Skessuhorn - 01.02.2017, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017 17
það sem við vildum gera,“ seg-
ir Kristín og systur hennar taka
undir það. „Ef það ætti að útskýra
hvers vegna við fetuðum allar þessa
braut þá er það líklega vegna sama
uppeldis. Við erum allar aldar upp
við nokkurs konar umönnun, bæði
dýra og barna og lærðum snemma
að láta okkur önnur börn varða,“
segja þær.
„Mikilvægasta starfið“
Innan veggja leikskólanna segja
systurnar mikið og gott starf unn-
ið af hugmyndaríku, þróttmiklu
og umfram allt velviljuðu starfs-
fólki. „Fólk fer út í þetta af því það
vill láta gott af sér leiða. Starf leik-
skólakennarans eða leikskólaliðans
er mikilvægasta starfið, ég stend
fast á því,“ segir Kristín og systur
hennar taka undir það. „Við erum
með í höndunum það dýrmætasta
sem fólk á,“ bætir Áslaug við.
Frá sjónarhóli starfsfólksins
segja þær að starfið sé skemmti-
legt. Það sé í senn fjölbreytt, gef-
andi og skapandi. „Það er gaman
í vinnunni,“ segja þær, „og á leik-
skólunum eru styrkleikar hvers og
eins nýttir í skólastarfinu, það á
bæði við um starfsfólkið og börn-
in. Þó leikskólanum sé sniðinn
ákveðinn rammi í aðalnámskrá þá
hafa skólarnir mikið svigrúm og
markvisst er unnið að því að draga
fram og nýta styrkleika hvers og
eins,“ segja systurnar og mæla með
því við alla að reyna sig á vettvangi
leikskólanna. „Við mælum hiklaust
með þessu starfi. Starfið einkenn-
ist af leik og það er auðvitað hug-
myndafræðin á bakvið leikskólana,
að læra í gegnum leikinn. Starfs-
fólk er ófeimið við að leika og leyfa
sér að vera eins og það er, sem ger-
ir öllum gott, bæði því sjálfu og
börnunum,“ segja Kristín, Áslaug
og Guðfinna að lokum.
kgk
Dagur leikskólans 2017 verður hald-
inn hátíðlegur í tíunda sinn mánu-
daginn 6. febrúar næstkomandi.
Verður dagurinn í ár helgaður því
góða starfi sem fram fer í leikskól-
um landsins og dregið fram það sem
hefur áunnist síðastliðið ár t.d. með
kynningarátakinu Framtíðarstarfið.
Samstarfsaðilar um Dag leikskól-
ans eru Félag leikskólakennara, Fé-
lag stjórnenda leikskóla, Samband
íslenskra sveitarfélaga, mennta-
og menningarmálaráðuneytið og
Heimili og skóli - landssamtök for-
eldra. Allir sem koma að málefnum
leikskólans á einn eða annan hátt,
eru hvattir til að halda Degi leik-
skólans á lofti og fylgjast vel með
starfsemi leikskólanna þennan dag.
Þá eru leikskólakennarar eru sér-
staklega hvattir til að vekja athygli á
störfum sínum.
Leikskólasysturnar þrjár
Í Borgarbyggð eru þrjár systur
sem allar hafa valið sér leikskólann
sem sinn vinnustað og starfað inn-
an veggja leikskóla um langt skeið.
Þetta eru systurnar Áslaug Ella
Gísladóttir, aðstoðarleikskólastjóri
Andabæjar á Hvanneyri, Krist-
ín Gísladóttir, leikskólastjóri Uglu-
kletts í Borgarnesi og Guðfinna
Gísladóttir, leiðbeinandi á Uglu-
kletti. Þær eru ættaðar frá Mið-
Fossum í Andakíl. Skessuhorn hitti
systurnar að máli á Uglukletti síð-
asta miðvikudag og ræddi við þær
um leik og starf. Blaðamanni leik-
ur fyrst forvitni á að vita hvað varð
til þess að þær ákváðu allar að feta
þessa braut? „Ég veit það eiginlega
ekki, en við erum aldar upp í sveit
þar sem oft var margt um mann-
inn og einnig tóku foreldrar okk-
ar á móti börnum til sumardvalar.
Við systurnar höfðum það hlutverk
að hafa ofan af fyrir þeim með ýms-
um hætti, svo sem með því að koma
öllum á fætur, gefa þeim að borða,
fara í sund, á hestbak og leyfa þeim
að taka þátt í öllum þeim störfum
sem þarf að sinna í sveitinni.“ „Það
sama á við um dýrin í sveitinni, frá
unga aldri höfum við lært að hugsa
um þau og hlúa að þeim. Þannig að
það má segja að við höfum eiginlega
alla tíð verið í einhvers konar um-
önnun,“ skýtur Guðfinna inn í og
Kristín bætir því við að margt sé líkt
með því að annast dýr og börn. „Til
þess að umgangast og annast dýr
þarf að sýna þeim virðingu og koma
vel fram við þau, byggja upp traust
og ná að tengjast þeim. Það sama á
við um börnin. Þau þurfa að finna
fyrir umhyggju og að komið sé fram
við þau af virðingu til að þau treysti
fólki. Á því byggjast öll samskipti við
börn,“ segir Kristín.
Féllu allar fyrir starfinu
Allar hafa þær starfað lengi innan
veggja leikskóla. Kristín og Áslaug
hófu störf á þessu sviði árið 1993
og lærðu síðar til leikskólakennara.
Guðfinna byrjaði að vinna á leik-
skóla árið 2000 og hefur lokið námi
sem leikskólaliði. „Ég fann það strax
eftir að ég prófaði að vinna á leik-
skóla að mig langaði að leggja þetta
fyrir mig,“ segir Áslaug og Krist-
ín hefur sömu sögu að segja. „Mig
langaði í þetta nám af því mér fannst
gaman að vinna með börnum og vil
láta mig börnin varða,“ segir hún.
„Ég fékk áhuga á starfinu eftir að ég
fór til Finnlands sem au-pair. Eftir
það langaði mig að prófa að vinna
á leikskóla. Ég lét vaða, hreifst strax
af starfinu og hef unnið á leikskóla
síðan þá,“ segir Guðfinna. En þó
leið þeirra allra inn á leikskólana
sé mjög keimlík og ástæður þess
að þær völdu þetta starf séu þær
sömu, áhugi og ánægja af starfi
með börnum, þá lögðu þær starf-
ið fyrir sig hver á sínum eigin for-
sendum. „Við fundum það bara hjá
okkur, hver og ein, að þetta væri
„Lærðum snemma að láta okkur önnur börn varða“
Rætt við þrjár systur sem allar starfa á leikskólum í Borgarbyggð
Systurnar Áslaug Ella Gísladóttir, aðstoðarleikskólastjóri Andabæjar á Hvanneyri, Kristín Gísladóttir, leikskólastjóri Uglu-
kletts í Borgarnesi og Guðfinna Gísladóttir, leiðbeinandi á Uglukletti.
Lesið fyrir börnin á Uglukletti. Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi.
MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 760
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar