Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2017, Qupperneq 19

Skessuhorn - 11.01.2017, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2017 19 Stígamót munu á næstunni bjóða upp á ókeypis þjónustu fyrir íbúa Vesturlands. Þjónustan verður staðsett í Borgarnesi og er ætluð fólki sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi Kynningarfundir verða haldnir í Landnámssetrinu í Borgarnesi miðvikudaginn 18. janúar kl. 20 og í Samkomuhúsinu á Grundarfirði fimmtudaginn 19. janúar kl. 20 Stígamót bjóða til opinna kynningarfunda í Grundarfirði og í Borgarnesi Verið öll hjartanlega velkomin Starfsfólk Stígamóta SK ES SU H O R N 2 01 7 Hjónin Sæmundur Steindór Magn- ússon og Guðrún Katrín Sandholt opnuðu á gamlársdag verslunina MyVape Akranes að Vesturgötu 162 á Akranesi. Þar selja þau raf- rettur og vökva í þær. Sjálf hættu þau reykingum og tóku upp raf- rettuna í vetur og nú vilja þau að- stoða reykingafólk við að gera slíkt hið sama. „Við hjónin hættum að reykja fyrir að verða þremur mán- uðum síðan og fengum okkur raf- rettu. Áður reyktum við tvo pakka á dag og satt best að segja héldum við að það yrði ekki mögulegt að hætta. En það tókst með hjálp raf- rettunnar og þetta er allt annað líf. Við erum hætt að reykja og líður vel,“ segir Sæmundur í samtali við Skessuhorn. En hvernig kom það til að þau ákváðu að hefja sölu á rafrettum? „Á Þorláksmessukvöld var mín raf- retta uppi á borði þar sem ég hafði lagt hana frá mér. Við eigum ketti og þeir fóru að leika sér í borð- dúknum sem varð til þess að hún mín datt í gólfið og brotnaði. Það var því algjört neyðarástand hér á Þorláksmessu,“ segir Sæmundur léttur í bragði. „Stuttu eftir jólin var pöntuð ný og við ákváðum um leið að kanna hver viðbrögð fólks yrðu við verslun sem þessari,“ segir hann og bætir því við að þau hafi ekki látið á sér standa. „Viðbrögðin eru búin að vera ótrúleg, bæði frá fólki sem nú þegar notar rafrettur en einnig öðrum. Þó nokkuð marg- ir viðskiptavinir sem komu til okk- ar strax eftir opnunina eru hættir að reykja,“ bætir hann við. Verslunin er ekki stór í sniðum eins og er og rekin í kjallara íbúðar- húss þeirra hjóna. Sæmundur segir að þau útiloki ekki að stækka versl- unina í náinni framtíð. „Sem stend- ur erum við með fimm tegundir af rafrettum, höfum alls konar vökva til sölu auk þess sem við sinnum allri þjónustu sem viðkemur þessu, skiptum um kol í rafrettunum og fleira slíkt. Við erum í samstarfi við fyrirtæki í Reykjavík og ætlum að- eins að sjá hvernig þetta þróast. Við byrjuðum nú bara í kjallaranum hjá okkur, en ég á allt eins von á því að við þurfum að fara í annað húsnæði þegar líður á árið,“ segir hann. „Allt skárra en að reykja“ Sæmundur ítrekar að rafrettur séu fyrst og síðast hugsaðar til aðstoð- ar þeim sem vilja sega skilið við tóbaksreykingar. „Ég hvet fólk til að byrja ekki á þessu ef það neytir ekki tóbaks fyrir. Okkar hugsun er sú að fólk eigi að fara úr reyking- um og yfir í þetta og við höfum til- finningu fyrir því að þannig sé fólk að nota þetta,“ segir hann, en raf- rettur hafa um skeið verið umtalað- ar og ekki allir á einu máli um skað- leysi eða skaðsemi þeirra. „Rann- sóknir hafa sýnt að skammtíma- áhrif á þá sem skipta úr sígarettu- reyk yfir í rafrettu eru góð. Eins og kom fram til dæmis í heimildar- mynd frá BBC sem var sýnd á RÚV um daginn þá batnar bæði lungna- starfsemi og hjarta- og æðastarf- semi reykingamanna sem skipta yfir í rafrettur,“ segir Sæmundur en bætir því við að langtímaáhrif- in séu þó ekki enn komin í ljós. „En kostir þess að slökkva í sígarettunni eru ótvíræðir og ég veit til þess að læknar, bæði hérlendis og erlendis, hafa mælt með rafrettum við reyk- ingafólk sem vill hætta. Fyrir okkur hjónin var þetta sú leið sem virkaði, eins og hjá svo mörgum öðrum Ís- lendingum og ég hvet þá sem eru að spá í að hætta til að prófa. Það er allt skárra en að reykja,“ segir Sæ- mundur að lokum. Áhugasömum er bent á að versl- unin MyVape Akranes er opin alla virka daga frá kl. 10 til 18 og auk þess milli kl. 10 og 14 á laugardög- um. Athygli er einnig vakin á því að yngri en 18 ára eru ekki seldar raf- rettur. kgk Rafrettuverslun opnuð á Akranesi Sæmundur Steindór Magnússon og Guðrún Katrín Sandholt reka rafrettuverslunina MyVape Akranes.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.