Skessuhorn


Skessuhorn - 02.08.2017, Page 5

Skessuhorn - 02.08.2017, Page 5
Næstu blöð af Skessuhorni Vegna sumarleyfa kemur ekki út blað 9. ágúst, en þann dag kemur starfsfólk úr fríi Næsta Skessuhorn kemur út 16. ágúst Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 7 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi á Akranesi Bæjarráð Akraness í umboði bæjarstjórnar samþykkti 27. júlí sl. að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Dalbrautar - Þjóðbrautar skv. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Breytingin er gerð til samræmis við tillögu að breytingu deiliskipu- lags Dalbrautarreits, sem auglýst var 20. júlí 2017 en sú auglýsing rennur út 7. september 2017. Rétt er að taka fram að í þeirri auglýsingu misritaðist að heimiluð yrði félagsstarfsemi á jarðhæð nýbyggingar að Dalbraut 6 en þar átti að standa Dalbraut 4. Breytingin felst í því að skipulagssvæði deiliskipulags Dalbrautar - Þjóðbrautar, sem upphaflega var samþykkt 22. mars 1988, er minnkað sem nemur lóðinni Dalbraut 8. Áður hafði skipulagssvæðið verið minnkað 2006 þegar unnið var nýtt deiliskipulag á suðurhluta svæðisins. Engin önnur breyting er gerð á deiliskipulaginu. Samsvarandi breyting á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 þar sem miðsvæði er stækkað á kostnað svæðis fyrir blandaða landnotkun var auglýst samhliða deiliskipulagi Dalbrautarreits. Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is frá og með 3. ágúst til og með 21. september 2017. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 21. september 2017 í þjónustuver Akraneskaupstaðar eða á netfangið skipulag@akranes.is. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar. Þyrla Landhelgisgæslunnar, tF- LÍF, lenti á Akranesi skömmu fyr- ir hádegi mánudaginn 31. júlí. Ekki var um slys að ræða heldur voru gæslunnar menn að sækja björg- unarsveitarmenn og búnað. Þyrl- an lenti á bílastæðinu við húsnæði Björgunarfélags Akraness að Kal- mannsvöllum. Gatan var lokuð fyr- ir umferð á meðan lendingu stóð. Nokkur fjöldi fólks safnaðist sam- an til að fylgjast með, enda ekki á hverjum degi sem þyrla lendir inni í bænum. Þyrlan stoppaði stutt við í þess- ari heimsókn sinni á Akranes. Björgunarsveitarmenn stigu um borð með búnað og tæki og ör- stuttri stund síðar tók hún á loft á ný. Ferðinni var heitið á Heiðar- horn í Borgarfirði til að endurnýja VHF-endurvarpann sem þar er. Mun það tryggja viðbragðsaðilum góð fjarskipti um Faxaflóa, Hval- fjörð og langt inn á hálendið. Fé- lagar úr Björgunarfélagi Akraness og Björgunarsveitinni Brák fóru með þyrlunni að skipta um send- inn. Þyrlan hvarf síðan á braut og björgunarsveitarmenn munu ganga til byggða að vinnu lokinni þangað sem þeir verða sóttir. kgk TF-LÍF á ferð og flugi á Akranesi TF-LÍF tekur á loft eftir stutt stopp á Akranesi. Tæki og búnaður ferjaður í þyrluna. Björgunarsveitarmenn stigu síðan sjálfir um borð og fóru með þyrlunni áleiðis á Skessuhorn í Borgarfirði. Beðið eftir þyrlunni.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.