Skessuhorn - 07.06.2017, Síða 46
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 201746
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn
Hann byrjaði þrettán ára á sjó og
stendur nú á sextugu þannig að
árin á sjónum eru orðin 47 og sjó-
mennskunni er hvergi nærri lok-
ið. „Bátarnir í okkar eigu eru þrír
núna sem kemur nú bara út af því
að sala eins þeirra gekk til baka
og þá var búið að fjárfesta í öðr-
um,“ segir Jóhannes Jóhannesson,
eða Dúddi eins og hann er jafn-
an kallaður, þegar blaðamaður sest
niður með honum og konu hans
Björgu Guðlaugsdóttur, sem jafn-
an er kölluð Bjögga, í eldhúsinu á
heimili þeirra við Grundarbraut í
Ólafsvík. Saman standa þau hjónin
í útgerð. Pabbi Bjargar var á sínum
tíma stórútgerðarmaður í Ólafsvík
og rak útgerðarfyrirtækið Enni hf,
ásamt sonum sínum, sem gerði út
bátana Auðbjörgu og Auðbjörgu II.
Þau hjónin eiga þrjár uppkomnar
dætur, Dagný f. 1976, Geirlaug f.
1981 og Silja f. 1984. Einnig eign-
uðust þau hjónin son árið 1986 en
hann lést við fæðingu. Dæturnar
hafa allar eitthvað komið nálægt
sjávarútveginum, unnu allar í fisk-
vinnslu í mörg ár. Geirlaug var til
sjós í nokkur ár bæði á varðskipi og
á Norrænu og Silja reri með Dúdda
á Ingibjörgu SH. Dagur Ævarr,
sonur Dagnýjar, sem er elsta barna-
barn þeirra hjóna rær nú með afa
sínum. Þau hjónin eiga einnig þrjár
ömmu og afastelpur sem eflaust
munu koma að útgerðinni seinna
meir. Þær heita Sara Björg, Ólöf
Margrét og Jóhanna Rakel „Þetta
er í blóðinu,“ segir Bjögga sem sjálf
hefur verið iðin við að stunda sjóst-
angveiði, hefur keppt á mörgum
mótum og oft unnið til verðlauna.
Í landi heldur Dúddi sig hins veg-
ar við lax- og silungsveiðar og kann
vel við sig á bökkum ánna.
Stakk af inn í Hólm
með skólatöskuna
„Ég byrjaði á Sæborgu á snurvoð
þrettán ára með pabba mínum Jóa
á Nesi og síðan hef ég verið á sjó
eða við beitningu og aldrei unnið
klukktíma í tímavinnu í landi. Ég
hætti í skóla árið sem ég fermdist,
kláraði ekki einu sinni unglinga-
prófið og réði mig á bát með mági
mínum, skelbát sem reri frá Stykk-
ishólmi. Ég stakk bara af til að fara
á þann bát, tók skólatöskuna eld-
snemma um morgunin en í stað
þess að fara í skólann tók ég rút-
una inn í Hólm og mamma vissi
ekki betur en að ég hefði bara farið
í skólann. Svo var farið að leita að
mér um kvöldið en elsta systir mín
hafði nú grun um að ég hefði farið
þarna inn eftir. Báturinn hét Ólaf-
ur og skipstjórinn var Úlfar Krist-
jánsson mágur minn sem síðar fórst
með Bervíkinni. Ég var með honum
í nokkur ár á dragnót og línu. Við
vorum hjá útgerð hérna sem Hörð-
ur Sigurvinsson átti. Hann átti fjóra
báta hér sá karl, það voru Ólaf-
ur, Bervík, Sigurvin og Sæhrímnir.
Okkur var svo bara hent á milli báta
eins og hentaði hverju sinni. Við
Úlfar fylgdumst að á sjónum þar til
hann fékk Bervíkina, sem hann síð-
an fórst með árið 1985.“
Arfurinn
Dúddi fór svo yfir á Jökul SH sem
var í eigu Ennis hf. Skipstjóri á
Jökli var Steinþór mágur hans og
þar gerðist Dúddi stýrimaður með
undanþágu en þegar hann gerð-
ist stýrimaður á Fróða þurfti hann
að fara í pungaprófið og tók það.
„Ég tók það hér í Ólafsvík. Þetta
voru einhverjir fjórir dagar sem
það tók.“ Á Fróða var hann stýri-
maður í eitt ár en tók þá bát sjálf-
ur sem skipstjóri. „Sá bátur var
75 tonn og hét Greipur en ég var
með hann í tvö ár héðan frá Ólafs-
vík. Svo tók ég við 105 tonna báti
sem hét Jón Halldórsson. Eftir það
kaupum við Gulltoppinn sem var
20 tonna bátur. Það gekk hálf brös-
uglega á svona litlum báti á dragnót
og í einni vestanáttinni gekk mjög
illa að draga dragnótina. Við vor-
um tveir á svona tuttugu tonna bát-
um og næturnar voru einfaldlega
of þungar ef eitthvað var að veðri.
Svo gafst ég bara upp á þessu og
þegar ég kom í land stóð tengda-
pabbi á bryggjunni og spurði hvers
vegna ég væri kominn í landi. Ég
sagði honum, sem var, að nót-
in væri alltof þung fyrir bátinn og
þetta þýddi ekkert. Þá segist hann
eiga nót inni í skúr og við skyldum
kíkja á hana um kvöldið. Við fór-
um svo í skúrinn og þar uppi á lofti
var splunkuný nót. Hún var nú ekki
stærri en svo að við gátum skelt
henni í skottið á Citroninum hans
og þannig fórum við með hana nið-
ur á bryggju og um borð fór hún.
Svo var ég með þessa nót í nokkra
daga og gekk vel. Einn daginn kom
svo Óttar mágur minn á bryggjuna,
horfði aftur í skut á bátnum og spyr
mig hver eigi þessa nót. Ég sagð-
ist eiga hana. „Nei, þetta er nótin
mín,“ sagði hann þá og snaraðist
til pabba síns og spurði hvort hann
væri búinn að láta mig fá nótina.
Karlinn sagðist hafa haldið að þetta
væri ónýtt og ætlað að henda þessu
því þetta hefði verið búið að liggja
svo lengi í skúrnum en ég hefði vilj-
að hirða þetta. Eftir þetta var þessi
nót kölluð „Arfurinn.“ Ég var sagð-
ur hafa tekið út arfinn þarna.“
Netin redduðu vorinu
Dúddi segir tengdapabba sinn allt-
af hafa fylgst vel með hjá sér og
hafa verið tilbúinn að hjálpa. „Einu
sinni vantaði mig skvertóg sem
kölluð voru fyrir dragnótina og fór
til hans upp í skúr þar sem hann
var oftast. „Þið róið dag eftir dag
og landið aldrei neinu,“ sagði hann
þá við mig og ég svaraði á móti að
þetta gengi ekki nógu vel og mig
vantaði skvertóg. Þetta var um
mánaðamót apríl og maí og hann
spyr mig strax af hverju við færum
ekki á net. Ég svaraði því til að ég
ætti engin felld net og hefði eng-
an búnað á netaveiðar. „Ég er með
fullan skúr af þessu,“ sagði hann
þá. Ég fór svo með fullan vörubíl
af netum, færum baujum, steinum,
kúlum og drekum niður á bryggju
þar sem strákarnir biðu bara um
borð eftir þessum skvertógum. Ég
sagði þeim að taka þetta um borð
og steina niður, við værum að fara
á net. Karlinn ýtti mér út í þetta og
þessi netaveiði reddaði vorinu.“
Lentu í mokfiskiríi
við Malarrif
„Árið 1979 keyptum við Bjögga 4-5
tonna trillu af Jónu frænku minni
í Skjaldartröð en Reynir heitinn
maðurinn hennar og Örn Hjör-
leifsson tengdasonur þeirra höfðu
látið smíða tvær svona trillur. Þetta
var hörkugóð trilla og við áttum
hana í ein tvö ár. Þetta var auðvitað
allt upp á einfaldasta máta og nán-
ast ekkert í þessu nema kompás og
einhver bílatalstöð, enginn gúmmí-
bátur eða neitt. Einu sinni í norð-
austan brælu hérna fórum við suð-
ur fyrir Nesið að Malarrifi og það
var strákgutti með mér. Við lentum
í mokfiskiríi og fylltum nánast trill-
una. Þá tók við að komast í land og
þegar við komum norður fyrir var
snarvitlaust veður svo ég talaði við
einn sem var nálægt okkur og bað
hann að hafa samband við Arnar-
stapa og athuga hvort þar væri hægt
að taka af okkur fiskinn en þeir gátu
ekki tekið við þessu það var svodd-
an mokfiskirí hjá öllum. Við urð-
um því að berjast inn með norðan-
verðu Nesinu í þessu snarvitlausa
veðri með bátinn kjaftfullan. Það
tók fleiri klukkutíma að komast inn
og þá vorum við svo seint á ferðinni
að við fengum ekki löndun. Þegar
þetta var þá var tengdapabbi nýbú-
inn að kaupa sér Citroen bíl sem
hann var ofboðslega ánægður með
og hann hafði farið á nýjum bílnum
hér út með til að leita að okkur. Fór
að Bervíkinni og þræddi alla þessa
staði því hann hafði grun um að við
hefðum farið suður fyrir. Fyrsta sem
ég sé þegar ég kem upp á bryggju
eru karlinn og Bjögga, nýi bíllinn í
gangi og hljóðkútslaus. Ég spurði
hann hvað hefði gerst, nýi, fíni bíll-
inn orðinn hjóðkútslaus. Karlinn
brást hinn versti við og taldi það
greinilega mér að kenna. „Hvern
djöfulan varstu að þvælast út fíflið
þitt í svona vondu veðri og þú ert
örugglega búinn að slá úr bátnum
því mér sýnist hann vera að sökkva
hérna í höfninni.“ Ég sagði að það
væri ekki, báturinn væri bara full-
ur af fiski og þess vegna svona sig-
inn. Þá spurði hann hvers vegna ég
færi ekki að landa og ég sagði hon-
um að búið væri að loka. „Ég redda
því,“ sagði hann og hljóðið orðið
allt annað í honum. Síðan fór hann
upp í frystihús, kallaði út liðið til að
landa. Kom svo á bryggjunna aft-
ur og kallaði á mig. „Drífið ykkur
að þessu og komið ykkur út aftur
meðan fiskurinn er.“ Svona breytt-
ist hljóðið í honum og nú var allt í
lagi að róa í vitlausu veðri fyrst nóg
var af fiski.“
Karlinn hótaði að taka
allt sitt úr sparisjóðnum
„Þessi trilla kostaði hálfa milljón
þegar við keyptum hana og það var
talsvert mikill peningur sem við átt-
um ekki og því ætluðum við að taka
lán,“ segir Bjögga og heldur áfram
„Við fórum því niður í sparisjóð og
Stakk af á sjóinn í stað þess að mæta í skólann
Rætt við hjónin Jóhannes Jóhannesson og Björgu Guðlaugsdóttur í Ólafsvík
Dúddi á strandveiðunum. Ljósm. af.
Fjölskyldan. Jóhannes og Björg með dætrum sínum þremur.
Björg við löndun. Ljósm. af.