Skessuhorn - 07.06.2017, Blaðsíða 56
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 201756
Jón Guðmundsson garðyrkjumað-
ur fékk á síðasta ári leigt land undir
starfsemi gróðrarstöðvar við Mið-
vogslæk, skammt utan Akraness.
Hann hefur fram til þessa rækt-
að plöntur, grænmeti og ávexti á
ýmsum stöðum, m.a. í garðinum
fyrir utan heimili sitt við Vestur-
götu. Þar hefur hann ræktað garð-
inn sinn undanfarin 17 ár, eða allt
frá því hann og Katrín Snjólaugs-
dóttir kona hans keyptu húsið árið
2000. Hefur hann til að mynda
náð eftirtektarverðum árangri í
eplarækt og er að prófa sig áfram
með bæði plómu-, kirsuberja- og
peruræktun. En um þessar mund-
ir er allt að verða klárt fyrir rækt-
un við Miðvogslæk. Jón hyggst sá
græðlingunum og planta útsæðinu
á næstu dögum og fær fyrstu upp-
skeruna í sumar og haust. Skessu-
horn hitti Jón garðyrkjumann að
máli og ræddi við hann um garð-
yrkjuna og síðan um pönkið, en
Jón hefur verið pönkari frá því
hann var unglingur. Kemur á dag-
inn að garðyrkjan og pönkið eru
kannski ekki ýkja frábrugðin þegar
öllu er á botninn hvolft.
Viðbót við það
sem fyrir er
„Starfsemin á nýja staðnum er út-
víkkun á ræktuninni sem ég hef
hingað til haft í garðinum heima
við. Þar verður ræktað grænmeti
og plöntur í sölu, bæði ávaxtatré
og ýmislegt fleira í meira magni en
áður, til að hafa aðeins meiri tekjur
af djobbinu,“ segir Jón en bætir
því við að þar hyggist hann einn-
ig halda áfram að prófa sig áfram
með hvers kyns ávaxtatré og ým-
islegt fleira. „Þarna verður ræktað
bæði þetta venjulega og óvenju-
lega. Þarna verða kartöflur og
hvítkál, þetta klassíska sem mað-
ur veit að lifir og fólk kaupir, en
líka eplatré til dæmis sem maður
veit ekki hvernig uppskeru mað-
ur fær af,“ segir hann. „Ég er ekki
svo mikill gamblari að ég gambli
með allt saman. Maður verður að
gera það sem maður þekkir og veit
að virkar og gefur nokkuð öruggar
tekjur. Maður getur ekki sett allt
í einhvern fíflagang og tilrauna-
starfsemi,“ segir hann og brosir.
Þær tilraunir sem Jón hefur gert
heima við hingað til hafa þó gefið
ágæta raun. Hann er orðinn nokk-
uð þekktur fyrir eplarækt sína sem
hefur gengið vel. „Hún hefur virk-
að mjög vel hérna heima. En síðan
er spurning hvað er hægt að gera
annars staðar og með öðrum að-
ferðum,“ segir hann. „Uppskeran
af eplum hefur í raun alltaf verið
nokkuð góð og í góðu árferði hef-
ur náðst mjög góður þroski. En öll
meðalár hafa flest tré gefið mjög
viðunandi uppskeru, bæði hvað
varðar gæði og magn.“
Gott rætkarland
Landið sem Jón leigir er um þrír
hektarar að stærð, en hann mun
þó ekki geta nýtt það allt und-
ir jarðrækt fyrst um sinn. Nokk-
ur stór hluti þess er í órækt. „Ég
þorði nú ekki annað en að leigja
eins stórt og ég hafði kost á. Ef
ég verð búinn að nýta allt landið
sem hægt er að rækta á núna eft-
ir kannski fimm ár þá er auðvelt
að stækka með því að vinna það
sem nú er í órækt. Það væri alveg
ómögulegt að þurfa að finna land
einhvers staðar fjarri þessu til að
stækka við ræktunina, alveg von-
laust,“ segir hann.
Jón segir ræktarlandið gott,
þar sé nokkuð skjólsælt en mestu
skipti hve góður jarðvegurinn er.
„Það er alveg feiknagóður jarð-
vegur hérna, alveg hreint ótrúlega
góður. Hann er frjósamur, nær-
ingarríkur og mikið líf í honum,
hér er allt iðandi af maðki,“ seg-
ir hann og fræðir blaðamann um
að mikill maðkur gefi vísbendingu
um næringarríkan jarðveg sem
sé góður til ræktunar. „Hér hafa
hestar fengið að vera á beit síðustu
15 árin og auðvitað skilið eftir sig
úrgang, sem er auðvitað mjög gott
fyrir moldina,“ segir hann.
Moldarfjall blasir við þar sem
eitt sinn var moldarvinnsla fyrir
Akurnesinga. Það svæði var skil-
ið eftir sem hálfgert fen en upp á
síðkastið hefur verið verið flutt-
ur þangað jarðvegur úr grunn-
um sem nýlega hafa verið teknir á
Akranesi. „Þetta er mýrarjarðveg-
ur. Þegar hann fær að þorna, anda
aðeins og taka sig smá þá verður
hann mjög góður til ræktunar. Það
á bara eftir að smyrja úr honum
fyrir þetta stykki til að jafna hæð-
ina svo ekki safnist þar vatn. Þá
verður komið prýðisgott ræktar-
land,“ segir Jón.
Tvö gróðurhús
Tvö stykki sem þegar eru tilbú-
in til ræktunar og á planinu sem
Jón hefur látið útbúa ætlar hann
að reisa tvö gróðurhús. „Stefnan
er að vera hér með tvö gróðurhús,
sem verða nálægt því 90 fermetrar
hvort. Það telst bara nokkuð stórt.
Við hliðina á þeim verður starfs-
mannaaðstaða með kaffistofu og
salernum,“ segir hann.
Jón lítur yfir ræktarsvæðið og
við göngum af stað í átt að Akra-
fjallinu. Garðyrkjumaðurinn hefur
varið þeim tíma sem hann getur á
svæðinu undanfarnar vikur. „Hér
hef ég verið að vinna milli klukk-
an 10 og 12 á kvöldin undanfarið,
þegar ég kem heim úr verktaka-
vinnunni sem gefur manni tekj-
urnar. Maður kíkir klukkutíma og
klukkutíma á dag til að reyna að
mjaka þessu áfram,“ segir hann.
Hefðbundin
ræktun og tilraunir
Jarðvinnu er nýlega lokið á stykk-
inu sem fyrst er komið að. Þar
hyggst Jón setja niður rófur og
fleira. „Ég ætla að koma græn-
metinu hér niður í næstu viku.
Það verður allt að vera komið nið-
ur fyrstu tíu dagana í júní eða svo
til að uppskeran fáist tímanlega í
haust,“ sagði Jón þegar rætt var
við hann í síðustu viku.
Næst er gengið framhjá mið-
reitnum. Þar ætlar Jón að rækta
grænmeti annars vegar og tré í
sölu hins vegar. „Hér set ég niður
trjáplöntur í helminginn og græn-
meti í helminginn. Það geri ég til
að geta róterað á milli. Næst set
ég trén þar sem grænmetið var og
öfugt. Það er gert til að halda jarð-
veginum heilbrigðum, ef lengi er
ræktað til dæmis kál á sama stað þá
geta komið upp sjúkdómar. Þess
vegna er tegundunum víxlað,“
segir hann. „Þetta er eiginlega
aðal stykkið. Hér er gott skjólbelti
og möguleikarnir garga á mann.“
Eplatrén verða síðan á þriðja
stykkinu ræktuð með svipuðum
hætti og í garðinum á Vesturgöt-
unni; nokkrar tegundir af epla-
trjám en einnig afgirtur reitur fyr-
ir tilraunir. „Hérna sé ég fyrir mér
smá tilraunastarfsemi með blöndu
af ávaxtatrjám, berjarunnum og
grænmeti. Þetta verður tilrauna-
stykkið. Hinir staðirnir eiga að
gefa nokkuð stöðugar tekjur, sem
ég get síðan eytt hér í tilrauna-
starfsemi,“ segir hann og hlær við.
„En ég vonast auðvitað til að fá
pening út úr tilraunaræktuninni,
en það er bara meira gambúl. Ég
veit að hvítkál, kartöflur og rófur
seljast alltaf, en það er meiri óvissa
sem fylgir hinu,“ segir hann.
Hluti verður lífrænn
Jón ætlar að hafa hluta ræktun-
arinnar lífrænan og hefur samið
við Karen Jónsdóttur, sem oftast
er kölluð Kaja, um sölu á lífræn-
um afurðum frá stöðinni. Hægt
verður að fá lífrænt ræktaða ávexti
og grænmeti frá Jóni í verslun-
um Matarbúrs Kaju á Akranesi
og í Reykjavík. „Ég tek ákveðna
reiti frá fyrir lífræna ræktun strax
í upphafi en hitt eftir hægindum.
Ég verð að taka þetta í áföngum
yfir í lífrænt, óræktin er svo mik-
il hérna,“ segir hann en kveðst
stefna að aukinni lífrænni rækt-
un eftir fremsta megni. „Því meira
lífrænt, því betra og helst allt,“
segir hann. „Ég treysti mér ekki
alveg í að fara með megnið í líf-
rænt svona kviss bæng, en það er
allavega stefnan og verður hæg-
ara um vik að gera það þegar búið
verður að vinna á óræktinni,“ seg-
ir Jón.
Vökvar og bíður
„Þegar allt er komið í gagnið er
meiningin sú að hér verði all-
nokkur starfsemi, mest auðvi-
tað á sumrin. Ég veit ekki hvort
einhvern tímann verður heils-
árs starfsemi, að svo stöddu sé ég
það ekki fyrir mér. Ég ætla þó að
hafa yl í öðru gróðurhúsinu svo að
jarðvegurinn haldist frostlaus og
hægt verði að vera með einhverja
ræktun. En hér er ekki meining-
in að vera með einhverja tómata-
verksmiðju og heilsárs starfsemi
er ekki í pípunum ennþá, kannski
aldrei,“ segir hann.
„Upp á frekari ræktun þarf
maður fyrst að sjá hvernig gengur
að selja, hvað kemur í kassann og
hvað maður kemst yfir. Þetta snýst
allt um tíma og peninga,“ segir
Jón en kveðst bjartsýnn á upphaf-
ið. „Þetta lítur vel út og ræktunar-
svæðið er gott. Ég set niður í þess-
ari viku og næstu, svona 90 pró-
sent af öllum gróðrinum. Síðan er
bara að vökva og bíða,“ segir hann
og brosir. Hann á von á fyrstu sal-
atblöðunum seinni partinn í júní
í fyrsta lagi, en aðal uppskeran
verður síðsumars og í haust.
Jón Guðmundsson, garðyrkjumaður og pönkari, hefur ræktun við Miðvogslæk
Bæði hefðbundin grænmetisræktun og tilraunastarfsemi
Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur og pönkari.
Eplatrén við vegginn í garðinum á Vesturgötunni. Með því að láta trén vaxa á
ská hægist á vexti plantnanna og þær bera oftar ávöxt, auk þess sem plássið í
garðinum nýtist betur.
Græðlingar í gróðurhúsinu sem bíða þess að verða settir niður á nýja ræktunar-
staðnum við Miðvogslæk, rétt utan Akraness.