Skessuhorn


Skessuhorn - 18.01.2017, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 18.01.2017, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 2017 23 Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík var opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur á mánudaginn en mið- stöðin hefur verið starfrækt í Aðal- stræti 2 frá árinu 2002. „Flutning- ur Upplýsingamiðstöðvarinnar er liður í því að nýta húsnæði í eigu borgarinnar enn betur og auka þjónustu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Miðstöðin er á jarðhæð Ráðhúss- ins þar sem gönguás liggur í gegn- um húsið en hann er hugsaður sem hluti af göngustígakerfi borg- arinnar, þar sem almenningur get- ur komið saman og fylgst með því sem um er að vera í húsinu hverju sinni,“ segir í tilkynningu frá Höf- uðborgarstofu. Að jafnaði starfa níu manns hverju sinni í miðstöðinni og er hún opin alla daga ársins frá kl. 8.00-20.00 nema á jóladag. Opn- unartími Ráðhússins mun því lengjast sem því nemur. Miðstöð- in er sá staður í Reykjavík þar sem flestir erlendir ferðamenn hafa viðkomu og margir ákveða í fram- haldinu hvernig Íslandsheimsókn- inni verði best varið. Á síðasta ári fengu 475.000 ferðamenn aðstoð og þjónustu á Upplýsingamið- stöðinni í Aðalstræti sem var 28% fjölgun frá árinu áður og hafa þeir aldrei verið fleiri. mm Upplýsingamiðstöð í höfuð- borginni færð í Ráðhúsið ÚTBOÐ Akraneskaupstaður, Veitur ohf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í verkið: Vesturgata – endurnýjun Gatnagerð og lagnir Verkið felst í að endurbyggja Vesturgötu á milli Merkigerðis og Stillholts auk hluta gang- stétta á því svæði. Einnig verða lagnir veitufyrirtækja endurnýjaðar. Verkinu skal lokið fyrir 05. ágúst 2017. Helstu magntölur eru: Upprif yrborðs (steypa og malbik) ............................................................................ 5.300 m2 Gröftur í götu ............................................................................................................... 9.000 m3 Fylling og burðarlög .................................................................................................... 8.800 m3 Malbik ........................................................................................................................... 5.300 m2 Gröftur fyrir lögnum .................................................................................................... 1.800 m3 Fráveitulagnir ............................................................................................................... 1.500 m Vatnsveitulagnir ........................................................................................................... 1.400 m Hitaveitulagnir ................................................................................................................ 750 m Strenglagnir – rafstrengir ............................................................................................ 1.000 m Ljósastólpar .......................................................................................................................... 8 stk. Ídráttarrör ........................................................................................................................ 300 m Fjölpípur ........................................................................................................................... 300 m Útboðsgögn er hægt að nálgast hjá EFLU verkfræðistofu, þriðjudaginn 24. janúar 2017, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Akranesbæjar, Stillholti 16-18, 300 Akranesi, mmtu daginn 9. febrúar 2017, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. SK ES SU H O R N 2 01 7

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.