Skessuhorn


Skessuhorn - 25.01.2017, Page 30

Skessuhorn - 25.01.2017, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 201730 Notar þú samfélagsmiðilinn Snapchat? Spurning vikunnar (Spurt í Borgarnesi. Elísabet Péturs- dóttir nemandi í MB tók saman) Guðrún Emilía Daníelsdóttir: „Nei, hef hugsað það en það er í salti.“ Kristján J. Pétursson: „Já, hef notað það í 3-4 ár.“ Margrét Sæunn Pétursdóttir: „Já, búin að nota það í 3 ár.“ Guðbjörg Halldórsdóttir: „Já, frá upphafi.“ Leikfélagið Sv1 í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi vinn- ur nú að uppfærslu leikritsins um Línu Langsokk. Áætlað er að frumsýning verði 10. febrú- ar en til að það náist þurfa leik- arar og annað starfsfólk sýningar- innar að vinna hörðum höndum við æfingar og gerð sviðsmyndar á næstu vikum. Ásamt nemendum úr menntaskólanum taka nem- endur úr 10. bekk grunnskólans þátt í uppfærslunni. Geir Konráð Theodórsson er leikstjóri og er þetta í fyrsta skipti sem hann tek- ur að sér leikstjórn. Hann er hins vegar með eigið leikverk á fjölun- um í Landnámssetrinu um þessar mundir, Svarta Galdur. Leikfélagið Sv1 hefur sett upp fjölbreytt leikverk í gegnum árin. Leikritið í fyrra gekk mjög vel og var uppselt á allar sýningar. Leik- félagið Sv1 er óútreiknanlegt leik- félag því árin 2014-2015 fór það úr því að sýna Rocky Horror í að sýna Benedikt Búálf og því verð- ur spennandi að sjá hvernig hóp- urinn mun útfæra leikritið um Línu Langsokk og ekki síður hvað þeim dettur í hug að gera í næstu útfærslu. Darja og Ástríður, nemendur í MB, skráðu. Leikritið um Línu Langsokk á fjalirnar hjá Sv1 í Borgarnesi Gunnars Gauta Gunnarssonar dýralæknis Dagur í lífi (og lífsviðhorf)... Nafn: Gunnar Gauti Gunnars- son Búseta: Þórðargata 24 Borg- arnesi. Fjölskylduhagir: Sambýlis- konan mín er Edda Soffía Karlsdóttir og eigum við 9 börn frá 19 ára aldri til 41 árs. Allir flúnir að heiman nema ör- verpið Margrét Gunnarsdóttir. Starfsheiti: Orðinn óbreyttur dýralæknir í dag. Áhugamál og það sem hug- urinn dvelur helst við? Börn- in, barnabörnin 11, konan, bílar og útivist. Vinnudagurinn: Mánudagur- inn 16. janúar 2017. Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað var það fyrsta sem þú gerðir? Kl. 06:50 hringir Daníel á Ytra-Hólmi og kýr nr. 599 var allt að því að yfirgefa þennan jarðneska heim! Hún lifði þetta af; þökk skjótra við- bragða dýralæknisins og ekki síst Daníels sem hafði komið kalki undir húð á kúnni. Síðan bara sitt lítið af hverju það sem eftir lifði dags. Hvað borðaðirðu í morgun- mat? Daníel sá fyrir því, að ég yrði fastandi. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Byrjaði daginn á því að fara á Skodanum með skrán- ingarnúmerinu T-61 að Ytra- Hólmi, alveg í einum græn- um… Hvað varstu að gera kl. 10? Borða hafragraut. Þekktir þú eitthvað til dýra- lækninga áður en þú hófst nám? Ég vissi lítið, en hafði nasasjón af mörgu úr sveitinni. Leið vinnudagurinn svona við leik og störf? Já, en ein- ungis störf, ekki er boðið upp á leiki í minni vinnu. Hvar ertu í pólitík? Ég er „mella“ í pólitík. Hvað áttu við með því? Jú, sjáðu til. Ég vel bara þann stjórnmálaflokk sem hugur- inn girnist í það og það skiptið. T.d. síðast Katrínu og Vinstri- Græn. Eitthvað sem þú ert stolt- ur af? Sagði ekki Steinn Stein- arr: „Mitt stolt er að vera son- ur þessarar þjóðar (en þjóðin er ekki líkt því eins stolt af mér)“ Einhver bók í uppáhaldi? Já, t.d Hornstrendingabækurn- ar, Fátækt fólk og Baráttan um brauðið. Svo keypti ég eftir auglýsingu í Bændablaðinu nú nýverið Passíusálmana í skinn- bandi frá 1834. Afhverju hana? Ég hafði fyr- ir nokkrum árum ætlað mér að læra alla þessa sálma utanað fyrir sjötugt. Þeir eru 50 tals- ins, erindin 826 og braglínurn- ar 4871. Er þetta raunhæft og þú orð- inn 65 ára? „Við verðum að einbeita okkur að framtíðinni, því að þar verðum við þar sem eftir er ævinnar.“ Þetta sagði Mark Twain. Þetta mjakast, nokkrir sálmar búnir... Bestu tímaritin? Ég nefni þrjú: Ganglera, Stuðlaberg og Heima er best. Uppáhalds íslenskir heim- spekingar? Gunnar Dal og Sigurður Nordal. Einhverjir uppáhalds heim- spekilegir frasar? „Heppinn er sá, sem við hug sinn ræð- ur.“ Þessi er eftir Fichte. Síðan: „Kenningin er eitt og veruleik- inn annað,“ ég man ekki höf- undinn þar að. Uppáhalds ljóðskáld? Fer- skeytlan er mitt uppáhalds ljóðaform. Þeir sem mér finn- ast hafa gert þar vel eru t.d. Páll Ólafsson, Davíð Stef- ánsson, Jón Helgason og Ká- inn. Núlifandi, t.d. Dagbjartur kenndur við Refsstaði. Skondið fólk sem þú hitt- ir öðru hverju? Já, ég ætla að nefna Þorstein Mána og Helga á Snarta, ég held þeir tróni þar á toppnum. Mikilvægustu stundir lífs þíns? Þegar börnin mín litu dagsins ljós. Það hættulegasta sem þú hefur umgengist? T-61. Það er toxic eða aflífunarefnið fræga í den. Eitthvað sem þér finnst vera þér til trafala í lífinu? Ekki spurning: Bíladellan. Hún hef- ur valdið mér ómældu hugar- angri og haldið fyrir mér vöku. Hún eldist ekki af mér. Hvernig grínastu? Ætli flestir kannist ekki við það hjá mér, að ef einhver handavinna mín hef- ur tekist vel, að bera hendurn- ar framan í andlit þess sem ég er með og segja: „Sjáðu þessar hendur!“ Ef þú mættir velja starf í næsta lífi? Ekki spurning, dýralæknastarfið. Eitthvað spes sem þér finnst gaman að? Fá mér í tánna, helst XO. Mottóið í þínu lífi? Ég veit varla hvernig ég ætti að orða það. En eigum við ekki bara að segja: Skynsemin og góðleik- inn í mannlífinu. Sé það varð- veitt, er öllu borgið. Hvað gerðiru að þessum degi loknum? Snéri mér að Soff- íu og sofnaði strax (fastir liðir eins og venjulega). -Margrét Gunnarsdóttir, Harpa Sif Sigurðardóttir og Ás- björn Baldvinsson tóku saman.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.