Skessuhorn - 11.01.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 201716
Skagakonan Dagný Jónsdóttir er
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Samgöngustofu og hefur unnið hjá
stofnuninni alla tíð, eða allt frá því
hún varð til árið 2013 við sameiningu
Flugmálastjórnar Íslands, hluta Sigl-
ingastofnunar Íslands, hluta Vega-
gerðarinnar og Umferðarstofu. Hjá
síðastnefndu stofnuninni hóf hún
einmitt störf fyrir 13 árum, þá nýút-
skrifuð úr viðskiptafræði frá Háskól-
anum í Reykjavík og átti síðar eft-
ir að verða forstjóri stofnunarinnar,
árið 2012. Komum aftur að því síðar.
Árið 2014 hóf Dagný nám samhliða
vinnu, í Forystu og stjórnun við Há-
skólann á Bifröst og útskrifaðist síð-
asta sumar. Meistararitgerð hennar
bar heitið „Þetta kemur bara ekkert
upp í hendurnar á manni“ og undir-
titilinn var „Upplifun kvenna í for-
ystu í fjármálageiranum á Íslandi.“
Hún kveðst ekki hafa valið umfjöll-
unarefnið á femínískum forsendum.
„Það eina sem ég vissi áður en ég
valdi viðfangsefnið var að mig lang-
aði að gera rannsókn sem gæti fall-
ið undir leiðtogafræðihluta námsins.
Í upphafi sá ég ritgerðina fyrir mér
allt öðruvísi en hún endaði og ekk-
ert endilega femíníska,“ segir Dagný
Jónsdóttir í samtali við Skessuhorn.
„Ég var búin að ákveða um hvað ég
ætlaði að skrifa, en þá fór ég í fæð-
ingarorlof og á meðan skrifaði ann-
ar nemandi um einmitt það viðfangs-
efni. Ég missti sem sagt af viðfangs-
efninu mínu,“ segir Dagný og bros-
ir. Hún ráðfærði því við leiðbeinanda
sinn og deildarformanninn. „Á sama
tíma stóð Íslandsbanki fyrir fundun-
um „Ljónin í veginum“ sem fjölluðu
um stöðu ungra kvenna í atvinnu-
lífinu og þær hindranir sem verða
á vegi þeirra. Það var mikill áhugi á
þessum fundum og þegar ég fór að
kanna málið komst ég að því að það
vantaði rannsóknir um stöðu kvenna
í atvinnulífinu hér á landi,“ segir
Dagný.
Tengslanet kvenna
ekki nógu gott
Hún réðist því í það verkefni að
rannsaka upplifun kvenna í forystu í
fjármálageiranum með viðtölum við
konur í æðstu stöðum banka og ann-
arra fjármálafyrirtækja. Rannsóknin
leiddi ýmislegt í ljós. Til dæmis sýndi
hún fram á að tengslanet kvenna
væri almennt ekki nógu gott. Gæti
það aftrað því að þær kæmust eins
langt og þær vildu. „Þá er ég ekki að
tala um einhvern klíkuskap, alls ekki,
heldur virðast konur ekki hafa jafn
góð tengsl við annað fólk í fjármála-
geiranum og karlar. Þar af leiðandi
koma þær síður til greina þegar ráð-
ið er í stöður,“ segir Dagný og seg-
ir ýmsar ástæður kunna að valda því.
„Ástæðurnar voru ýmiss konar. Sum-
ar töldu einfaldlega að eftir þeim yrði
tekið ef þær sinntu sínu starfi af mikl-
um dugnaði, en það er ekki endilega
þannig. Af þeim sökum sáu margar
konur ekki hag sinn í því að sækja
ráðstefnur og viðburði eða hitta fólk
úr öðrum fyrirtækjum utan vinnu-
tímans,“ segir Dagný. „Þetta hafa
karlarnir alltaf verið miklu duglegri
að gera. Það er eins og þeir hafi allt-
af verið miklu meðvitaðri um það að
það sem er gert þegar þeir eru ekki í
vinnunni getur líka verið vinna. Að
mynd tengsl við viðskiptavini eða
annað fólk í fjármálageiranum á ráð-
stefnum eða í golfi er líka hagur fyr-
irtækisins. Það er ekki að ástæðu-
lausu sem stundum er sagt að margir
viðskiptasamningar hafi verið gerðir
á golfvellinum,“ segir Dagný.
Tíminn stærsta fórnin
Rannsóknin leiddi það jafnfram í ljós
að tími var stærsta fórnin sem konum
fannst þær þurfa að færa til að kom-
ast til metorða innan fjármálafyrir-
tækja. „Þá ekki síst einmitt á með-
an þær eru að klífa metorðastigann.
En það kom einnig í ljós að þessar
konur sem voru komnar hvað lengst
voru góðar í að dreifa álaginu. Þær
voru duglegar að útdeila verkefnum
á vinnustaðnum auk þess sem jafn-
skipting heima fyrir var algeng hjá
þessum konum. Það er eins og þær
sem eru komnar á toppinn hafi átt-
að sig á því að þær þurfa ekki að gera
allt sjálfar,“ segir Dagný og bætir því
við að þetta virðist hafa breyst frá því
í hruninu. „Í rannsókn sem var gerð
árið 2008, og var ein af fáum íslensk-
um rannsóknum sem ég gat stuðst
við, kom í ljós að konur voru mik-
ið að vinna öll verk sjálfar í stað þess
að útdeila ábyrgðinni. Í minni rann-
sókn fékk ég allt aðrar niðurstöður,
auk þess sem nokkrar af þeim kon-
um sem ég ræddi við sögðu að þetta
hefði breyst frá því fyrir hrun,“ seg-
ir hún. „Fyrir vikið er starfið innan
fjármálafyrirtækja líka orðið miklu
eðlilegra, fjölskylduvænna og mann-
eskjulegra. Eitt af því sem fólk lærði
í hruninu var að það var ekkert endi-
lega til gagns að vinna allan sólar-
hringinn,“ segir Dagný.
Baráttan við
staðalímyndir
Þá segir Dagný að rannsóknin hafi
leitt ýmislegt fleira áhugavert í ljós.
„Til dæmis vildu margar konur meina
að staða þeirra innan fyrirtækja hefði
batnað á aðeins fimm árum eða eftir
hrunið. Hindranirnar væru færri og
fyrirtæki væru orðin meðvitaðri um
að blöndun kynjanna væri til góðs,“
segir hún. „Það rímar við niðurstöð-
ur flestra rannsókna sem hafa ver-
ið gerðar um það efni. Þær sýna að
eftir því sem blöndun kynjanna er
meiri þá verður afkoma fyrirtækja
betri,“ bætir hún við. Spurð hvort
kynjakvótinn hafi þar haft áhrif segir
hún svo vera. „Þær sem ég ræddi við
töldu að kvótinn hefði haft jákvæð
áhrif, en nefndu einnig hrunið. Það
var í raun upphafið af því að fólk fór
að endurskoða hvernig hlutirnir voru
gerðir,“ segir hún en bætir því við að
þó margt hafi batnað þá sé enn ýmis-
legt sem megi betur fara. Nefnir hún
sem dæmi að konur í stjórnunarstöð-
um reki sig ítrekað á að þurfa að berj-
ast við staðalímyndir. Það geti valdið
óþægindum. „Konur í forystustörf-
um upplifa að það eru gerðar aðrar
kröfur til þeirra en karla í sambæri-
legum stöðum. Þá gildir einu hvort
undirmenn þeirra eru karlar eða
konur, þeir vænta þess bara að konur
stjórni öðruvísi, séu einhvern veginn
vinalegri stjórnendur á meðan þeim
þykir miklu eðlilegra að karlkyns
stjórnendur séu kaldir og „meiri töff-
arar“, eins og ein orðaði það,“ seg-
ir Dagný. „Ein orðaði það þannig að
konum leyfðist ekki að eiga slæman
dag í vinnunni,“ segir hún en bætir
því við, sem fyrr segir, að vísbend-
ingar séu um að atvinnugreinin sé að
færast í átt til aukins jafnréttis. „En
sé mín rannsókn borin saman við
þá sem var gerð árið 2008 þá bendir
margt til þess að hlutirnir séu að fær-
ast í rétta átt. Vonandi heldur sú þró-
un áfram,“ segir Dagný.
Borinn og barnfæddur
Skagamaður
Þar sem blaðamaður ræðir við Dagný
á heimili hennar á Akranesi er einn-
ig tekið upp léttara hjal. Hún er bor-
inn og barnfæddur Skagamaður og
býr á Akranesi ásamt eiginmanni sín-
um Agnari Kjartanssyni og dætrum
þeirra; Bríeti, Öglu og Aþenu. Sem
fyrr segir hóf hún störf hjá Umferð-
arstofu fyrir 13 árum síðan, þá nýút-
skrifaður viðskiptafræðingur frá HR.
„Ég var ráðin beint úr HR til að sjá
um mannauðsmálin og að innleiða
stefnumiðað árangursmat. Í kjölfar-
ið varð Umferðarstofa eina stofn-
unin sem innleiddi bónuskerfi, það
þekktist ekki í ríkisstofnunum,“ seg-
ir hún. „Starfsmenn samþykktu að
hluti launahækkunar færi í bónus-
kerfi. Hugsunin á bakvið þetta var
að bæta rekstur stofnunarinnar, fá
meira út úr hverjum starfsmanni og
þar með fara betur með almannafé.
Þetta gaf mjög góða raun. Stjórnun
og rekstur stofnunarinnar batnaði til
muna,“ segir hún og hvetur stofn-
anir til að vera óhræddar við að læra
af einkageiranum. „Það er oft talað
um að ríkisstofnanir séu fimm árum
á eftir einkageiranum. Ríkið þarf að
vera óhrætt við að taka upp góða
vinnusiði einkafyrirtækja. Ekki til að
skila hagnaði, enda er það ekki mark-
miðið, heldur til að bæta reksturinn
og hækka þjónustustigið. Til þess eru
ríkisstofnanirnar og þær mega ekki
gleyma því. Þær eiga að veita lands-
mönnum ákveðna þjónustu,“ seg-
ir hún.
Svo vel tókst til hjá Umferðar-
stofu á sínum tíma að hún var árið
2009 og 2010 kosin stofnun ársins.
„Það tókst að reka hana vel í öllum
skilningi. Árangursstjórnunarkerfið
reyndist mjög vel, við vorum með
opið bókhald og það myndaðist góð
fyrirtækjamenning innan stofnunar-
innar,“ segir hún.
Lærdómskríkt
sameiningarferli
Dagný tók síðan við sem forstjóri
Umferðarstofu árið 2012 og gegndi
því starfi þar til Samgöngustofa varð
til árið 2013 við sameiningu Um-
ferðarstofu, Flugmálastjórnar Ís-
lands og hluta Siglingastofnun-
ar Íslands og Vegagerðar. Þá hóf
Dagný störf sem framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs hjá hinni nýju stofn-
un. Hún segir sameininguna hafa
verið að mörgu leyti erfiða en mjög
lærdómsríka. „Þetta var í raun sex
ára óvissuferli í heildina og margt
sem hefði mátt mun betur fara. Í
fyrsta lagi var af einhverjum ástæð-
um ákveðið að sameina á miðju
sumri, það var ekki gæfulegt,“ seg-
ir Dagný og hlær við. „En síðan tók
þetta líka bara alltof langan tíma.
Þarna var verið að sameina stofn-
anir þar sem var rosalega ólík fyr-
irtækjamenning. Nú eru rúm þrjú
ár síðan og við erum komin á rétt
ról í breytingaferlinu, rekstur-
inn gengur vel og spennandi tímar
framundan,“ segir hún en bætir því
við að sameining hafi nú haft sína
kosti. „Sem stærri einingar er hægt
að reka stofnanir betur, með meiri
sveigjanleika. Samgöngustofa er
orðin ein af stærstu ríkisstofnun-
unum með um 140 manns í vinnu,“
segir hún.
Elskar að keyra á milli
Meðal verkefna komandi tíðar hjá
Samgöngustofu nefnir Dagný sem
dæmi að verið sé að leggja loka-
hönd á rafræn eigendaskipti bif-
reiða og þá sé verið að hanna nýja
skipaskrá. Þá fagnar hún framlög-
um til fræðslu- og forvarnarmála
og vonast til að stofnunin geti ráð-
ist í nýja umferðaröryggisherferð á
næstunni. „Við fengum 75 milljóna
króna framlag til umferðarörygg-
ismála núna á síðustu fjárlögum,
en ekki krónu í fyrra. Við munum
nýta það til að útbúa ýmiss konar
fræðsluefni og ég er mjög ánægð
með það,“ segir Dagný sem kveðst
ánægð í starfi. „Þegar ég byrjaði
þótti nú ekki fínt að vera meira en
tvö ár á sama stað,“ segir hún og
hlær við. „En mér líkar þetta mjög
vel og ætla að vera áfram meðan ég
er ánægð í starfi,“ segir Dagný og
bætir því við að hún setji það ekki
fyrir sig að aka á milli Akraness og
Reykjavíkur á hverjum degi. „Ég
elska að keyra á milli. Á hverjum
degi fæ ég hálftíma til að kúpla mig
algerlega út úr vinnunni. Ég vil búa
á Skaganum, stelpunum líður vel
hérna og okkur öllum. Þetta gæti
ekki hentað betur,“ segir Dagný
Jónsdóttir að lokum.
kgk
„Konur í stjórnunarstöðum þurfa ítrekað að
berjast við staðalímyndir“
- Dagný Jónsdóttir rannaskaði upplifun kvenna í forystu í fjármálageiranum
Dagný með
eiginmanni
sínum, Agnari
Kjartanssyni, á
góðri stundu.
Dagný ásamt
dætrunum
Bríeti, Öglu og
Aþenu.
Dagný Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Samgöngustofu. Í meistararitgerð sinni í Forystu og stjórnun frá Háskólanum á
Bifröst rannsakaði hún upplifun kvenna í forystu í fjármálageiranum á Íslandi.