
fjarðar laugardaginn 7. janúar af því
tilefni. Þar mættu margir bæjarbú-
ar, velunnarar og fyrrverandi starfs-
menn leikskólans. Farið var yfir
sögu skólans ásamt því að Matt-
hildur Soffía Guðmundsdóttir var
heiðruð sérstaklega enda hefur hún
starfað við leikskólann frá upphafi
og fagnaði því 40 ára starfsafmæli
sínu í leiðinni. tfk
Leikskólinn Sólvellir í
Grundarfirði 40 ára
Frá vinstri eru þær Sigríður
Herdís Pálsdóttir fyrrverandi
leikskólastjóri, Matthildur
Soffía Guðmundsdóttir og
Björg Karlsdóttir núverandi
leikskólastjóri.
Nemendur leikskólans tóku nokkur lög fyrir gesti og þar á meðal afmælissönginn.
Hérna eru þær Björg Karlsdóttir leikskóla-
stjóri og Sólrún Guðjónsdóttir fyrir hönd
kvenfélagsins Gleym mér ei en leikskólinn
fékk fjölda gjafa og styrkja frá fyrirtækjum
og félögum í tilefni dagsins.
Matthildur Soffía Guðmundsdóttir tekur hér við gjöfum frá Þorsteini Steins-
syni bæjarstjóra en með henni er sonur hennar Ragnar Börkur Ragnarsson
sem var einmitt einn af fyrstu nemendum leikskólans.