Skessuhorn - 25.01.2017, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 2017 13
Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær
Sími 525 6700 • mos@mos.is • www.mos.is
VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í
anda Uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur
byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans,
Höfðabergi, ásamt 5 ára leikskóladeildum.
Laus störf til umsóknar:
Deildarstjóri óskast á leikskóladeild 5 ára barna í Höfðabergi.
Um 100% starf er að ræða. Æskilegt að viðkomandi getið hafið störf
1. mars eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Umsjónarkennsla á yngsta stigi. Um er að ræða 80 – 90% starfs-
hlutfall í mars vegna fæðingarorlofs.
Kennsla á unglingastigi. Um 100% starf er að ræða, tímabundið í
nokkrar vikur frá mars, vegna veikindaleyfis. Kennslugreinar stærð-
fræði og náttúrufræði.
Íslenskukennsla á unglingastigi. Um 100% starf er að ræða í 2 – 3
vikur í feb/mars vegna veikindaleyfis. Kennsla á miðstigi 50-70% starf.
Tímabundin ráðning í 20. febrúar – 17. mars.
Tónmenntakennsla á miðstigi. Um er að ræða stundakennslu,
6 stundir á viku, tímabundið út skólaárið.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á www.mos.is og
www.lagafellskoli.is.
Laun samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga
og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar veita Jóhanna Magnúsdóttir
skólastjóri í síma 5259200/896 8230 og Ásta Steina Jónsdóttir deildarstjóri
í síma 5259200/6920233. Umsóknir með upplýsingum um menntun,
starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið
johannam@lagafelsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2017.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Síðasti
vinnudagur
Óla Grétars er
31. janúar 2017
Af því tilefni verður
opið hús frá
kl. 9-16:30 í útibúi
Sjóvá á Akranesi,
Garðabraut 2a
Kaffi á könnunni
Allir velkomnir að
samfagna með
Óla Grétari á þessum
tímamótum
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Dalamaðurinn Svavar Garðars-
son stóð síðastliðinn föstudag fyrir
býsna óvenjulegum gjörningi. Sendi
hann opið bréf til Donald Trump
forseta Bandaríkjanna, en þetta var
einmitt dagurinn sem hann var sett-
ur í embætti. Bréfið er svohljóðandi
í íslenskri útgáfu (en það var sent
forsetanum á móðurmáli hans):
„Árið 1000 sigldi héðan frá Dala-
byggð Íslendingurinn Leifur Eiríks-
son landkönnuður í för sinni vestur
um haf. Eftir viðkomu á Grænlandi
hélt hann ferðinni áfram og finnur
þá Ameríku. Honum varð ljóst að
landið væri gríðarstórt og eitt fjöl-
margra annarra landa sem ættu einn
sameiginlegan heim.
Það sem Leifur vissi ekki er að
1017 árum síðar væri heimurinn í
vanda vegna mengunar af manna-
völdum. Í dag 20. janúar árið 2017
tekur nýr forseti við völdum í land-
inu sem Leifur fann, sá heitir Don-
ald Trump. Enn sem komið er hefur
hann ekki sýnt skynsamlega hugsun
í loftslagsmálum heimsins. Af þeim
sökum er hér flaggað fána vina-
þjóðar í hálfa stöng, í sveitinni þar
sem Leifur Eiríksson fæddist og hóf
sína siglingu vestur um haf.
Gert í minningu Leifs Eiríksson-
ar, Svavar Garðarsson.“
Með bréfinu fylgdi ljósmynd þar
sem íslenski fáninn var dreginn í
hálfa stöng framan við Leifsbúð í
Búðardal. Skessuhorn hefur heim-
ildir fyrir því að gjörningur þessi
hafi ekki verið með öllu óumdeild-
ur á heimaslóðum þeirra Leifs og
Svavars. Engu að síður vakti tiltækið
athygli, en fyrst og fremst var máls-
hefjandi að vekja athygli á nauðsyn
þess að umhverfis- og loftslagsmál
fái skilning, óháð því hvaða forseti
situr í Hvíta húsinu.
mm/ Ljósm. Steina Matt.
Gjörningut til að minna
Bandaríkjaforseta á loftslagsmál
Þær Eva Hlín Alfreðsdóttir og
Heiður Hörn Hjartardóttir í Borg-
arnesi hafa boðað athyglisvert verk-
efni í Borgarbyggð föstudaginn
27. janúar. Hvetja þær til að íbúar
í sveitarfélaginu taki hvíld frá raf-
tækjum á föstudaginn og taki þátt
í Föstudeginum Dimma. „Um er
að ræða algerlega sjálfsprottna við-
burði sem ætlað er að hvetja til um-
hugsunar um raftækjanotkun, skjá-
tíma og samskiptamáta,“ segja þær.
Þetta verður svona uppbrot hvers-
dagsins og upplifun á umhverfinu
og lífinu með öðrum hætti í Borgar-
byggð,“ segja þær.
Eva Hlín og Heiður Hörn vilja
minna á hve stutt er síðan umhverf-
ið rafvæddist og hvernig
samskipti hafa breyst frá
því að snjalltæki komu til
sögunnar. „Við hvetjum
heimilin í sveitarfélaginu
til þess að vera án raftækja í
einn dag. Draga fram kerti
og vasaljós, spilastokka og
borðspil og skemmta sér
við að segja draugasögur
og spjalla saman. Minn-
umst gamla tímans og
þökkum fyrir nútímaþæg-
indi. Þetta er áskorun um
að hvíla síma, netið og
kaffivélar eftir bestu getu
og finna skemmtilegar
lausnir. Til dæmis er hægt
að draga fram prímusa og
gasgrill.“
Þær segja jafnframt að
hlutverk og þátttaka hvers
og eins fari eftir áhuga-
sviði og möguleikum. Að
Bjargi verður sett upp æv-
intýraupplifun í skóginum
og meðfram ströndinni,
ef veður leyfir. „Þar verða
vasaljós og endurskins-
merki í aðalhlutverki ásamt
myrkrinu sjálfu! Þang-
að verða allir velkomnir,
mögulega gætu skólarnir
nýtt sér að koma og leyfa
krökkunum að upplifa það.
En einnig verða fjölskyld-
ur boðnar velkomnar til að
verja tíma saman og upp-
lifa ævintýrið dimma.
Nánar er hægt að lesa
um verkefnið á Facebo-
ok undir „fostudagurinn-
dimmi“. mm
Föstudagurinn dimmi í Borgarbyggð