Skessuhorn


Skessuhorn - 01.02.2017, Side 2

Skessuhorn - 01.02.2017, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 20172 Hjartaheill og SÍBS bjóða upp á ókeypis heilsufarsmælingar á heilsugæslustöðv- um á Snæfellsnesi um næstu helgi, dag- ana 4. og 5. febrúar næstkomandi. Mæl- ingarnar fara fram í Ólafsvík, Grundarfirði og Stykkishólmi. Sjá tímasetningar í við- burðaskránni á bls. 25. í Skessuhorni vik- unnar og í frétt. Austlæg átt á morgun, fimmtudag, víða 8-15 m/s en suðlæg átt um hádegi. Rign- ing eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins. Norðan 10-15 m/s á föstu- dag og snjókoma af og til á Vestfjörðum en hægari vindur annars staðar á landinu og úrkomulaust að mestu. Hlýnar þeg- ar líður á daginn. Á laugardag, sunnudag og mánudag er útlit fyrir breytilega átt en fremur hægan vind lengst af. Dálítil slydda og snjókoma víðast hvar á landinu en þurrir og bjartir kaflar á milli. Hiti ná- lægt frostmarki við ströndina, en frost inn til landsins. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hversu oft ferð þú að jafnaði í matvöru- verslun?“ Flestir, eða 39%, sögðu „3-6 sinn- um í viku“ en næstflestir, 26% „Tvisvar í viku“. „Vikulega“ sögðu 18%, „daglega“ sögðu 8% og 5% fara „sirka tvisvar í mán- uði“. Svarmöguleikarnir „mánaðarlega eða sjaldnar“ og „fer aldrei í slíka verslun“ fengu 2% hvor en fæstir, 1% kváðust fara „oftar en daglega“. Í næstu viku er spurt: Hvað gleypir þvottavélin þín marga sokka á ári? Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haralds- son, tvítugur leikmaður ÍA, var valinn í landsliðshóp A landsliðs Íslands fyrir vin- áttuleik gegn Mexíkó næsta miðvikudag. Er þetta í fyrsta sinn sem Tryggvi er valinn í landsliðið. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Leiðrétt- ur gestafjöldi Mannamóts LANDIÐ: Í síðasta tölu- blaði Skessuhorns var sagt frá Mannamóti markaðs- stofa landshlutanna. Mistök voru gerð í inngangi fréttar- innar þegar sagt var að gestir Mannamóts hefðu verið milli sjö og átta þúsund. Hið rétta var að þeir voru milli sjö og átta hundruð. Leiðréttist það hér með og er beðist velvirð- ingar á þessum mistökum. -kgk Banaslys í Esjuhlíðum VESTURLAND: 25 ára karlmaður lést og tveir slösuð- ust þegar snjóflóð féll í hlíð- um Esjunnar síðdegis á laug- ardaginn. Snjóflóðið féll um sex hundruð metra frá göngu- leiðinni á fjallið. Fjölmennt lið björgunarsveita, sjúkra- liðs, lögreglu og leitarhunda tók þátt í leit að manninum og aðgerðum á fjallinu auk þess sem þyrla Landhelgisgæsl- unnar var notuð við björgun- arstörf. Tveir mannanna kom- ust af sjálfsdáðum úr flóðinu. Þriðji maðurinn fannst látinn á áttunda tímanum um kvöld- ið. Hann hét Birgir Pétursson. Birgir var 25 ára, búsettur í Reykjavík en frá Stykkishólmi. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að aðstandendur hins látna vilji koma á framfæri þakklæti til þeirra sem þátt tóku í leitinni. -mm Afturelding og Heimamenn fengu styrki REYKHÓLAHR: Síðasta miðvikudag voru afhent- ir samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða. Alls bárust 82 um- sóknir og voru 42 styrkir veitt- ir samtals að fjárhæð 3,4 millj- ónir króna. Að þessu sinni runnu tveir samfélagsstyrkja OV til félagasamtaka í Reyk- hólasveit. Björgunarsveit- in Heimamenn fékk styrk að upphæð 150 þúsund krónur til kaupa á búnaði og björgun- arstarfs og Ungmennafélag- ið Afturelding fékk 50 þúsund krónur til starfsemi sinnar. -kgk Skaginn 3X er framsækið fyrirtæki á sviði kæli- og vinnslulausna fyrir matvælaiðnað um allan heim. Nánar á skaginn3x.is Þrjú fyrirtæki undir einu merki Á fundi bæjarráðs Akraneskaup- staðar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram tilboð um kaup á hlut Akraneskaupstaðar í Hellisheið- arvirkjun. Tilboðsgjafi óskaði eftir því að með tilboðið yrði farið sem trúnaðarmál. Sambærilegt tilboð var sent til Reykjavíkurborgar og Borgarbyggðar sem annarra með- eigenda, en samkvæmt heimild- um Skessuhorns í síðustu viku var ekki búið að taka erindin þar fyrir formlega. Bæjarráð Akraneskaup- staðar ákvað hins vegar að hafna tilboðinu. Hellisheiðarvirkjun er í eigu Orku náttúrunnar (ON), dóttur- félags Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem aftur er í eigu Reykjavíkur- borgar (93,54%), Akraneskaup- staðar (5,53%) og Borgarbyggð- ar (0,93%). Það var einkahluta- félagið MJDB sem í janúar lýsti áhuga fyrir að kaupa Hellisheiðar- virkjun af sveitarfélögunum þrem- ur. Stjórn Orkuveitu Reykjavík- ur hafði hins vegar hafnað tilboði um beina sölu á virkjuninni þegar MJDB óskaði eftir því í desemb- er. Einkahlutafélagið MJDB er að stærstum hluta í eigu Magnúsar B. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra America Renewables, en fyrirtæk- ið hefur komið að ýmsum verkefn- um sem tengjast endurnýjanlegum orkugjöfum. Ekki hefur farið fram verðmat á Hellisheiðarvirkjun. Bókfært virði virkjana Orku náttúrunnar í árslok 2015 var um 107 milljarðar króna miðað við núverandi gengi og má rekja bróðurpart þeirrar upphæðar til Hellisheiðarvirkjunar, þar sem Nesjavallavirkjun hefur verið af- skrifuð að stórum hluta og Anda- kílsárvirkjun er enn eldri. mm Akraneskaupstaður vill ekki selja hlutinn í Hellisheiðarvirkjun Hellisheiðarvirkjun. Ljósm. Orka náttúrunnar. Um 300 nemendur úr þrettán fram- haldsskólum landsins munu taka virkan þátt í háskólasamfélaginu dagana 2. og 3. febrúar þegar Há- skólahermirinn fer fram í Háskóla Íslands. Allir þrír framhaldsskólarn- ir á Vesturlandi eru þar á meðal, þ.e. Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjöl- brautaskóli Snæfellinga og Mennta- skóli Borgarfjarðar. Öll fræðasvið HÍ hafa undirbúið fjölbreytta dagskrá. Háskóli Íslands hleypti verkefninu Háskólaherminum af stokkunum á síðastliðnu ári við afar góðar undir- tektir en þá heimsóttu rúmlega 200 framhaldsskólanemar háskólann og kynntust námsframboði með lifandi og oft óvæntum hætti. Markmið verkefnisins er að efla frekar sam- starf Háskóla Íslands við framhalds- skólana og gefa ungu fólki tækifæri til að kynnast starfsemi háskólans af eigin raun og um leið styðja það í að taka upplýsta ákvörðun um nám og starf í framtíðinni. Fjölbreytt dagskrá Háskólaherm- isins fer fram víða á háskólasvæð- inu en hver nemandi sækir fjögur af fimm fræðasviðum skólans að eigin vali. Þar fást nemendur við spenn- andi verkefni sem snerta fræðasvið- ið og kynnast jafnframt ólíkum hlið- um námsins og þeim mörgu náms- leiðum sem finna má á hverju sviði. Með heimsókninni fær nemenda- hópurinn því góða innsýn í fjöl- breytt námsframboð háskólans og hugmyndir um hvað námið felur í sér. Lögð er áhersla á að kynning- arnar á sviðunum gefi mynd af hag- nýtingu námsins að því loknu. mm Vestlenskir framhaldsskólanemar í Háskólahermi Í síðustu viku voru haldnir tveir kynningarfundir vegna tillögu um nýtt aðalskipulag Snæfellsbæj- ar. Var annar fundurinn haldinn á Lýsuhóli en hinn í félagsheimilinu Klifi. Vel var mætt á báða fundina en tilgangur með þeim var að gefa íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að kynna sér tillögurn- ar og koma athugasemdum á fram- færi, áður en tillagan verður sett í auglýsingaferli. Gögnin sem kynnt voru á fundinum er hægt að nálgast á vef tæknideildar Snæfellsbæjar og er tekið við athugasemdum til 10. febrúar næstkomandi. Skulu þær sendar á byggingarfulltrui@snb.is þa Vel mætt á kynningarfundi um nýtt aðalskipulag

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.