Skessuhorn - 25.01.2017, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 201726
aðeins fiktað í þessu, kynnst gólfslíp-
un og lökkun. Þannig að ég keypti
mér græjurnar til að laga þetta,“ út-
skýrir hann. Ole Jakob sá fyrir sér að
hann gæti þá átt tækin til og tekið að
sér að slípa eitt og eitt gólf. „En það
varð strax svo mikið að gera að ég
náði ekki að klára gólfið heima fyrr
en um þarsíðustu helgi. Ég kom því
aldrei við,“ bætir hann við. Ole Jak-
ob fór einnig á námskeið til Svíþjóð-
ar ásamt þremur starfsmönnum frá
Gólfefnavali, sem í dag er hans birgi
og stuðningsaðili. „Þar fengum við
að heimsækja höfuðstöðvar Bona,
sem framleiðir öll tæki, pappír, olíu,
lökk og önnur efni sem við þurfum.
Þar lærðum við meðal annars hvern-
ig er hægt að samnýta olíu og lökk,“
segir Ole Jakob.
Hægt að samnýta
olíu og lakk
Hjá Alparketi einskorðast þjónust-
an við alla parketvinnu, hvort sem
rífa þarf upp gamalt parket og leggja
nýtt, eða eingöngu slípa og lakka.
„Oft fylgir því þó uppsetning á inn-
réttingum og innihurðum en það er
bara kærkomin tilbreyting við og
við,“ segir Ole Jakob. Hann segir að
átta af hverjum tíu gólfum séu lökk-
uð en önnur olíuborin. Nú sé hins
vegar hægt að olíubera gólf og lakka
síðan yfir, þannig að kostir tveggja
samnýtist til hins ýtrasta. „Munur-
inn á olíu og lökkun er í meginatrið-
um sá að olían fer ofan í viðinn og
nærir hann, á meðan lakkið veitir yf-
irborðsverndun. Harkan í lakkinu er
mun meiri en í olíunni en með tím-
anum fer að sjá meira á lakkinu og
þá þarf að lakka yfir aftur. Með olí-
unni getur hver sem er haldið fersk-
leika viðarins við með því að bera
olíuna reglulega yfir gólfið, sem er
jafn einfalt og að skúra,“ útskýr-
ir hann og bætir því við að olíubor-
ið gólf, sem fær reglulega rétta með-
höndlun, endist almennt mun leng-
ur en lakkað gólf. Það fari þó eftir
ágangi gólfsins og meðal annars eft-
ir því hversu margir búi á heimilinu
og hvort þar séu heimilisdýr. „Þessi
algengu parket sem fólk er að leggja
heima hjá sér er hægt að slípa tvisvar
til þrisvar sinnum. En svo eru gegn-
heil parket mun þykkari og það er
hægt að slípa þau mun oftar.“
Sorglegt að skipta út
gegnheilu parketi
Ole Jakob segir ansi algengt að fólk
láti skipta út parketi, þegar hægt væri
að slípa það upp. „Í einhverjum til-
fellum er mun ódýrara að slípa það
upp ef miðað er við að þú sért með
iðnaðarmenn. Fólk sem er komið
yfir fertugt er meira að láta slípa hjá
sér en yngra fólkið lætur oftast setja
nýtt.“ Hann segir að stundum sé
um að ræða gamalt en þykkt parket,
sem gæti því enst í tugi ára til við-
bótar. „En svo er því kannski skipt
út og sett plastparket í staðinn, sem
er bara að fara að endast í nokkur ár
á meðan hitt á 100 ár eftir. Gegn-
heilt parket getur dugað í meira en
hundrað ár og það er þess vegna
hægt að slípa það tuttugu sinnum.
Það er sorglegt að sjá þegar fólk er
að rífa svoleiðis upp og skipta því út
fyrir plastparket.“
Stór verkefni í bígerð
Hjá Alparketi eru allt að fjórir starfs-
menn ef um stór verkefni er að ræða.
Ole Jakob segist aftur á móti yfirleitt
starfa einn í heimahúsum, þar sem
algengt sé að verið sé að slípa 40 til
60 fermetra. „Þeir eru þrír sem eru
með mér og koma með sem verktak-
ar í stærri verk. Þetta eru fagmenn
sem eru í störfum annars staðar en
hlaupa til þegar þannig stendur á,“
útskýrir hann. Með stærri verkefn-
um sem Ole Jakob hefur tekið að sér
á Akranesi eru gólfin í Vinaminni og
í Gamla Kaupfélaginu. Hann seg-
ir jafnframt fleiri stór verkefni í bí-
gerð. Flest verkefni fyrirtækisins
hafa hins vegar verið á höfuðborg-
arsvæðinu. „En það er aukast hér á
Akranesi og ég fagna því alltaf að fá
verkefni sem eru nær heimabyggð.
Ég get gefið fólki á Akranesi og í ná-
grenni svokallaðan staðarafslátt. Ég
get tekið lægra fermetraverð út af
því að þá slepp ég við að keyra suð-
ur og þarf ekki að bíða á milli um-
ferða þar. Þannig get ég boðið lægra
verð en verktakar á höfuðborgar-
svæðinu,“ segir Ole Jakob Volden
að endingu.
grþ
Þórdís Kolbrún R. Gylfadótt-
ir, ráðherra ferðamála, skrifaði
í liðinni viku undir samning við
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og
Stjórnstöð ferðamála, á grund-
velli samþykktar Alþingis frá því
í október 2016, um verkefnið
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar.
Í Vegvísi í ferðaþjónustu frá því
haustið 2015 var lögð áhersla á sjö
þætti til að byggja traustan grunn
fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi og
er aukning á hæfni einn sá mikil-
vægasti til að auka gæði, jákvæða
upplifun ferðamanna og verð-
mætasköpun í greininni. Stjórn-
stöð ferðamála var falið að fylgja
Vegvísinum eftir og gaf út skýrslu
á liðnu ári með tillögum til að
auka hæfni starfsmanna í ferða-
þjónustu undir heitinu „Fjárfest-
um í hæfni starfsmanna“. Verk-
efnið um aukna hæfni er sett á
laggirnar til að framkvæma til-
lögurnar í skýrslunni. Fræðslu-
miðstöð atvinnulífsins, sem er
í eigu aðila vinnumarkaðarins,
leiðir Hæfnisetrið, í samstarfi við
Stjórnstöð ferðamála og Samtök
ferðaþjónustunnar.
Starfsemi Hæfnisetursins snýst
um að uppfylla þarfir ferðaþjón-
ustunnar fyrir aukna hæfni og
auðvelda fyrirtækjum að fjár-
festa í hæfni starfsmanna. Byggt
verður m.a. á hæfnigreiningum
starfa til að undirbúa fræðslu-
og þjálfunarúrræði. Litið verður
til annarra þjóða sem hafa þró-
að lausnir til að auka gæði, fram-
leiðni og arðsemi í ferðaþjónustu
á grundvelli hæfni stjórnenda og
starfsmanna, m.a. til Skotlands
og Kanada sem búa yfir víðtækri
reynslu á þessu sviði. Í Hæfnisetr-
inu verður áhersla á samvinnu við
greinina, aðila vinnumarkaðarins,
fræðsluaðila og stjórnvöld við að
þróa leiðtogafræðslu, námslotur
fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu,
þrepaskipt starfsnám og raun-
færnimat í starfsgreinum ferða-
þjónustunnar.
mm
Hæfnisetur ferða-
þjónustunnar stofnað
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, undirritaði
samninginn í liðinni viku ásamt forsvarsmönnum Stjórnstöðvar ferðamála og
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Ole Jakob Volden er fertugur tré-
smiður á Akranesi. Hann hefur verið
búsettur á Skaganum frá tíu ára aldri,
lauk húsasmíðanámi frá Fjölbrauta-
skóla Vesturlands og hefur unn-
ið við smíðar meira og minna allar
götur síðan. Í dag starfar hann í ker-
smiðju Norðuráls og samhliða því
rekur hann fyrirtækið Alparket sem
býður alhliða þjónustu með gólfpar-
ket. „Þetta byrjaði sem aukavinna.
Hugsunin var að skaffa með þessu
smá aukapening í hverjum mánuði.
Nú er verkefnastaðan þannig að ég
næ ekki að komast yfir öll þau verk-
efni sem mér standa til boða,“ segir
Ole Jakob í samtali við Skessuhorn.
Vinnudagurinn er því langur og Ole
Jakob segir að erfitt sé að vinna í 16
til 20 tíma á dag, mánuð eftir mán-
uð. „Þetta hefur undið svolítið upp
á sig miðað við það sem ég átti von
á í upphafi. Ég geri því ráð fyrir því
að hætta hjá Norðuráli með vorinu
og einbeita mér enn frekar að slípun
og lökkun.“
Náði ekki að klára
gólfið heima
Ole Jakob segir hugmyndina að
parketþjónustunni hafa vaknað fyr-
ir tilviljun fyrir um það bil tveimur
árum. Það gerðist í kjölfar þess að
sonur hans var að leika sér í baðher-
bergisvaskinum. „Litli púkinn var að
þvo dótið sitt í vaskinum og að sulla.
Klósettið liggur að ganginum og við
vorum að fylgjast með honum leika
sér. Eftir smá tíma er hann orðinn
rennandi blautur eins og gengur og
hættur að sulla. Seinna um kvöldið
tökum við eftir að það heyrist vatns-
hljóð en þá hafði eitt leikfangið stífl-
að rör og það flæddi inn á ganginn
hjá okkur.“ Hann segist í kjölfarið
hafa ákveðið að slípa parketið sjálf-
ur. „Ég hafði fyrir mörgum árum
Skagamaður veitir alhliða parketþjónustu
Ole Jakob að störfum. Ole Jakob (til hægri) ásamt samstarfsmanni sínum Camil, að gera litaprufur á
parketi.
Hér má sjá hvíta eik verða dökka. Eikina var áður búið að hvítta og lakka en á seinni myndinni hefur hún verið pússuð niður í
beran við, sprungufyllt, sett dökk olía á gólfið og lakkað yfir.