Skessuhorn - 07.06.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 20176
Farið á fjörur
AKRANES: Á sjómanna-
daginn, sunnudaginn 11.
júní, verður í Akranesvita
opnuð einkasýning á verk-
um Hildar Björnsdóttur
og nefnist sýningin Farið á
fjörur. Verkin eru unnin út
frá ljósmyndum sem Hild-
ur hefur tekið á Íslandi
undanfarin ár, en Hild-
ur er starfandi listakona
í Noregi. Ljósmyndirn-
ar hafa flestar verið tekn-
ar við sjávarsíðuna á Vest-
urlandi, þar sem landslag-
ið og náttúran veita lista-
konunni innblástur. Verk-
in eru ýmist samsettar
myndir eða lítill hluti úr
stærra samhengi. Þau eru
unnin á álplötur og prent-
uð á grófan vatnslitapapp-
ír. Listakonan segir sjálf að
hún heillist að hinum sí-
fellda breytileika og lita-
dýrð íslenskrar náttúru í
samspili við árstíma. Lista-
konan segir sjálf að það sé
auðvelt að verða ástfang-
in þegar farið er á fjörur.
Við opnun sýningarinnar
klukka 12 á sunnudaginn
munTravel Tunes Iceland
frá Akranesi leika nokkur
lög og boðið verður upp á
léttar veitingar. Sýningar-
tímabilið er 11. júní - 10.
september, opið alla daga
kl.11 - 18.
-fréttatilk.
Leiðrétt vegna
Stofnunar
ársins
SKESSUHORN: Í frétt
Skessuhorns um Stofn-
un ársins, sem var á bls.
2 í síðasta blaði, var rangt
farið með hverjir eru að-
standendur viðburðarins.
Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar og SFR stétt-
arfélag standa sameigin-
lega að þessum viðburði
ásamt VR. SFR annars
vegar fyrir ríkisstofnanir
en hluti Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar er fyrir
Reykjavík, Akranes og Sel-
tjarnarnes. Þetta er sam-
vinnuverkefni og því ekki
frekar á vegum SFR en
Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar (St.Rv.) eins
og lesa mátti út úr frétt-
inni. Könnunin er stærsta
reglulega vinnumarkaðs-
könnun sem framkvæmd
er hér á landi og gef-
ur mikilvægar upplýsing-
ar um stöðu starfsmanna
á vinnumarkaði. VR hef-
ur útnefnt Fyrirtæki ársins
í rúm 20 ár og SFR hefur
staðið fyrir vali á Stofn-
un ársins síðastliðin 11
ár. Með því að taka þátt í
þessu samvinnuverkefni þá
gefst St.Rv. tækifæri til að
bera saman viðhorf félags-
manna sinna og félags-
manna VR og SFR. Þetta
leiðréttist hér með og beð-
ist velvirðingar á mistök-
unum.
-mm
Sóttu slasaða
konu að Glym
HVALFJ.SV: Björgunarsveit-
ir Landsbjargar frá Akranesi
og úr Borgarfirði voru kall-
aðar út klukkan rúmlega sex
á laugardaginn vegna slasaðr-
ar konu við Glym í Hvalfirði.
Samferðarmenn konunnar
höfðu samband við Neyðar-
línu eftir að konan hafði dott-
ið í urð og lék grunur á að
hún væri fótbrotin. Björgun-
arsveitarfólk bar konuna frá
slysstað og í sjúkrabíl á bíla-
stæðinu í Botnsdal.
-mm
Níu af hverjum
tíu með hjálm
LANDIÐ: Tryggingafélagið
VÍS hefur síðustu sex ár gert
könnun á hjálmanotkun hjól-
reiðamanna, á sama tíma og
átakið Hjólað í vinnuna hef-
ur staðið yfir. Töluverð breyt-
ing hefur orðið á hjálmanotk-
un hjólreiðafólks á þessum sex
árum. Í ár var hjálmanotk-
un könnuð hjá 1.304 einstak-
lingum og voru 89% þeirra
með hjálm. Það hlutfall var
einungis 74% fyrir sex árum.
Flest árin hefur sýnileikafatn-
aður jafnframt verið skoðaður.
Í ár voru 32% hjólreiðamanna
í slíkum fatnaði og hefur það
hlutfall verið svipað öll árin.
-mm
Síðastliðinn föstudag var útskrift
nemenda frá Landbúnaðarháskóla
Íslands. Fór athöfnin fram í Hjálm-
akletti í Borgarnesi. Dr. Björn Þor-
steinsson rektor LbhÍ, flutti ræðu og
óskaði nemendum velfarnaðar. Borg-
arfjarðarstöllurnar Steinunn og Sig-
ríður Þorvaldsdætur frá Hjarðarholti
sungu við undirleik Birnu Kristínar
Ásbjörnsdóttur frá Ásbjarnarstöðum.
Að þessu sinni útskrifuðust rétt rúm-
lega 60 nemendur af fjórum náms-
stigum skólans. 25 búfræðingar, 29
nemendur með BS-próf, sex nem-
endur með meistarapróf og einn með
doktorspróf.
Gunnþór Bergsson frá Pétursey 2
hlaut viðurkenningu fyrir bestan ár-
angur á búfræðiprófi og í nautgripa-
rækt. Bryndís Karen Pálsdóttir frá
Fossi hlaut viðurkenningu fyrir góð-
an árangur í sauðfjárrækt og í hag-
fræðigreinum. Hafsteinn Ingi Gunn-
arsson frá Kvíum, hlaut viðurkenn-
ingu fyrir góðan árangur í bútækni-
greinum og Sigríður Linda Hyström
frá Ártúnum hlaut viðurkenningu
fyrir góðan árangur í námsdvöl. Ein-
ar Sveinn Friðriksson frá Valþjófs-
stað 2 hlaut verðlaun fyrir góðan ár-
angur fyrir lokaverkefni.
Af Búvísindabraut voru útskrif-
aðir tíu nemendur og þar hlaut Sig-
ríður Þorvaldsdóttir frá Hjarðar-
holti viðurkenningu fyrir bestan ár-
angur. Katharina Olga Metlicka frá
Sviss var efst á BS-prófi í Umhverf-
isskipulagi og Jón Hilmar Krist-
jánsson frá Reykjavík í Skógfræði
og landgræðslu. Björk Lárusdóttir
frá Hvanneyri var efst á BS- prófi í
Náttúru- og umhverfisfræði. Hún
hlaut jafnframt viðurkenningu fyrir
frábæran árangur fyrir lokakverkefni
á BS prófi, ásamt Olgu Dís Sævars-
dóttur frá Reykjavík með einkunnina
9,5. Einnig hlaut Björk viðurkenn-
ingu fyrir bestan árangur á BS-prófi
með einkunnina 8,93. mm/Lbhi.is
Brautskráð frá
Landbúnaðarháskóla Íslands
Auður Magnúsdóttir deildarforseta Auðlinda- og umhverfisdeildar við púltið.
Hér afhendir Björn Þorsteinsson Björk Lárusdóttur viðurkenningum fyrir bestan
árangur á BS prófi og í náttúru- og umhverfisfræði.
Útskriftarhópur LbhÍ 2017 ásamt Birni Þorsteinssyni rektor.
Systurnar frá Hjarðarholti sungu við undirleik Birnu frá Ásbjarnarstöðum.