Skessuhorn - 25.01.2017, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 4. tbl. 20. árg. 25. janúar 2017 - kr. 750 í lausasölu
Við viljum hafa
pláss fyrir allt
Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun
bilið í bílakaupunum.
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á
arionbanki.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
7-
02
14
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
Verkir í liðum?
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA
verður haldinn fimmtudaginn
16. febrúar kl. 20:00 í
hátíðarsalnum að Jaðarsbökkum.
Dagskrá fundarins:
Venjuleg aðalfundarstörf
Áhugasamir aðilar sem hafa hug á
að starfa í stjórnum félagsins eru
vinsamlegast beðnir um að snúa
sér til kjörnefndar sem í sitja Gísli
Gíslason (gislig@faxafloahafnir.is),
Jóhanna Halldórsdóttir
(johanna@lmi.is) og
Magnús Brandsson
(magnus.brandsson@islandsbanki.is).
Stjórn Knattspyrnufélags ÍA
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Einhver umfangsmesta leit síðari tíma fór fram um helgina þegar björgunarsveitarfólk víðs vegar af landinu tók þátt í leit á suðvesturhorni landsins að Birnu Brjáns-
dóttur, tvítugri stúlku sem saknað hafði verið frá laugardeginum 14. janúar sl. Lík Birnu fannst á sunnudaginn í fjörunni skammt frá Selvogsvita á sunnanverðu
Reykjanesi. Lögregla telur fullvíst að Birnu hafi verið ráðinn bani, en tveir menn eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að morði. Greint er nánar frá leitinni á bls. 8.
Meðfylgjandi mynd af björgunarsveitarmanni við leit í hraunsprungu tók Sigurður Ó Sigurðsson fyrir Landsbjörgu.
Á þriðjudaginn í síðustu viku var
ákveðið að fresta samningaviðræð-
um á milli sjómanna og Samtaka fyr-
irtækja í sjávarútvegi fram til mánu-
dags í þessari viku. Stéttarfélög sjó-
manna nýttu tímann og funduðu með
sjómönnum, en meðfylgjandi mynd
er af samningafundi VLFA á Akra-
nesi. Á mánudaginn þegar samn-
inganefndirnar komu saman að nýju
varð fljótlega ljóst að aðilar voru ekki
að ná saman þrátt fyrir viðræðuhlé.
Slitnaði því upp úr viðræðum sjó-
manna og SFS og hefur nýr fundur
ekki verið boðaður í deilunni. Samn-
ingsaðilar vísa hvor á annan sökinni
að málum er svona komið. Samtök
útgerðarmanna telja sjómenn ekki
sýna ábyrga afstöðu en sjómenn telja
á móti að útgerðin vilji ekki koma
til móts við sanngjarnar kröfur um
hækkun á olíuverðsviðmiði og bætur
vegna sjómannaafsláttar. Verkfall sjó-
manna sem hófst 14. desember held-
ur því áfram. mm/ Ljósm. gg.
Stál í stál
Á fundi í stjórn Faxaflóahafna sf.
síðastliðinn föstudag voru málefni
Silicor Materials á Grundartanga til
umræðu. Eins og kunnugt er hefur
fyrirtækið fengið 22 ha lóð úthlutað
í landi Kataness til byggingar sól-
arkísilverksmiðju, en verkefnið hef-
ur dregist af ýmsum sökum, með-
al annars vegna fjármögnunar- og
raforkukaupasamninga. Fyrir fundi
Faxaflóahafna lá beiðni Silicor um
að ákvæði hafnarsamnings, lóðar-
leigusamnings og lóðagjaldasamn-
ings um gildistöku samninganna
verði framlengd til septembermán-
aðar 2017 og að heimild fyrirtækis-
ins til að segja sig frá samningunum
gildi til jafnlangs tíma. Stjórn Faxa-
flóahafna sf. taldi sig geta fallist á að
veita umbeðinn frest sem lokafrest,
en með eftirfarandi skilyrðum:
Í fyrsta lagi er sett sem skilyrði að
haft verði samráð við atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið og fjár-
málaráðuneytið vegna fjárfesting-
arsamnings Silicor og ríkisins um
frágang málsins þannig að frestun-
in rúmist innan ákvæða þess samn-
ings. Í öðru lagi er þess krafist að á
meðan unnið verður að fjármögn-
un verkefnisins, og þar sem samn-
ingar aðila hafa ekki tekið gildi,
verði ekki af hálfu Faxaflóahafna
sf. farið í neinar framkvæmdir sem
efni samninganna gera ráð fyrir.
Loks setur stjórn Faxaflóahafna
það skilyrði að Silicor Materials
haldi fulltrúum Faxaflóahafna sf.
upplýstum um gang viðræðna við
fjárfesta og geri þeim grein fyrir
því eins fljótt og kostur er hvort af
verkefninu verði, eða ekki, innan
þess tíma sem tilgreindur er í sam-
þykkt þessari.
Bókað var á fundinum að stjórn
Faxaflóahafna sf. heimilar hafnar-
stjóra að undirrita viðaukasamn-
ing við Silicor Materials, sem taki
til ofangreindra skilyrða. Þessa
ákvörðun samþykktu fjórir fulltrúar
í stjórn Faxaflóahafna en fjórir sátu
hjá við afgreiðsluna.
mm
Framlengja frest Silicor með skilyrðum
Svæðið innan gulu línunnar er það athafnasvæði sem Silicor á nú frátekið á
Katanesi. Fyrirtækið hefur nú fengið lokafrest frá Faxaflóahöfnum til september á
þessu ári til að ljúka samningum vegna framkvæmdarinnar.