Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2017, Qupperneq 27

Skessuhorn - 11.01.2017, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2017 27 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Keppni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik hófst að nýju eftir jólafrí síðasta laugardag. Í Borgar- nesi tók Skallagrímur á móti Val og vann öruggan sigur, þó lokatöl- ur gefi til kynna að leikurinn hafi verið heldur jafnari en hann var. Það var ekki fyrr en á lokamínút- unum að gestirnir tóku að minnka öruggt forskot Skallagrímskvenna sem sigruðu að lokum 93-83. Skallagrímskonur byrjuðu af miklum krafti og nánast kafsigldu gestina í upphafi leiks. Þær náðu tíu stiga forskoti strax í fyrsta leik- hluta en leiddu með átta stigum að honum loknum. Skallagrímsliðið var áfram mun sterkara og Vals- liðið átti á köflum erfitt með að halda í við það. Heimakonur náðu 15 stiga forskoti eftir miðjan ann- an leikhluta en undir lok fyrri hálf- leiks náði Valur aðeins að klóra í bakkann. Skallagrímur leiddi með tíu stigum í hálfleik, 52-42. Í síðari hálfleik buðu liðin upp á meira af því sama. Skallagrímur réð lögum og lofum á vellinum og forskotið jókst jafnt og þétt fram- an af. Liðið lauk þriðja leikhluta af krafti, sleit sig endanlega frá Vals- liðinu og leiddi með 21 stigi fyrir lokafjórðunginn. Valskonur voru betri í lokafjórðungnum og minnk- uðu forskotið hægt og sígandi. Það dugaði þeim hins vegar skammt, munurinn var einfaldlega of mikill og sigur Skallagríms aldrei í neinni hættu. Lokatölur í Borgarnesi voru 93-83, Skallagrími í vil. Sigrún Ámundadóttir var at- kvæðamest Skallagrímskvenna með 23 stig, ellefu fráköst og sex stoðsendingar. Tavelyn Tillman var með 20 stig og fimm stolna bolta og Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 15 stig og tók níu fráköst. Fanney Lind Thomas var með ell- efu stig og Jóhanna Björk Sveins- dóttir var með tíu stig, sex fráköst og sex stoðsendingar. Skallagrímur er sem stendur í 3. sæti deildarinnar með 20 stig eftir 14 leiki, jafn mörg og Snæ- fell í sætinu fyrir ofan. Þessi tvö lið mætast einmitt í næstu umferð. Vesturlandsslagurinn fer fram í Stykkishólmi í kvöld, miðvikudag- inn 11. janúar. kgk Öruggur sigur Skallagríms Jóhanna Björk Sveinsdóttir til varnar í leiknum gegn Val. Ljósm. Gunnlaugur A. Júlíusson. ÍA tók á móti botnliði Ármanns í 1. deild karla í körfuknattleik síð- astliðinn fimmtudag þegar deild- in fór aftur af stað eftir jólafrí. Skemmst er frá því að segja að Skagamenn voru miklu betri all- an leikinn gegn afar slöku liði Ár- menninga. Skagamenn unnu enda þægilegan sigur, 90-62. Ármenningar skoruðu fyrstu tvö stig leiksins af vítalínunni í upp- hafi leiks og leiddu í aðeins í þetta eina skipti, eða allt þar til ÍA jafn- aði mínútu síðar og stakk síðan einfaldlega af. Undir lok upphafs- fjórðungsins höfðu Skagamenn 18 stiga forskot, 28-10 og áttu enn eftir að bæta við. Gestirnir skor- uðu ekki stig á tíu mínútna kafla frá 6. mínútu leiksins og þar til á þeirri 15., eða sem nemur heil- um leikhluta. Varð það til þess að Skagamenn höfðu afgerandi for- ystu í hálfleik, 54-29 og með unn- inn leik í höndunum. Leikmenn ÍA héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og gestirnir komust hvorki lönd né strönd. ÍA náði mest 35 stiga forskoti seint í þriðja leikhluta og síðan aftur snemma í lokafjórðungnum. Að lokum fór svo að Skagamenn unnu stórsigur, 90-62. Derek Shouse var atkvæða- mestur leikmanna ÍA í leiknum og daðraði við þrennuna. Hann lauk leik með 27 stig, tólf fráköst og átta stoðsendingar auk þess sem hann stal boltanum fimm sinn- um. Sigurður Rúnar Sigurðsson skoraði 13 stig og tók níu fráköst, Björn Steinar Brynjólfsson skor- aði ellefu og Jón Orri Kristjánsson tók 13 fráköst en var hófsamur í stigaskorinu með fjögur stig. Sigur Skagamanna hafði ekki áhrif á sætaskipan þeirra í deild- inni. Þeir eru enn í 8. og næst- neðsta sæti en með átta stig, tveim- ur stigum á eftir næstu liðum fyrir ofan og eiga leik til góða á FSu. Næst leika Skagamenn föstu- daginn 13. janúar þegar þeir sækja Val heim. kgk Skagamenn hófu nýja árið á sigri Derek Shouse daðraði við þrennuna í stórsigri Skagamanna á botnliði Ár- manns. Ljósm. jho. Snæfell heimsótti Keflavík í stór- leik Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik síðasta laugardag. Fyrir leikinn voru Íslandsmeistar- ar Snæfells í 2. sæti deildarinnar en Keflavíkurkonur á toppnum. Eftir jafnan síðari hálfleik þar sem liðin skiptust á að leiða þurfti að fram- lengja til að knýja fram sigurvegara. Í framlengingunni voru Snæfells- konur betri og unnu að lokum sjö stiga sigur, 66-73. Jafnræði var með liðunum í upp- hafi leiks en um miðjan upphafs- fjórðunginn hófst góður leikkafli Snæfellskvenna sem leiddu með sjö stigum fyrir annan leikhluta. Leik- menn Keflavíkur fundu taktinn betur eftir því sem leið á fyrri hálf- leik. Þær minnkuðu forskot Snæ- fells jafnt og þétt og komust loks yfir skömmu fyrir hléið. Þær luku leikhlutanum síðan af krafti og fóru með sex stiga forskot inn í hléið, 34-28. Síðari hálfleikur fór rólega af stað og lítið var skorað framan af þriðja leikhluta. Þá náðu Snæfells- konur að jafna en eftir það fylgd- ust liðin nánast að. Snæfell komst stigi yfir áður en Keflavík svaraði í sömu mynt og bætti um betur með lokakörfu fjórðungsins. Heimakon- ur höfðu þriggja stiga forystu fyr- ir lokaleikhlutann, 50-47. Snæfell komst yfir að nýju snemma fjórð- ungsins og náði fimm stiga for- skoti um hann miðjan. Þá svöruðu heimakonur fyrir sig með snörp- um leikkafla og náðu sömuleiðis fimm stiga forskoti og aðeins tvær mínútur eftir. Snæfellskonur fóru í sókn og Aaryn Ellenberg-Wiley setti niður þriggja stiga skot. Kefl- víkingum mistókst að nýta næstu sókn sína og Aaryn skoraði laglega körfu og kom Snæfelli stigi yfir þegar aðeins fjórar sekúndur voru eftir. Keflavík tók leikhlé og stillti upp í lokaskot leiksins. Boltan- um var kastað inn en Snæfellskon- ur brutu á Ariana Moore í þriggja stiga skotinu. Henni brást hins veg- ar bogalistin á línunni, náði aðeins að setja niður eitt af þremur víta- skotum sínum. Staðan eftir venju- legan leiktíma 63-63 og því varð að framlengja. Skemmst er frá því að segja að reynslumikið lið Snæfells var ein- faldlega sterkara í framlengingunni og gerði fá mistök. Jafnt var fyrstu tvær mínútur hennar en eftir það seig Snæfell fram úr og sigldi sigr- inum að lokum heim af vítalínunni. Lokatölur í Keflavík voru 66-73, Snæfelli í vil. Aaryn Ellenberg-Wiley skor- aði 31 stig fyrir Snæfell og tók 10 fráköst. Næst henni kom Bryndís Guðmundsdóttir með ellefu stig og níu fráköst. Snæfell situr í 2. sæti deildar- innar með 20 stig eftir 14 leiki, en náði með sigrinum að minnka for- skot toppliðs Keflavíkur í aðeins tvö stig. Toppbaráttan er hörð, því í þriðja sæti situr Skallagrímur með jafn mörg stig og Snæfell. Þessi tvö lið mætast einmitt í sannkölluðum Vesturlandsslag í Stykkishólmi í kvöld, miðvikudaginn 11. janúar. kgk Reynslusigur Snæfells eftir framlengdan leik Aaryn Ellenberg-Wiley dró vagninn þegar Snæfell tryggði sér sigur á Keflavík eftir framlengdan leik. Hér er hún í viðureign liðanna í Stykkishólmi fyrr í vetur. Ljósm. úr safni/ sá. Að kvöldi síðasta fimmtudags hófst keppni í Domino‘s deild karla að nýju eftir jólafrí. Í Borgarnesi tók Skallagrímur á móti Haukum í há- dramatískum leik. Úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndum fram- lengingar þegar Skallagrímsmenn skoruðu úrslitastigin og tryggðu sér tveggja stiga sigur, 104-102. Borgnesingar byrjuðu af mikl- um krafti og náðu ellefu stiga for- ystu seint í fyrsta leikhluta. Þá tóku gestirnir aðeins við sér og minnk- uðu muninn í sex stig fyrir annan fjórðung. Skallagrímsmenn höfðu áfram yfirhöndina en Haukar luku fyrri hálfleiknum af krafti og sáu til þess að ekki munaði nema þremur stigum í hléinu, 47-44. Gestirnir komu ákveðnari til síðari hálfleiks og jöfnuðu í 51-51 þegar skammt var liðið af þriðja leikhluta. Þeir komust síðan yfir en Skallagrímsmenn voru aldrei langt undan. Gestirnir náðu mest fjög- urra stiga forystu og fyrir fjórða og síðasta leikhluta var staðan 71-74 fyrir Haukum. Lokafjórðungurinn var fjörugur mjög. Skallagríms- menn hófu hann af krafti, jöfnuðu í 71-71 og komust síðan fimm stigum yfir með góðum leikkafla. Hauk- ar svöruðu fyrir sig og komust yfir á nýjan leik með tveimur stigum en þegar þrjár mínútur lifðu leiks jöfnuðu Skallagrímsmenn í 82-82 og leikurinn var í járnum eftir það. Skallagrímsmenn voru tveimur stigum yfir þegar innan við hálf mínúta lifði leiks en Haukar jöfn- uðu í 90-90 þegar aðeins fimm sek- úndur voru eftir. Skallagrímsmenn tóku leikhlé og stilltu upp í skot, en það var hins vegar varið og ljóst að framlengingu þyrfti til að knýja fram sigurvegara. Þar voru það Haukar sem byrj- uðu af miklum krafti, náðu fimm stiga forystu og leit út fyrir að þeir ætluðu að tryggja sér sigurinn. En Skallagrímsmenn voru ekki á þeim buxunum. Þegar innan við hálf mínúta lifði leiks minnkuðu þeir muninn í eitt stig og sendu Hauka síðan beint á vítalínuna. Þeir náðu aðeins að setja annað vítið niður og forskot þeirra því aðeins tvö stig og 18 sekúndur á klukkunni. Sjö sek- úndum síðar brutu þeir á Sigtryggi Arnari Björnssyni sem jafnaði í 102-102 af vítalínunni. Haukar náðu skoti í síðustu sókn leiksins. Flenard Whitfield náði frákast- inu á lokasekúndunni en þá brutu gestirnir á honum og bókstaflega köstuðu leiknum frá sér. Flenard átti ekki í vandræðum með að setja vítin niður og tryggja Skallagrími dramatískan sigur, 104-102. Fyrrnefndur Flenard fór mikinn í leiknum, skoraði 34 stig og tók 15 fráköst. Sigtryggur Arnar var með 22 stig og fimm fráköst, Magnús Þór Gunnarsson með 18 stig og fimm stoðsendingar og Darrell Flake skoraði tíu stig og gaf sex stoðsendingar. Skallagrímur lyfti sér með sigr- inum upp í fimmta sæti deildar- innar. Liðið hefur tólf stig eftir tólf leiki, jafn mörg næstu tvö lið en tveimur stigum á eftir næsta liði fyrir ofan. Næst leikur Skallagrímur fimmtudaginn 12. janúar þegar lið- ið heimsækir Íslandsmeistara KR. kgk Tryggðu sér sigurinn á lokasekúndunni Flenard Whitfield átti stórgóðan leik og tryggði Skallagrími sigurinn af vítalínunni á lokasekúndu leiksins. Ljósm. Gunnlaugur A. Júlíusson.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.