Skessuhorn - 07.06.2017, Síða 1
Með Skessuhorni í dag fylgir
36 síðna blað helgað sjó-
mannadeginum næstkom-
andi sunnudag. Í blaðinu
er m.a. rætt við sjómenn
víðsvegar um landshlutann,
ýmist í stuttu bryggjuspjalli
eða lengri viðtölum. Sagt er
frá sagnfræðilegu verkefni
um sjókonur fyrri alda, rætt
við sjómannskonur og fleiri
sem tengjast greininni. Þá
er rætt við konur sem stóðu
vaktina við vinnslu hrogna á
síðustu vertíð og fjölmargt
fleira. Blaðið er auk hefð-
bundinnar dreifingar sent
á öll heimili og fyrirtæki á
Snæfellsnesi.
mm
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 23. tbl. 20. árg. 7. júní 2017 - kr. 750 í lausasölu
Við viljum hafa
pláss fyrir allt
Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun
bilið í bílakaupunum.
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is
Loratadin
LYFIS
- fæst án lyfseðils
www.skessuhorn.is
Minnum á fríar
smáauglýsingar á
vef Skessuhorns
Írskir dagar
verða á Akranesi
29. júní – 2. júlí
Veiði hófst í Norðurá í Borgarfirði á laugardaginn og þar með laxveiðisumarið hér á landi. Í fyrrsumar voru stórsöngvarar sem hófu veiðina í Norðurá en nú var komið að
knattspyrnuköppum, og þeim ekki af lakara taginu. „Gylfi Þór Sigurðsson var að landa sínum öðrum laxi rétt áðan. Báðir flottar fiskar, en þessi síðari var 92 sentimetr-
ar,“ sagði Einar Sigfússon sölustjóri Norðurár sem er hér á myndinni ásamt Gylfa Þór sem veiddi fyrsta fisk sumarsins. „Það hafa sloppið nokkrir laxar af og mikið líf og
fjör verið hér við ána,“ sagði Einar þegar rætt var við hann síðdegis á laugardaginn. Fyrstu þrjá veiðidagana komu 33 laxar á land úr ánni. „Þetta er meiriháttar gaman,
bara verst þegar laxinn sleppur, en ég náði öðrum strax á eftir,“ sagði Gylfi Þór. Hann var að vonum sigurreifur. Kjöraðstæður voru til veiða um helgina og greinilega
komið töluvert af fiski í ána. Í Brennunni, vatnamótum Hvítár og Þverár, veiddist auk þess þennan sama morgun boltafiskur sem reyndist 104 sm langur. Það var sjálfur
eigandinn, Magnús Magnússon bóndi á Hamraendum, sem setti í þann stóra. mm/ Ljósm. gb.
Bjarni Kristinn Þor-
steinsson slökkvi-
liðsstjóri í Borgar-
nesi segir nær fullvíst
að eldur sem kom
upp í sumarbústað í
landi Dagverðarness í Skorradal
síðastliðið fimmtudagskvöld hafi
átt upptök sín í rafkyntum heit-
um potti sem staðsettur var á sól-
palli við húsið. Enginn var í hús-
inu þegar eldurinn kom upp en
húsið er gjörónýtt. Bjarni seg-
ir að þetta sé í þriðja skipti á inn-
an við einu ári sem pottar af þessu
tagi valda bruna eða eru nærri því.
Öll tilfellin hafa verið í Skorra-
dal. Skömmu fyrir jól var slökkvi-
lið kallað að húsi neðar í daln-
um þar sem kviknað hafði í bún-
aði sem tengist
rafmagnspotti.
Ekki varð mikið
tjón í því tilfelli
enda húsráðend-
ur heima og gátu
kallað til aðstoð. Í þriðja tilfellinu
segist Bjarni hafa heyrt af fólki
sem einnig hafi verið heima þeg-
ar rjúka fór úr mótor eða búnaði í
rafmagnspotti og því stutt í sjálfs-
íkveikju. Bjarni hvetur fólk til að
láta ekki lifa á rafkyntum heitum
pottum þegar enginn er á staðn-
um eða á nóttunni. Í dælubúnaði
þeirra geti legur eða annar bún-
aður bilað og það leitt til íkveikju,
eins og þessi þrjú dæmi úr Skorra-
dal sanna.
mm
Þrjá sjálfsíkveikjur í
rafmagnspottum
Sjómannadagsblað fylgir
Skessuhorni í dag