Skessuhorn - 07.06.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 20172
isins og áætlanir um uppbyggingu
sólarkísilvers. Áfram verður unnið
að framgangi verkefnisins á Íslandi,
en fyrirtækið mun þó einnig skoða
aðrar leiðir,“ segir Davíð. „Undan-
farna mánuði hefur verið kannaður
möguleiki á að byggja verkefnið upp
í áföngum. Í ljósi þess að mikill vöxt-
ur er í framleiðslu á sólarkísil og að
framleiðsluaðferð Silicor Materials
er fremri þeim sem nú eru ráðandi,
þá er þörf fyrir verksmiðju sem þessa
og að þessi tækni mun nýtast í um-
breytingu yfir í umhverfisvæna orku-
gjafa. Ekkert í verkefninu er varð-
ar fýsileika eða tækni hefur breyst.
Þvert á móti hefur frekari framþróun
á tækninni sýnt fram á meiri mögu-
leika, betri nýtingu og gæði. Fyrir
liggur að framleiðsluferlið er mjög
verðmætt og m.a. hafa nýlegar próf-
anir hjá Fraunhofer stofnuninni í
Þýskalandi sýnt fram á góða eigin-
leika afurðarinnar fyrir svokallaðar
einkrystallaðar sólarsellur, en áður
lá fyrir að efnið hentaði vel fyrir fjöl-
krystallaðar sólarsellur,“ segir Davíð
Stefánsson.
Áfram þörf út frá
umhverfissjónarmiðum
Terry Jester stjórnarformaður Sili-
cor Materials segir að það liggi fyr-
ir, eins og skýrt hefur komið fram
í fjölmiðlaumræðu að undanförnu,
að verulegt átak þarf til að sporna
gegn hlýnun jarðar af mannavöld-
um og þeim alvarlegu afleiðing-
um sem þær geta haft á lífsskilyrði
á jörðinni. „Með því að nýta orku
sólar í auknum mæli til raforku-
framleiðslu er hægt að vinna gegn
hlýnun jarðar af mannavöldum.
Fyrirhuguðu sólarkísilveri Silicor
er ætlað að gera sólarorku að um-
hverfisvænni og ódýrari valkosti
sem stuðlar að aukinni nýtingu
hennar,“ segir Terry Jester.
Vonbrigði
Terry Jester segir jafnframt að það
séu vonbrigði að Silicor Materi-
als þurfi nú að hægja á undirbún-
ingi verkefnisins og endurskoða út-
færslur en aðstæður bjóða ekki upp
á annað. „Ég er þakklát þeim fjöl-
mörgu aðilum sem sem við höf-
um unnið með og stutt hafa vel
við verkefnið og vonast til að við
getum unnið með þeim áfram. Ís-
land er frábær staðsetning fyrir
sólarkísilver þar sem til staðar er
vel menntað starfsfólk, meginhrá-
efni eru framleidd á landinu og
sterk áhersla á sjálfbærni og græn-
ar lausnir. Þá er fríverslunarsamn-
ingur við Kína einnig mjög jákvæð-
ur. Þrátt fyrir þessa töf erum við
enn bjartsýn á að af byggingu verk-
smiðju á Íslandi geti orðið.“
mm
Á sunnudaginn næsta verður Sjómanna-
dagurinn haldinn hátíðlegur víða um
land. Haldið verður upp á daginn á nokkr-
um stöðum á Vesturlandi og á sumum
stöðum verða hátíðahöld alla helgina.
Fólk er hvatt til þess að mæta á þá við-
burði sem í boði eru og taka þátt í hátíða-
höldunum.
Á morgun verður norðlæg átt 5-13 m/s,
skýjað með köflum eða bjartviðri og
stöku síðdegisskúrir, hiti 3-12 stig. Á föstu-
dag; hæg norðlæg eða breytileg átt, skýj-
að en úrkomulítið, áfram svalt í veðri. Um
helgina er útlit fyrir breytilega vindátt,
bjartviðri og hlýnandi veður en sumsstað-
ar þokuloft við ströndina. Á mánudag má
búast við norðlægri átt 3-5 m/s, léttskýjað
og hiti víða 10-16 stig.
Í síðustu viku var spurt
á vef Skessuhorns:
„Flokkar þú sorpið þitt?”
Vestlendingar virðast vera duglegir að
flokka, en 62% sögðust alltaf flokka í
tvær tunnur, þá sögðu 31% flokka í þrjár
eða fleiri tunnur. Aðeins 7% sögðust ekki
flokka sorpið sitt.
Í þessari viku er spurt:
Ætlar þú að heimsækja Costco?
Sjómenn víðsvegar um landshlutann
eru Vestlendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Tvö þyrluflug
á laugar-
dagskvöldið
VESTURLAND: TF-LÍF,
þyrla Landhelgisgæslunnar,
fór í tvö sjúkraflug á Vest-
urland sl. laugardagskvöld.
Beiðni um hið fyrra barst á
ellefta tímanum. Kona hafði
fallið af hestbaki við Gils-
fjörð. Að læknisráði var þyrl-
an fengin til að flytja kon-
una á sjúkrahús. Lent var
í fjörunni við Gilsfjörð og
voru aðstæður ákjósanlegar;
hægur vindur og háskýjað.
Skömmu eftir að þyrlan var
lent við Landspítalann barst
annað útkall. Flogið var til
móts við sjúkrabíl sem flutti
sjúkling frá Ólafsvík áleiðis
til Reykjavíkur. Lenti þyrlan
á Kaldármelum. Bæði þessi
útköll þyrlunnar gengu að
óskum. -mm
Lög um heima-
gistingu
einfölduð
LANDIÐ: Krafa um starfs-
leyfi heilbrigðisnefnda vegna
heimagistingar hefur verið
felld niður með breytingu á
lögum um hollustuhætti og
mengunarvarnir, sem sam-
þykkt var á Alþingi í síð-
ustu viku. Breytingin tek-
ur gildi 1. júlí næstkomandi.
„Breytingin lýtur eingöngu
að heimagistingu, sem er
gisting á lögheimili einstak-
lings eða einni annarri fast-
eign sem hann hefur pers-
ónuleg not af, t.d. sumarbú-
stað í hans eigu. Er hámarks
leigutími samtals 90 dagar.
Þeir sem vilja leigja út heim-
ili sitt í 90 daga eða skemur
þurfa því aðeins að skrá fast-
eignina hjá sýslumanninum
á höfuðborgarsvæðinu eða á
miðlægu vefsvæði sé það fyr-
ir hendi og greiða fyrir það
átta þúsund krónur. Greiða
þarf skatta af leigutekjunum
eins og áður,“ segir í tilkynn-
ingu frá umhverfisráðuneyt-
inu, sem hefur umsjón með
málaflokknum. -mm
Veitingastað
lokað
AKRANES: Veitingastaðn-
um Thai Santi við Stillholt
23 á Akranesi hefur verið
lokað, en þar hefur á und-
anförnum árum verið boð-
ið upp á austurlenskan mat.
Á miða í glugga segir: „Thai
Santi hefur hætt rekstri.“
-mm
Silicor Materials hefur ákveðið að
hægja á verkefnisþróunarvinnu
vegna fyrirhugaðrar sólarkísilverk-
smiðju á Grundartanga. Tímaáætlun
mun því breytast en vinna við verk-
smiðjuna gæti hafist á síðari hluta
næsta árs,“ segir Davíð Stefánsson
talsmaður Silicor Materials. Ástæður
þessarar ákvörðunar eru nokkrar, að
sögn Davíðs, en sú helsta eru tafir á
fjármögnun annars áfanga verkefnis-
ins. „Miklar kostnaðarhækkanir á Ís-
landi hafa einnig haft áhrif. Einvörð-
ungu hluti þeirrar fjármögnunar sem
búið var að tryggja, m.a. frá innlend-
um aðilum, hefur verið nýttur. Áfram
verður unnið að framgangi verkefn-
isins á Íslandi og aðrar leiðir kann-
aðir til hlítar.“
Umhverfisvæn
framleiðsla
Undanfarin misseri hefur Silicor
Materials undirbúið byggingu sólar-
kísilvers á Grundartanga. Til stóð í
upphafi að framkvæmdir gætu haf-
ist á síðasta ári en ýmsir samverkandi
þættir hafa tafið það. Sólarkísilverið á
að byggja á framleiðsluferli sem fyrir-
tækið hefur þróað síðan 2006 og hef-
ur einkaleyfi fyrir. Framleiða á sólar-
kísil með ódýrari og umhverfisvænni
aðferð en þekkst hefur sem jafnframt
útheimtir minni orku en hefðbundn-
ar aðferðir. Sólarkísill er notaður í
sólarhlöð til að virkja sólarorku sem
aftur stuðlar að sjálfbærri þróun.
Endurskoða áætlanir
„Með því að hægja á undirbúningi
verkefnisins er markmið Silicor Ma-
terials að skapa svigrúm til þess að
endurskipuleggja starfsemi fyrirtæk-
Tafir á fjármögnun fresta byggingu
sólarkísilverksmiðju á Grundartanga
Lóð Silicor Materials á Grundartanga mun því áfram verða ósnert um tíma. Úthlutað
land fyrirtækisins er markað með gulu.
Davíð Stefánsson talsmaður Silicor
Materials á Íslandi.
Terry Jester formaður stjórnar SM segir
það vonbrigði að hægja hafi þurft á
undirbúningi verkefnisins.
Eldur kom upp í sumarhúsi í landi
Dagverðarness í Skorradal um klukkan
19 síðastliðið fimmtudagskvöld. Allt
tiltækt lið Slökkviliðs Borgarbyggðar
var kallað á vettvang. Fyrstir á stað-
inn náðu slökkviliðsmenn frá Hvann-
eyri en skömmu síðar kom viðbótar-
mannskapur og búnaður úr Borgar-
nesi og Reykholti. Hluti slökkviliðs-
manna voru þá staddir í öðru útkalli
vegna umferðarslyss á Holtavörðu-
heiði. Húsið var mannlaust en alelda
þegar slökkvistarf hófst. Lögð var
áhersla á að verja gróður og nærliggj-
andi hús og meðal annars tókst að
koma í veg fyrir að eldurinn næði að
læsa sig í lítinn geymsluskúr á lóðinni
þar sem gaskútar voru. Húsið, sem
stóð á lóð númer 24 í landi Dagverð-
arness er niður undir Skorradalsvatni.
Það er gjörónýtt. Talið er víst að eld-
urinn hafi kviknað út frá rafkyntum
heitum potti. mm
Sumarhús varð eldi að bráð
Eldhafið var mikið. Ljósm. Pétur Davíðsson.
Svona leit þetta út þegar fyrsta fólk kom að húsinu. Ljósm. Tryggvi Valur
Sæmundsson.
Að afloknu slökkvistarfi var ljóst að
húsið er gjörónýtt. Ljósm. Einar Stein-
þór Traustason.