Skessuhorn - 18.01.2017, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2017 15
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams
Sýningareintak á staðnum.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
Menntaskólakennara í Borgarnesi
Dag ur í lífi...
Nafn: Bjarni Þór Traustason.
Fjölskylduhagir/búseta: Gift-
ur Sigrúnu Ögn Sigurðardóttur
(Dódó). Við eigum fjóra drengi
á aldrinum frá 4 ára til 16 ára.
Starfsheiti/fyrirtæki: Kennari
við Menntaskóla Borgarfjarðar.
Áhugamál: Fjölskyldan, íþrótt-
ir og sauðfjárrækt.
Vinnudagurinn: Fimmtudag-
urinn 12. janúar 2017
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Vaknaði rúmlega 7 og
var í því að koma drengjunum á
fætur og koma þeim í leikskóla,
grunnskóla eða framhaldskóla.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? AB mjólk með múslí.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Fékk far með kon-
unni og var mættur klukkan
8:07
Fyrstu verkin í vinnunni? Smá
spjall á kaffistofunni áður en ég
fór að kenna klukkan 8:20
Hvað varstu að gera kl
10? Klukkan 10 var ég að
kenna skemmtilegum hópi í
STÆR3HE06 þar sem Heild-
un og deildajöfnur verða meg-
in inntakið á þessari önn.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Borðaði kjúklingasúpu með
nemendum og kennurum MB.
Hvað varstu að gera kl 14?
Var að kenna öðrum af tveim-
ur hópum sem eru á fyrsta ári í
stærðfræði.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni?
Kenndi til klukkan 15:30 og
var til rúmlega 16 að setja inn
efni á kennsluvefinn og undir-
búa kennslu morgundagsins.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Skaust í fjárhúsin og gaf kind-
unum mínum, skutlaði þeim
næst-yngsta á æfingu og þeim
elsta í rútuna með meistara-
flokk Skallagríms sem fór og
keppti við KR í Vesturbæn-
um. Hljóp síðan með félögum í
hlaupahópnum Flandra og það
voru hressandi 7 kílómetrar í 7
stiga frosti.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Fékk ljúffengt heima-
gert slátur sem konan mín eld-
aði með glæsibrag.
Hvernig var kvöldið? Horfði
á leik KR og Skallagríms í sjón-
varpinu þar sem mínir menn
stóðu sig frábærlega en töpuðu
naumlega eftir framlengingu.
Hvenær fórstu að sofa? Beið
eftir elsta drengnum sem kom
heim um miðnætti.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Horfði á lögguþátt með
þeim næst elsta.
Hvað stendur uppúr eftir
daginn? Skemmtilegur og fjöl-
breyttur dagur sem er einmitt
eins og ég vil hafa þá.
Eitthvað að lokum? Þú skalt
fanga þessa stund, því fegurðin
í henni býr.
Sif Sigurþórsdóttir og Elísa-
bet Pétursdóttir nemendur í MB
tóku saman.
Karlakórinn Söngbræður gekkst fyrir árlegri sviða- og
hrossakjötsveislu í félagsheimilinu Þinghamri í Stafholt-
stungum á laugardaginn. Samkoma þessi hefur fram til
þessa verið haldin í Logalandi en sökum mikillar eftir-
spurnar var ákveðið að færa hana í stærra og rúmbetra hús
að þessu sinni. Þrátt fyrir að það bitnaði lítið eitt á hljóm-
burði reyndist sú breyting vel því vel á fjórða hundrað gest-
ir mættu og gerðu vel við sig í mat, drykk og menningu.
Á boðstólnum var hefðbundinn matseðill; saltað hrossa-
kjöt, svið ásamt tilheyrandi meðlæti. Kórinn söng við und-
irleik hljómsveitar, en Karlakór Kjalnesinga var gestakór
að þessu sinni. Þá var sú nýbreytni að hagyrðingar komu
fram og stýrði Guðmundur Þorsteinsson frá Skálpastöð-
um þeim dagskrárlið. Í panel voru hagyrðingarnir Jón Jens
Kristjánsson, Helgi Björnsson, Þórdís Sigurbjörnsdóttir og
Vigfús Pétursson. Mæltist þeim vel og kitluðu hláturtauga-
rnar. Með Söngbræðrum kom fram í einu laganna eigin-
kona Viðars Guðmundssonar kórstjóra, Barbara Guð-
bjartsdóttir. Flutti hún eigið ljóð, tileinkað hestinum, af
engu minni krafti en frumflytjandi þess, sjálf Tina Turner.
Hljómsveit hússins var skipuð þeim Heimi Klemenzsyni,
Bjarna Guðmundssyni og Guðbjarti Björgvinssyni. Sigur-
þór Kristjánsson sá um hljóðblöndun og tryggði að talað
sem sungið mál skilaði sér til allra. mm
Troðfylltu stærra félagsheimili
Söngbræður að hefja dagskrána. Til vinstri er Viðar Guðmundsson kórstjóri.
Hagyrðingar. F.v. Jón Jens, Helgi, Guðmundur, Þórdís og Vigfús.
Þétt setinn salurinn í Þinghamri. Talsverð nýliðun er í Söngbræðrum. Hér eru tveir af yngri kórfé-
lögum, þeir Höskuldur Kolbeinsson og Sævar Eggertsson.
Þarna á diskunum voru m.a. tvær þriggja vetra hryssur og
þingeyskir sviðakjammar.