Skessuhorn


Skessuhorn - 18.01.2017, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 18.01.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 201722 Stígamót munu á næstunni bjóða upp á ókeypis þjónustu fyrir íbúa Vesturlands. Þjónustan verður staðsett í Borgarnesi og er ætluð fólki sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi Kynningarfundir verða haldnir í Landnámssetrinu í Borgarnesi miðvikudaginn 18. janúar kl. 20 og í Samkomuhúsinu á Grundarfirði fimmtudaginn 19. janúar kl. 20 Stígamót bjóða til opinna kynningarfunda í Grundarfirði og í Borgarnesi Verið öll hjartanlega velkomin Starfsfólk Stígamóta SK ES SU H O R N 2 01 7 Marel hefur nú sent sundbolta til bæjarfélaga þar sem Marel fisk- vinnslutækni hefur verið innleidd. „Það er fátt íslenskara en upphit- uð sundlaug, nema ef til vill fisk- vinnsla. Sundlaugar má finna í flestum bæjarfélögum á Íslandi og þær eru mikilvægur samkomu- staður allan ársins hring. Marel sér fjölda fyrirtækja um allt land fyrir háþróuðum tæknibúnaði til fisk- vinnslu. Samstarf fyrirtækjanna og Marel er náið og þar skipta starfs- menn miklu máli. Því langar Mar- el til að gleðja íbúa bæjarfélaga sem nýta sér Marel tæki með lítilli gjöf, sundboltum. Boltunum er dreift á sundlaugar víða um land í laugar nærri fiskvinnslustöðvum til þess að sem flestir geti notið þeirra,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fyrstu sundboltunum var dreift á Dalvík á Fiskideginum mikla en nú í vetur hafa boltar verið sendir í 30 sundlaugar til viðbótar í bæjarfélög- um á landsbyggðinni, meðal annars á Akranes, Borgarnes, Stykkishólm, Grundarfjörð og Snæfellsbæ. mm Marel gefur sundbolta á Vesturland Botnlið Snæfells mun ljúka yfir- standandi keppnistímabili í Dom- ino‘s deild karla án erlends leik- manns. Eins og áður hefur verið greint frá rifti liðið samningi sínum við Sefton Barrett þegar tímabilið var hálfnað. Í stað hans var feng- inn til liðsins Christian Covile, en tafir urðu á leyfamálum hans vegna veikinda og fjarveru starfsmanna Útlendingastofnunar milli jóla og nýárs. Missti hann því af fyrsta leik tímabilsins snemma í mánuðinum og til stóð að hann myndi leika með Snæfelli fyrsta sinni gegn Njarðvík á föstudag. Ekkert varð hins vegar af því vegna þess að hann er á saka- skrá í heimalandinu Bandaríkjunum vegna smáglæps sem hann framdi á háskóladögum sínum. Fær hann því ekki atvinnuleyfi á Íslandi. Í samtali við Vísi.is á föstudag var haft eftir Inga Þór Steindórs- syni þjálfara að leikmaðurinn væri með „skólahrekk á sakarvottorði.“ Munu Covile og vinir hans hafi stundað það að hrekkja hvorn ann- an með því að fara inn í herbergi og íbúðir hvers annars og setja allt á hvolf með því að færa húsgögnin út um allt. Covile mun síðan hafa ætlað að hrekkja þáverandi kærustu með sama hætti. Hún hafði hins vegar engan húmor fyrir uppátæk- inu, kærði Covile sem var sakfelld- ur fyrir að fara inn í hús án leyfis. „Útlendingastofnun sagðist þurfa að taka sér 6-8 vikur í að skoða málið en þá er tímabilið bara búið. Meira að segja þá var ólíklegt að hann myndi fá leyfi,“ segir Ingi Þór í samtali við Vísi. Snæfell mun því leika án erlends leikmanns það sem eftir er af mótinu. kgk Snæfell sendir Covile heim Vesturlandsmóti í sveitakeppni var spilað um síðustu helgi og tóku aðeins fjórar sveitir þátt að þessu sinni. Vesturland á þrjú sæti í und- ankeppni og jafnframt fyrstu vara- sveit og þykir því líklegt að all- ar fjórar sveitirnar mæti í undan- keppni Íslandsmótsins. Vestur- landsmeistarar þetta árið var sveit Guðmundar Ólafssonar, en ásamt honum spiluðu í sigursveitinni Hallgrímur Rögnvaldsson, Karl Alfreðsson og Tryggvi Bjarna- son. Forysta þeirra var afgerandi, en sveitin hlaut 135,7 stig. Í öðru sæti var sveit Jóns Eyjólfssonar með 99,2 stig, en ásamt honum spiluðu í sveitinni Baldur Björnsson, Svein- björn Eyjólfsson og Lárus Péturs- son. Í þriðja sæti varð sveit Jóns H Einarssonar, ásamt Ingimundi Jónssyni, Heiðari Árna Baldurssyni og Loga Sigurðssyni. Uppskáru þeir 76,95 stig. Í fjörða sæti varð sveit Sveins Hallgrímssonar með 48,17 stig, en ásamt Sveini spiluðu Flemming Jessen, Elín Þórisdóttir og Guðmundur Arason, auk þeirra Einars Guðmundssonar og Magn- úsar Magnússonar. Fjórar sveitir tóku þátt í mótinu. mm Þeir sigruðu á Vesturlandsmótinu með afgerandi hætti. F.v. Karl, Tryggvi, Guð- mundur og Hallgrímur (samsett mynd). Sveit Guðmundar Ólafssonar er Vesturlandsmeistari í bridds Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.