Skessuhorn - 01.02.2017, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 201712
Jón Gunnarsson, nýr samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveð-
ið með vísan til markmiða byggða-
áætlunar og umsagnar stjórnar
Byggðastofnunar að verja allt að
100 milljónum króna úr fjárveitingu
byggðaáætlunar til að styrkja sér-
staklega uppbyggingu ljósleiðara-
kerfis í strjálbýlum sveitarfélögum. Á
Vesturlandi fá sveitarfélögin Borgar-
byggð, Dalabyggð og Reykhólasveit
úthlutun úr pottinum. Þessi fjárveit-
ing kemur til viðbótar 450 m.kr. út-
hlutun fjarskiptasjóðs til verkefnisins
Ísland ljóstengt 2017. Á vef ráðuneyt-
isins segir að tilgangur þessa viðbót-
arstyrks í verkefnið sé að styrkja sam-
keppnisstöðu sveitarfélaga við um-
sókn þeirra til fjarskiptasjóðs til að
hefja ljósleiðarauppbyggingu. Styrk-
umsóknir vegna verkefnisins Ísland
ljóstengt 2017 verða kynntir á opn-
unarfundi í innanríkisráðuneytinu 1.
febrúar kl. 13.
Í ljósi þess að fjárhagur sveitar-
félaga er mismunandi var ákveðið
að styrkja samkeppnisstöðu tiltek-
inna sveitarfélaga gagnvart umsókn-
um í samkeppnispott Fjarskipta-
sjóðs. „Þetta er gert í þeim tilgangi
að gera strjálbýlum sveitarfélögum
hægara um vik að hefja ljósleiðara-
uppbyggingu,“ segir í fréttinni. Alls
munu 19 sveitarfélög fá þessum fjár-
munum úthlutað á þessu ári og nem-
ur styrkupphæðin frá einni og upp í
12,1 milljón króna, en hæsta styrkinn
hlýtur Borgarbyggð. Úthlutun ræðst
af þeim forsendum að stuðst er við
þéttleika styrkhæfra svæða, hlutfalli
staða sem eru ótengdir, þróun íbúa-
fjölda árin 2005 til 2015, ferðatíma til
þjónustukjarna og eftir samgöngum,
fjárhagsstöðu sveitarfélags og meðal-
tekjum þess á íbúa. Gefin voru stig
út frá þessum forsendum og sveitar-
félög með fæst stig lentu efst í for-
gangsröðun. Óráðstafaður byggða-
styrkur getur flust milli ára. Af öðr-
um sveitarfélögum á Vesturlandi fær
Reykhólahreppur 6,5 milljónir króna
úr úthlutun samgönguráðuneytisins
og Dalabyggð 5,8 milljónir.
mm
Borgarbyggð, Dalir og Reykhólasveit hljóta sérstaka ljósleiðarastyrki
Á þriðja tug iðnaðarmanna legg-
ur þessa dagana nótt við dag við
breytingar á Fosshótel Reykholti.
Hótelinu var lokað í haust þegar
framkvæmdir hófust en stefnt er
á að ljúka fyrsta áfanga breyting-
anna fyrir lok apríl í vor þannig að
hægt verði að taka við gestum að
nýju. Áætlað er að framkvæmdirn-
ar kosti 1,3 milljarða króna og lýsir
það e.t.v. best umfangi verksins. Í
þessum fyrsta áfanga eru æði mikl-
ar breytingar gerðar á húsinu jafnt
innan- sem utandyra. Má nefna að
lyftu verður komið fyrir í húsinu.
Móttaka hótelsins verður stækk-
uð og m.a. sagað burt milliloft til
að bæta lofthæð og rými. Eldhús
verður lagfært og matsalur stækk-
aður og þá er verið að taka í gegn
þau hótelherbergi sem ekki voru
gerð upp síðast þegar ráðist var í
endurbætur á hótelinu. Öll hús-
gögn verða endurnýjuð.
Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt
hjá Basalt er hönnuður breyting-
anna í Reykholti. Útlitslega miða
þær að því að færa þennan hluta
nýrri mannvirkja í Reykholti til
samræmis og í anda gamla skóla-
hússins sem Guðjón Samúelsson
húsameistari ríkisins hannaði á
þriðja áratug síðustu aldar. Stærstu
útlitsbreytingar hótelsins verða
þær að núverandi þakkantur er
fjarlægður, steypt yfir þak og loks
þökulagt. Nýr þakktantur og útlit
hússins samkvæmt hönnun Sigríð-
ar á augljósa skírskotun í bygging-
arlag gamla skólahússins.
Síðast en ekki síst er heilsulind
hluti breytinganna og verða laugar
og aðstaða því tengd bæði í kjall-
ara undir matsal og utandyra í
porti milli húsanna. Í næsta áfanga
verksins verður reist nýbygging úr
forsteyptum einingum til austurs
þar sem verður álma með 28 nýj-
um hótelherbergjum.
Iðnaðarmenn víða að
Byggingastjóri fyrir Fosshótel er
Ólafur Sæmundsson hjá TVT ehf.
Þegar blaðamaður átti leið um
Reykholt í síðustu viku voru iðn-
aðarmenn hvarvetna að störfum.
Á einum stað var verið að saga
steypu og breyta á sama tíma og
losuð var ný steypa úr bíl og fyllt
í mót. Iðnaðarmenn voru að störf-
um á hótelherbergjum, jarðvinnu-
verktakar utandyra og hvarvetna
var mikið umleikis. Óli Sæm seg-
ir framkvæmdir ganga vel. „Lík-
lega erum við að fjarlægja yfir 90
rúmmetra af steypu enda er verið
að breyta húsnæðinu talsvert mik-
ið. Við stefnum á að ljúka þess-
um áfanga um eða eftir páska,“
segir Óli. Aðspurður segist hann
hafa hörkumannskap við verkið
en hluti iðnaðarmanna fylgdi með
honum að norðan en hann var síð-
ast að störfum á Húsavík. Þá kem-
ur hópur nærsveitamanna einnig
að verkinu.
mm
Afar umfangsmiklar breytingar á Fosshótel Reykholti
Óli Sæm í væntanlegri móttöku hótelsins. Þar er verið að saga burt milliloft og hverfa þar með tvö stór hótelherbergi á
annarri hæð. Móttakan verður hins vegar mun rúmbetri eftir breytingarnar.
Iðnaðarmenn að störfum við norðaustur horn hótelsins. Nýtt anddyri, steyptur rampur niður á kjallahæð fyrir vörumóttöku,
en til vinstri er grunnur þar sem ný hótelálma verður byggð.
Þannig sjá
arkitektarnir fyrir
sér nýja móttöku
hótelsins.
Þrívíddarteikning af matsal hótelsins.
Standard hótelherbergi mun líta svona út eftir breytingarnar.