Skessuhorn - 02.08.2017, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 2. áGúst 20172
Senn fer í hönd sjálf verslunarmannahelg-
in, mesta ferðahelgi ársins. Landsmenn
hafa löngum sótt hátíðir vítt og breytt um
landið þessa helgi, farið í sumarbústað
eða lagt upp í ferðalag. Búast má við mik-
illi umferð og ástæða til að minna veg-
farendur á að fara að öllu með gát. Fjöl-
margir munu gera sér dagamun og skála
í tilefni helgarinnar. Göngum hægt um
gleðinnar dyr og ökum ekki undir áhrif-
um áfengis.
Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og
stöku skúrir næstu þrjá daga, eða til og
með föstudegi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á
suðvesturhorni landsins. Á sunnudag og
mánudag, frídag verslunarmanna, er útlit
fyrir áframhaldandi hægviðri með stöku
skúrum. Hitafar svipað.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Ætlarðu í útilegu um verslunarmanna-
helgina?“ „Nei“ sagði yfirgnæfandi meiri-
hluti, eða 78%. „Já“ sögðu 15% og 7%
voru óákveðnir. Það virðist því sem fæstir
ætli að liggja í tjaldi á helginni, þó alltaf sé
nokkur hluti sem kýs að verja verslunar-
mannahelginni þannig.
Í næstu viku er spurt:
Hvað skiptirðu oft um
rúmföt á rúminu þínu?
Guðjón Dalkvist Gunnarsson, eða Dalli
eins og hann er kallaður, var í tengslum
við Reykhóladaga útnefndur Íbúi ársins
í Reykhólahreppi. Dalli er Vestlendingur
vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Frí í næstu
viku
SKESSUHORN: Athygli
lesenda er vakin á því að
starfsfólk skessuhorns fer
nú í viku sumarfrí og kem-
ur því ekki út blað mið-
vikudaginn 9. ágúst, en
þann dag kemur starfsfólk
til baka úr fríinu og und-
irbýr næsta blað sem kem-
ur út miðvikudaginn 16.
ágúst.
-mm
Hundar
í bílum
LANDIÐ: Matvælastofn-
un vill benda hundaeigend-
um á að skilja hunda aldrei
eftir í bílum þegar heitt er í
veðri. samkvæmt 21. grein
reglugerðar um aðbún-
að gæludýra má ekki skilja
hund eftir í eða á flutn-
ingstæki án eftirlits ef hita-
stig getur farið yfir +25°C
eða undir -5°C, og aldrei
má skilja hund einan eftir í
flutningstæki ef hann sýnir
merki um vanlíðan. Hita-
stig í bílum sem sólin skín
á getur mjög fljótt farið
upp fyrir 25°C, jafnvel þótt
gluggar séu opnir. Hundar
þola hita afar illa og geta
fengið hitaslag eða drepist
á skömmum tíma. Gætum
vel að dýrunum okkar svo
allir geti notið góðviðris-
ins,“ segir í tilkynningu frá
Mast.
-mm
Ólafsdalshátíð
framundan
DALABYGGÐ: Hin ár-
lega Ólafsdalshátíð verður
haldin í Ólafsdal í Gilsfirði
milli kl. 11:00 og 18:00. Að
venju verður fjölbreytt dag-
skrá ásamt markaði með af-
urðir og handverk úr hér-
aði.
-kgk
Margir fara
til laugar
BORGARBYGGÐ: Mikil
aðsókn hefur verið að sund-
laugum Borgarbyggðar það
sem af er sumri. á hverjum
degi sækja milli 500 og 600
manns laugina í Borgar-
nesi að því er fram kemur á
heimasíðu Borgarbyggðar.
sundlaugina á Varmalandi
sækja milli 200 og 300 gest-
ir á degi hverjum yfir sum-
artímann, en nýverið voru
gerðar á henni gagngerar
endurbætur. Þá hafa um 50
manns á dag farið í sund á
Kleppjárnsreykjum í sum-
ar. -kgk
á mánudaginn síðastliðinn voru
skilti sem unnin voru af listamann-
inum Baska afhjúpuð á gönguleið-
inni á útivistarsvæðinu við Elínar-
höfða, frá þar sem áður stóð bær-
inn Hausthús og að Miðvogi. skilt-
in eru fimm talsins og standa öll
þar sem áður voru bæir sem nú
eru horfnir. á skiltunum er stutt-
ur fróðleikur um hvert og eitt hús
sem og fallegt málverk eftir Baska
af húsunum.
Við afhjúpunina á mánudag-
inn var haldin stutt ganga á milli
skiltanna þar sem Baski rak sögu
húsanna og fólksins sem í þeim
bjó. sagði Baski m.a. frá einum
elsta vegi landsins sem liggur með-
fram Elínarhöfða, vélvæðingu ís-
lensks landbúnaðar sem hófst á
bænum Hausthúsi, fyrstu sund-
kennslu Akraness við Miðvog og
reimleika á bænum Högnatóft.
bþb
Ný skilti með málverkum
eftir Baska afhjúpuð
Við afhjúpun
skiltanna. Hér stand þau
Rakel Óskarsdóttir bæjar-
fulltrúi, Ólafur Adolfsson
bæjarfulltrúi, Sævar Freyr
Þráinsson bæjarstjóri,
Baski myndlistarmaður
og Steinar Adolfsson,
sviðstjóri stjórnsýslu- og
fjármálasviðs, við eitt
af skiltunum. Á þessum
stað stóð áður Högnatóft.
Sagan segir að ábúand-
inn þar að hafa verið
myrtur og síðan hafi verið
reimt á svæðinu.
Eitt af málverkum Baska sem prýða skiltin. Hér má sjá bæinn Hausthús.
tilboð voru opnuð í síðustu viku
í endurbyggingu og klæðningu á
3,8 km vegarkafla neðst í Lundar-
reykjadal í Borgarfirði, þann hluta
Uxahryggjavegar sem liggur frá
Borgarfjarðarbraut og að Gröf.
Borgarverk átti lægsta boð í verk-
ið og hljóðaði það upp á 113,6
milljónir króna sem er um 96% af
kostnaðaráætlun Vegagerðarinn-
ar sem hljóðar upp á 118,5 millj-
ónir króna. Fimm fyrirtæki buðu
í verkið og vekur athygli að hæsta
boð var upp á 239 milljónir króna
og kom frá Háfelli ehf í Reykja-
vík, eða ríflega tvöfalt hærra boð
en áætlaður verkkostnaður Vega-
gerðarinnar. Verkinu skal sam-
kvæmt útboðsgögnum vera lokið
fyrir 1. ágúst 2018. mm
Borgarverk með lægsta boð í Uxahryggjaveg
Hér má sjá hluta þess vegar sem nú verður endurnýjaður, en þar hafa fjölmörg
slys og óhöpp orðið á liðnum árum.
Íbúar á sæbóli í Grundarfirði voru
orðnir langþreyttir á holóttu mal-
bikinu á götunni en ástandið var
orðið frekar slæmt. Það var því
kærkominn malbiksilmur sem ang-
aði um sæbólið mánudaginn 31.
júlí síðastliðinn þegar að fram-
kvæmdir voru í fullum gangi. Það
er fyrirtækið Kraftfag ehf. sem sér
um framkvæmdirnar en þeir eru að
malbika í snæfellsbæ og Grundar-
firði þessa dagana. tfk
Malbikað í Grundarfirði