Skessuhorn - 05.07.2017, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 5. júLí 201722
„Það eru komnir laxar á land og
í Neðri -Fossi er bolta lax,“ seg-
ir Trausti Bjarnason á Á á Skarðs-
strönd, á Facebook síðu sinni. Þar
er Trausti að skrifa um byrjunina í
Krossá en þar hafa fleiri veiðimenn
orðið varir við stóra fiska.
„Þetta er allt að komast á fley-
giferð í Hvolsá og Staðarhólsá en
bleikjan er byrjuð að veiðast og la-
xinn er að mæta. Veiðimenn sáu
töluvert af honum um helgina,“
sagði Þórarinn Birgir Þórarins-
son formaður veiðifélags Hvolsár
og Staðarhólsár í Dölum. Áin var
opnuð um helgina líkt og Miðá
einnig. Á báðum stöðum veiddust
fiskar.
Veiðimenn voru að berja
Búðardalsá á Skarðsströnd um hel-
gina en veiðin gekk rólega.
gb
Síðastliðinn sunnudag voru liðin tvö
ár síðan Hraundís Guðmundsdóttir
ilmolíufræðingur hóf framleiðslu á
ilmkjarnaolíum á Rauðsgili í Borg-
arfirði undir vörumerkinu Hraun-
dís. Það var því við hæfi að ein-
mitt þann sama dag bærist Hraun-
dísi nýtt 450 lítra eimingartæki til
framleiðslunnar. Nýja tækið leysir
af hólmi eldra tæki, sem var að sögn
Hraundísar orðið allt of lítið. „Nú
er hugmyndin að auka við fram-
leiðsluna og sérpantaði ég því nýtt
eimingartæki. Guðbjartur Þór Sæv-
arsson plötusmiður smíðaði tækið
fyrir mig og ég fékk það á afmælis-
degi fyrirtækisins, sem var skemmti-
leg tilviljun. Nýja tækið er um það
bil fjórfalt stærra en það gamla og
verð ég því miklu fljótari að fram-
leiða upp í pantanir,“ segir Hraun-
dís í samtali við Skessuhorn.
Hraundís segir fyrirtækið hafa
vaxið og dafnað nánast frá fyrsta
degi. „Framleiðslan hefur alltaf ver-
ið að aukast, jafnt og þétt frá því ég
byrjaði. Ég hef verið að selja mikið
af olíum úr sitkagreni til Bandaríkj-
anna. Fimm lítrar fóru fyrir jól og
einn og hálfur lítri farinn það sem
af er þessu ári. Það eru stór fyrirtæki
í Bandaríkjunum sem kaupa fram-
leiðsluna af mér í lítratali, tappa í
fimm millilítar flöskur og selja síð-
an,“ segir Hraundís.
Hún segir tímafrekt að framleiða
olíuna og misjafnt hversu mikið fæst
af olíu eftir tegundum. „Stundum
fást bara tíu millilítrar af olíu úr
einni eimingu með gamla tækinu
en stundum allt að 400 millilítrar,“
segir hún. Eldra tækið var þó meira
en eitt hundrað lítrar að rúmtaki.
„Það þarf mikið af plöntum til að
framleiða olíuna, en með nýja tæk-
inu mun ég fá fjórfalt meira í hvert
skipti sem er mjög jákvætt,“ segir
Hraundís.
20 þúsund lítrar
Á þeim tveimur árum sem liðin eru
frá fyrstu eimingunni hefur Hraun-
dís eimað um 20 þúsund lítra af ilm-
kjarnaolíum, aðallega úr skógar-
trjám sem hún kveðst halda sérstak-
lega upp á. Tegundirnar eru sitka-
greni, svartgreni, blágreni, rauð-
greni, douglasgreni, lindifura, sta-
fafura, bergfura, einir, fjallaþinur,
síberíuþinur, balsamþinur, hvítþin-
ur og birki. „Það er svolítið merki-
legt að þó við búum í nánast skóg-
lausu landi, eins og ísland er skil-
greint, þá leynist ýmislegt í skóg-
unum okkar þegar maður fer að
leita,“ segir hún. „Ég er menntað-
ur skógfræðingur og það nýtist mér
vel, því ég þekki tegundirnar. Síð-
an eru margir mjög duglegir að láta
mig vita ef þeir eru að grisja, hringja
í mig og bjóða mér að hirða það sem
fellur til,“ segir hún. Að öðrum kosti
kveðst hún sækja mest af trjánum til
skógarbænda, í skóginn í nágrenni
Rauðsgils og upp í Skorradal.
Ófeimin við tilraunir
„Ég kvista trén og nýti neðstu grein-
arnar í framleiðsluna, sem og það
sem fellur til við grisjun. Ég er búin
að taka þónokkuð mikið til í skógin-
um hjá nágrönnum mínum sem eru
mér mjög þakklátir fyrir,“ segir hún
og hlær við. Síðan er trjánum komið
fyrir í eimingartækinu og efnið eim-
að með 100 gráðu heitri gufu sem
leysir olíuna úr plöntunum. Gufan
er síðan kæld og við það verður hún
að vatni sem safnað er í flösku með
olíunni. Olían flýtur ofan á og þarf
þá aðeins að tappa vatninu af.
Hraundís kveðst hafa verið ófeim-
in að prófa sig áfram með að búa til
olíu úr hinum ýmsu plöntum, sam-
hliða þeirri framleiðslu sem fest hef-
ur sig í sessi. „Ég hef gert tilraunir
með ýmsar blómplöntur og í vetur
gerði ég einnig tilraunir með þang
og þara með mjög misjöfnum ár-
angri. Ég fékk ekkert út úr þaranum
eða þanginu,“ segir Hraundís létt í
bragði. „En ég ætla að halda áfram
í tilraununum og mun nýta gamla
tækið í þær. Það verður að prófa allt
sem manni dettur í hug,“ segir hún.
Til margra hluta nyt-
samlegar
Ilmkjarnaolíur eru mikið notaðar
sem híbýlailmur en Hraundís seg-
ir þær til ýmissa annarra hluta nyt-
samlegar. „Ég er til dæmis byrjuð að
framleiða vörur eins og verkjaolíur,
sem eru rosa góðar við vöðvabólgu,
sjampó úr náttúrulegum efnum með
íslenskum skógarilmi og baðsalt úr
íslensku salti, þara og ilmolíum. All-
ar ilmkjarnaolíur hafa mismunandi
virkni eftir virkni efnanna í hverri
plöntutegund. Plönturnar framleiða
ilmkjarnaolíur til varnar skordýr-
um. Ilmkjarnaolíur úr skógartrjám
eru því einstaklega góðar sem vörn
gegn skordýrum, þær koma í veg
fyrir að maður verði bitinn og slá
einnig á kláða af bitinu. Ég nota þær
mikið á vorin þegar fuglaflóin er á
ferð til að koma í veg fyrir að verða
bitin,“ segir hún. „En það þarf að-
eins að kynna ilmolíurnar betur fyr-
ir íslendingum. Það er eitt af mín-
um markmiðum; að kenna fólki að
nota olíur með mismunandi virkni,
bakteríudrepandi, sveppadrepandi
eða bólgueyðandi olíur. En annars
bíð ég bara spennt eftir að byrja að
framleiða með nýja tækinu. Helgin
fer í að koma því almennilega fyr-
ir, tengja og síðan er bara að setja í
gang. Það verður spennandi, ég er
búin að bíða lengi eftir þessu,“ segir
Hraundís að endingu.
Áhugasömum er bent á að hægt er
að fræðast nánar um ilmkjarnaolíur
Hraundísar á www.hraundis.is.
kgk
Hópur stórhvala hélt sig á
mánudagsmorgun á sundunum
nokkrar mílur vestan við Akra-
nes. Hægt var með góðum sjón-
auka eða aðdráttarlinsu úr landi
að fylgjast með ferðum nokkurra
hvala. Sáust ýmist svartir skrokk-
ar þeirra eða hvítir belgir. Ekki er
hægt að greina á myndum hvaða
tegund hvala var þarna á ferð, en
líklegt að um hafi verið að ræða
langreyðar, hnúfubaka eða jaf-
vel konung úthafanna; steypi-
reyði. Hvalirnir fylgdu að lík-
indum æti, makríl eða síld. Ekki
er algengt að stórhveli haldi sig
á þessum slóðum, en þó voru í
fyrrasumar þrír stórhvalir á ferð
skammt frá hafnargarðinum á
Akranesi.
mm/ Ljósm. gó
Alexander Óðinn Fjölnisson með fallegar bleikjur úr ósnum í Hvolsá og Staðar-
hólsá um helgina. Ljósm. gb
Boltalax í Krossá
á Skarðsstönd
Stórhveli vestan við Akranes
Stefnir á að fjórfalda framleiðsluna
Nýja eimingartækið komið inn við hlið þess gamla, sem framvegis verður nýtt undir tilraunastarfsemi. Ljósm. Hraundís.
Hraundís Guðmundsdóttir við ilmkjarnaolíugerð ásamt dyggum aðstoðarkonum.
Ljósm. úr safni.